Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 8
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Við svona tilvik ætti að leita skýring- anna, því þetta snýr að heil- brigði fugla- stofnanna. Gunnar Þór Hallgrímsson fuglafræðingur. *PLÚS með appelsínu- og blóðappelsínubragði inniheldur einungis 110 kaloríur. NÝJAR UMBÚÐIR KENÍA, AP Hópur öfgamanna frá Sóm- alíu, vopnaður vélbyssum, gerði árás á sjávarþorpið Mpekatoni í nágranna- ríkinu Kenía, kveikti þar í húsum og myrti nærri fimmtíu manns. Árásarmennirnir gengu hús úr húsi og spurðu hvort fólk væri frá Sómal- íu eða múslimar. Ef svörin voru þeim ekki að skapi, þá drápu þeir fólk. Al Shabab, samtök herskárra ísl- amista frá Sómalíu, lýstu yfir ábyrgð á árásunum, og sögðu þær gerðar í hefndarskyni vegna árása kenískra hermanna í Sómalíu. Keníastjórn sendi herlið inn í Sóm- alíu árið 2011 til þess að aðstoða stjórnina þar við að verjast upp- reisnar sveitum íslamistasamtakanna, sem hafa haft tengsl við al-Kaída- samtökin. Á síðustu mánuðum hafa fjöl- margar árásir verið gerðar innan landamæra Kenía, en þessi er sú mannskæðasta. Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ástralía og Kanada hafa varað ríkis- borgara sína við hættu á hryðju- verkum í landinu. - gb Sómalskir öfgamenn gerðu árás á sjávarþorp í nágrannaríkinu Kenía: Gengu hús úr húsi og myrtu NÁTTÚRA „Það bendir allt til þess að sótt eða einhverjir sjúkdómar séu á ferðinni þegar fullorðnir fuglar drepast, margir í einu á litlum punkti,“ segir Gunnar Þór Hallgrímsson, fuglafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suð- vesturlands, spurður um hugsan- legar skýringar á fjöldadauða sjó- fugla á Snæfellsnesi. Fjöldadauði fugla er sjaldgæfur en þekktur úr sögunni. Ástæður slíkra til- vika hafa ekki verið kannaðar markvisst hér á landi. Fjöldi sjófugla af þremur tegundum fannst dauður á Fróð- árrifi á Snæfellsnesi í síðustu viku, en alls var safnað saman 70 dauðum ritum, skörfum og æðarfugli. Frá miðjum maí hafa einnig fundist 50 dauðir æðar- fuglar við æðarvarp stutt frá. Auk þess fundust á staðnum dauðar flundrur, sem er smávaxinn flat- fiskur, sem skolað hafði á land við Bugsvötn innan rifsins. Engin sýnileg merki eru á fuglunum sem geta skýrt fjöldadauðann. Gunnar segir að erlendis sé fugladauði mun algengari, og þá er oft um bakteríuna clostridi- um botulinum að ræða, en þá er talað um bótúlisma þegar sýkill- inn veldur slíkum skaða. „Það er engin ástæða til að útiloka þessa skýringu þótt hún sé ekki þekkt hér á landi, en það sama má segja um fuglaflensur. En það eru aðrar skýringar sem má ekki útiloka en þetta verður að rann- saka,“ segir Gunnar. Mikilvægt er að fugladauðinn sé rannsakaður af nákvæmni, að mati Gunnars Þórs. „Bæði til að fylgjast með hvort fugla flensur eiga einhvern þátt þarna, en einnig hvort bótúlínumsýkillinn finnst. Við svona tilvik ætti að leita skýringanna, því þetta snýr að heilbrigði fuglastofnanna. Okkur vantar reyndar skilvirka leið hér á landi til að fylgjast með heilbrigði villtra dýra, því engin stofnun sinnir því sérstaklega,“ segir Gunnar. Æðarfuglarnir verða sendir til greiningar til bandarískra sérfræðinga í fuglasjúkdómum. Ástand fuglanna var mismun- andi. Tegundirnar tvær, æðar- fugl og rita, eiga fátt sameigin- legt. Hins vegar nota þær báðar ferskvatnstjarnir á þessum árs- tíma, og beinist athygli sérfræð- inga því að grunnum tjörnum á svæðinu. svavar@frettabladid.is Sjúkdómur líklegasta skýring fugladauðans Ekki er hægt að útiloka fuglaflensur og aðra sjúkdóma vegna fugladauða á Snæfellsnesi. 130 fuglar hafa fundist dauðir. Leitað til bandarískra sérfræðinga í fuglasjúkdómum. Engin stofnun fylgist sérstaklega með heilbrigði villtra dýra. ÚKRAÍNA, AP Evrópuríki gætu næsta vetur orðið fyrir barðinu á því að Rússar hafa nú skrúfað fyrir gas til Úkraínu. Úkraína á að vísu nægar birgðir af gasi fram í desember, en hafi ekki tekist samn ingar við Rússa gæti gasstraumur frá Rúss- landi til Evrópu í gegnum Úkraínu stöðvast eða minnkað. Rússar neituðu í gær tilboði Úkraínu um að greiða hluta af gas- skuldum sínum, og krefjast þess nú að fá fyrirframgreiðslur fyrir öll gaskaup í framtíðinni. Ráðamenn beggja ríkja viðhöfðu stór orð, og ráðamenn í Evrópusam- bandinu segja íbúa aðildarríkjanna geta þurft að búa sig undir kaldan vetur. Petro Porosjenkó, nýkjörinn for- seti Úkraínu, segist síðan ætla að leggja fram ítarlega friðaráætlun, sem felur í sér vopnahlé í átökum við uppreisnarmenn í austurhluta landsins. Hörð átök urðu um síðustu helgi og skutu uppreisnarmenn niður herflutningavél, og fórust þar 49 manns, bæði áhöfn flugvélarinnar og hermenn. - gb Rússar hafa skrúfað fyrir allt gas til Úkraínu og heimta nú fyrirframgreiðslur: Evrópuríki óttast gasskort EYÐILEGGING Í MPEKATONI Maður virðir fyrir sér eyðilegg- inguna sem árásarmennirnir skildu eftir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SORGLEG AÐKOMA Allar riturnar sem fundust voru í fjörukambi ofan flæðarmáls svo talið er að mun fleiri fuglar hafi drepist en þeir 70 sem fundust. MYND/MENJA RÚSSAR NEITA Alexei Miller, fram- kvæmdastjóri Gazprom, og Alexander Novak, orkumálaráðherra Rússlands, voru ófáanlegir til samninga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.