Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 20
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 20 Mörg nýyrði ná aldrei verð- skuldaðri útbreiðslu hversu góð sem þau eru. Það er nokkuð góð trygging ef nýyrði eru búin til fyrir stofnanir, orðanefndir eða fyrirtæki. Faðir minn Halldór Hall- dórsson, prófessor í íslensku, var mjög snjall nýyrðasmið- ur. Það er ekki öllum gefið þótt menntunin sé fyrir hendi. En faðir minn hafði mikinn áhuga á orðum sbr. doktors- ritgerð hans Íslensk orðtök. Hans áhugi var mestur á sviði orðfræði, svo það er kannski engin tilviljun að hann vann mikið við nýyrðasmíðar. Dæmi um orð sem náðu strax útbreiðslu voru orðin hyrna og ferna. Þegar Mjólkursamsalan breytti um umbúðir undir mjólk frá flöskum eða mjólkurpottum í umbúðir úr pappa var leitað í smiðju föður míns. Hann hafði oft þann sið að leggjast í sófa, ekki undir feld, heldur horfði hann á veggteppi, sem móðir mín hafði saumað og leitaði að villum í munstrinu. Svo eftir mislanga stund var orðið komið, en stundum liðu nokkrir dagar þang- að til hann fann rétta orðið. Þannig fæddust orðin hyrna, sem var lýs- andi fyrir lag umbúðanna og síðar ferna. Nýyrði hans eru mýmörg og man ég fæst þeirra og þau sem hann vann með orðanefndum eða fyrir stofnanir kann ég fæst. Hann hirti líka lítið um að halda þeim til haga. Hann sóttist ekki eftir viðurkenn- ingu, en það gladdi hann þegar þau hittu í mark. Ekki farið hátt Eitt nýyrða föður míns er Váhrif, mjög snjallt að mínu viti, en hefur ekki farið hátt, enda aðeins einn maður reynt að koma því á fram- færi. Þessi maður er Páll Eiríksson geðlæknir en árið 1996 var hann að skrifa grein um ferð sem hann fór til Suður-Afríku sem þátttakandi í alþjóðlegri sendinefnd sérfræðinga í PTSD (Post traumatic stress disorder), sem kvödd var til að undir- lagi Nelson Mandela. Orðin sem notuð eru hér yfir PTSD eru áfallastreita eða áfallastreituröskun, orð sem honum fannst ekki ná vel merkingu hugtaksins. Hann leitaði því til föður míns og skilgreindi hugtak- ið fyrir honum. Orðið sem faðir minn lagði til var Váhrif og fylgir skilgreining hans hér á eftir. „Orðið vá er í til þess að gera gömlum nýyrðum notað um áföll, sérstaklega sem verða af slysum og náttúruhamförum sbr. vátrygging. Í samsettum orðum er orðið áhrif stundum stytt í hrif sbr. hughrif. Váhrif gæti þannig merkt áhrif, sem verða af hvers kyns áföllum s.s. slysum og náttúruhamförum. Við váhrif mætti síðan bæta orðum eins og hjálp eða meðferð, váhrifa- hjálp, váhrifameðferð eftir því sem við á hverju sinni.“ Skilgreining Páls á hvað váhrif (PTSD) eru „Vá má kalla það ástand/aðstæður, sem verða þess valdandi, að ein- staklingnum finnst sér ógnað lík- amlega/andlega þannig að hann ótt- ist um líf sitt, heilsu og sjálfstæði, fjölskyldu, vina eða annarra. Þetta getur gerst skyndilega við snjó- flóð, húsbruna, skipskaða, bílslys, rán, líkamsárás, nauðgun eða morð svo eitthvað sé nefnt. Einnig getur langvarandi líkamlegt eða andlegt ofbeldi eða líf í sífelldu óöryggi um líf og heilsu sína eða annarra sem manni þykir vænt um haft sömu áhrif. Ekki má heldur gleyma því, að mikill, margvíslegur, margfaldur eða síendurtekinn missir getur haft sömu áhrif. Missir ástvinar, sem verið hefur einstaklingnum allt, getur kippt fótunum undan þeim, sem eftir stendur. Vá, þessi hræðilega ógnun, getur svo valdið váhrifum. Ástæðan er þær sterku tilfinningar, sem koma í kjölfar þessarar ógnunar og geta gert einstaklingnum ókleift að hugsa, tjá sig, hegða sér eða fram- kvæma hluti á venjulegan hátt. Einstaklingurinn stendur frammi fyrir vá, sem ruglar allt hans innra jafnvægi. Við höfum öll byggt upp okkar varnarhætti gegn sársauka, eins konar andlega brynju eða húð. Allt í einu eða eftir ógnun í langan tíma dugar þessi brynja ekki, hún brestur jafnvel í mél. Eftir stendur einstaklingurinn með gapandi sár. Hjálparleysi, vanmáttarkennd og ofsahræðsla getur gagntekið ein- staklinginn.“ Sú staðreynd að Páll bjó erlend- is þegar hann skrifaði greinina um Suður-Afríku og var ekki í miklum tengslum við fólk í geðlækninga- og sálfræðistörfum hér heima varð sennilega til þess að fáir tóku eftir þessu orði. Hann notaði það þó ávallt þegar hann skrifaði greinar um váhrif og reyndi á annan hátt að koma því á framfæri. Mig langar að leggja mitt lóð á vogarskálarnar og biðja lesendur að bera saman þessi orð. Váhrif, áfallastreita, áfalla streitu- röskun. Hvert þessara orða er meitlað, hlaðið merkingu, en stutt, lýsandi og hnitmiðað. Váhrif hlýtur mitt atkvæði. Váhrif – Nýyrði sem á fullan rétt á sér Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur síðustu sex ár hraðamælt reglulega á völdum stöðum umdæmisins og notað til þess ómerkta lögreglubifreið. Mæl- ingarnar eru að jafnaði gerðar á svip- uðum tíma árs og dags með það að markmiði meðal annars að meta þróun ökuhraða milli ára. Niðurstöður mæl- inga eru í öllum tilvikum sendar við- komandi sveitarfélögum. Á þessum tíma hafa veghaldarar gert ýmsar breytingar á mælingar- stöðunum, þeim vegarköflum sem mælt var á, leyfilegur hámarkshraði hækkaður eða lækkaður og hraða- hindranir settar niður eða hraðaþrengingar. Áhugavert er að sjá hvaða áhrif þær höfðu á ökuhraða með vísan til hlutfalls þeirra öku- manna sem óku of hratt hverju sinni, brota- hlutfalls. Nefna má nokkur dæmi. Hraði í íbúðahverfi var lækkaður úr 50 í 30 kílómetra hraða miðað við klukkustund án þess að breytingar væru gerðar á vegarkaflanum að öðru leyti. Mælingar lögreglu fyrir lækkun sýndu brotahlutfall sem var að meðaltali tvö prósent. Eftir lækkun leyfilegs hámarkshraða hækkaði hlutfallið í 36 og allt upp í 68%. Með- altalið var 52%. Aðrar sambærilegar aðgerð- ir á vegarköflum þar sem hraði var lækkað- ur án þess að aðrar hraðalækkandi aðgerðir hafi fylgt, hafa leitt til hækkaðs brotahlutfalls. Ökuhraði virðist svipaður fyrir og eftir lækk- un. Dæmi um vegarkafla þar sem leyfilegur hámarkshraði var hækkaður sýnir áþekka nið- urstöðu. Á stofnbraut milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur var hraði hækkaður úr 70 í 80. Brotahlutfall fyrir breytingu var 25% en 8% ef miðað hefði verið við 80 kílómetra leyfðan hámarkshraða. Í mælingum eftir hækkun var brotahlutfall frá 8 til 13% eða 11% að með- altali. Ekki var því að sjá mikla breytingu á aksturshraða þrátt fyrir hækkun leyfilegs hámarkshraða. Til viðbótar þessum niðurstöðum hafa mæl- ingar lögreglu sýnt að brotahlutfall helst mjög stöðugt milli ára þar sem ásýnd vega og umhverfi er óbreytt. Góður árangur Þar sem breytingar hins vegar hafa verið gerð- ar á götum til lækkunar hraða, til að mynda settar hraðahindranir eða hraðaþrenging- ar, hefur góður árangur náðst. Má þar nefna götu í íbúðahverfi þar sem meðalbrotahlutfall var 53% en enginn mældist brotlegur eftir að hraðahindranir voru settar niður. Annað dæmi af sama meiði er gata þar sem meðalbrotahlut- fall var 19% en 1% eftir aðgerðir. Þær upplýsingar sem fyrir liggja og hér eru nefndar, gefa vísbendingar um að umhverfi vega og ásýnd hafi mikið að segja um ökuhraða. Mikilvægt sýnist því að veghönnun og skipu- lag hverfa taki mið af þeim hraða sem áætlanir gera ráð fyrir þannig að ökumönnum sem um fara megi vera það ljóst af umhverfi ekki síður en merkingum hver leyfður hraði er. Hraða- takmarkandi aðgerðir eftir á myndu þar með ónauðsynlegar. Þá er og mikilvægt að núverandi hraðamörk taki mið af þessu, verði hækkuð þar sem ljóst er að samræmi milli leyfðs hraða og umhverfis er lítið og slysatíðni lág eða engin, en hraðatak- markandi aðgerðum beitt að öðrum kosti. Það er mat lögreglu að með þannig markvissum aðgerðum megi fækka brotum í umferð, auka enn virðingu ökumanna fyrir lögum og reglum og fækka slysum. Um hraðamælingar og hraðatakmörk í þéttbýli Fyrir skömmu birtist í Fréttablaðinu sú ánægjulega frétt að tölvuleikir dragi úr glæpum og vímuefnanotkun íslenskra unglinga. Þessi frétt var studd ítarlegum rannsóknum nor- rænna afbrotafræðinga en sömu þróun mátti greina hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Að mati sérfræðinganna eru helstu ástæður þess að tölvu- leikir hafa þessi áhrif þær að unglingar séu meira heima hjá sér auk þess sem tölvuleikir og netið veiti þeim þá útrás sem þeir þurfa. Tölvuleikir í almannaþágu Þessi frétt er sem hvalreki á fjörur okkar félagshyggjufólks. Við sem tölum fyrir sam- félagslegum jöfnuði trúum því nefnilega að skynsamleg ráðstöfun fjár felist helst í því að færa það úr vasa vinnandi fólks og yfir í vasa góðhjartaðra stjórnmálamanna til endurúthlutunar í þágu almannahagsmuna. Þannig höfum við alltaf barist fyrir sífellt myndarlegri niðurgreiðslum til íþrótta- og tómstundastarfs, svo sem knattspyrnuiðkunar og tónlistar- náms. Nú getum við bætt tölvuleikjum í þennan niður- greiðslusarp enda sömu rök sem gilda fyrir niðurgreiðslum þar eins og í tilfelli íþróttaiðkunar og tónlistarnáms, það er að þá sé unga fólkið okkar síður líklegt til glæpaiðkunar eða vímuefnanotkunar. Mismunun eftir áhugamáli? En hefur fjölskyldum í landinu þá ekki í raun verið mis munað fram að þessu? Hvað með einstæðu móðurina með börnin þrjú og ekkert þeirra með áhuga á íþróttum eða hljóðfæra- leik heldur tölvuleikjum og netnotkun? Hún hefur hingað til þurft að vinna baki brotnu til að eiga fyrir þeim viðbótar- sköttum sem farið hafa í niðurgreiðslur vegna áhugamála annarra barna. Því er morgunljóst að tími er kominn til að útvíkka þessar niðurgreiðslur svo að fjölskyldur með önnur áhugamál en íþróttir og hljóðfæraleik njóti þeirra einnig. Jafnvel kemur til álita að þessar fjölskyldur fái sanngirnis- bætur fyrir að hafa farið á mis við þessar niðurgreiðslur öll þessi ár. Forgangsröðum í þágu barnanna Ég legg því til að sveitarfélögin í landinu niðurgreiði tölvu- leiki og netnotkun til jafns við þá upphæð sem fer í niður- greiðslur vegna íþrótta- og tónlistariðkunar ungmenna að frístundakortunum meðtöldum. Slíkar niðurgreiðslur þurfa að taka mið af öllum þeim kostnaði sem tölvuleikir krefjast, svo sem kostnaði vegna kaupa á tölvum, heyrnartólum og niðurhali. Vissulega mikill kostnaður fyrir sveitarfélögin, en hvað gerum við ekki fyrir börnin okkar? Þetta er einungis spurning um forgangsröðun. Allir hljóta að vera sammála um það nema kannski helst þetta frjálshyggjulið sem vill bara að tölvuleikir séu bara svona einka-eitthvað. Niðurgreiðum tölvuleiki Í fyrri grein minni í vindorku sagði ég frá vindlundi á eyjunni Hitra í Þrændalögum. Þar er komin tíu ára reynsla af 24 vind- rafstöðvum á klapparholtum í um 300 metra hæð úti við Atlantshaf. Nýtingarhlutfallið á Hitra fyrstu árin reyndist vera 29%. Það er heldur lægra, en lagt var upp með þrátt fyrir ágætan mældan meðal- vind eða um 8,0 m/s í 50 metrum yfir jörðu. Á Hafinu ofan Búrfells vænta menn þess að meðalvindur í sömu hæð sé 10 m/s og meðalnýtingin geti farið yfir 40%. Vindmyllurnar á Hitra eru af eldri gerð og í stormi stöðvast þær við tiltölulega lágan vindstyrk. Suðvestan- stormar eru þarna tíðir að haust- og vetr- arlagi norður með vesturströnd Noregs og líklegt þykir mér að „dauður“ tími vegna storma hafi lækkað vænta orkuvinnslu á Hitra. Nýjustu gerðir vindrafstöðva nýta hvassan vind betur og aðeins mestu ill- viðri stöðva framleiðsluna alveg. Þrátt fyrir allt er helsti annmarki vindorkunnar sveiflur í framleiðslu, sérstaklega lengri og skemmri tímabil hægviðris þegar spað- arnir snúast löturhægt eða alls ekki. Þrýstivindur er tiltölulega mikill á Íslandi. Hér á landi hafa mælingar í 10 metra hæð mjög víða sýnt að vind- ur blæs að jafnaði af ágætum styrk og ekki skiptir minna máli að hann er nokk- uð stöðugur. Sviptivindar nærri fjöllum þykja þannig mikill ókostur og vélbún- aður slitnar líka hraðar og endingartím- inn verður skemmri. Hér á landi er víða lítið viðnám yfir- borðs samanborið t.d. við N-Evrópu. Þetta á sérstaklega við um hálendisbrúnina og strandsvæði fjarri bröttum fjöllum. Fyrir vikið nær vindurinn sem blæs ofar höfð- um okkar meiri styrk en annars væri. Það hefur aftur í för með sér að 40-60 m háar vindmyllur kunna að verða hagkvæmari, en þær sem eru 100 m og hannaðar eru til að komast upp úr iðusveipum nær jörðu þar sem viðnám er meira. Óvinur vindorku Helsti annmarki vindorkunnar er óstöðug- ur vindurinn, einkum yfir sumarmánuðina og algengi hægviðris. Dægursveifla er oft einkennandi fyrir vindafarið. Hafgola eða annar sólfarsvindur er þá gjarnan í 4 til 6 klst. um og eftir miðjan daginn, en nánast logn frá kvöldi og fram á næsta dag. Bent hefur verið réttilega á að samspil við vatnsafl geti haft úrslitaþýðingu fyrir hagkvæmni vindorku. Á veturna þegar vindorka er mest, eru vatnsaflsvirkjanir reknar með vatni í verulegum mæli frá miðlunum. Við jöklaleysingu síðla sum- ars fyllast oftast (en þó ekki alltaf) miðl- unarlón með leysingarvatni frá jöklum. Umframvatn rennur þá stundum á yfir- falli til sjávar. Slíkt er vitanlega sóun. Samstjórn vindorku og vatnsafls kann að vera ögrandi og spennandi verkefni til að útvega þá orku sem þarf á hverjum tíma á sem hagkvæmastan hátt. Hvort vindorka teljist fýsilegur kost- ur hér á landi ræðst mest af hagkvæmni í samanburði við tiltölulega ódýrt vatns- afl og jarðvarma. En víst er að vindur er víða nægjanlega mikill og aðstæður góðar á mörgum stöðum hér á landi. Jafn- vel öfundsverðar segir erlent vindorku- fólk sem glímir við lakari nýtingu. Á móti kemur að raforkuverðið þar er yfirleitt hærra, þó svo að vindorka sé stundum nið- urgreidd sem vistvænn valkostur saman- borið við gas- eða kolaorkuver. Er framtíð í vindorku? SAMFÉLAG Guðmundur Edgarsson málmenntafræð- ingur NÝYRÐI Elísabet Halldórsdóttir bókasafnsfræðingur ➜ Hann hafði oft þann sið að leggjast í sófa, ekki undir feld, heldur horfði hann á vegg- teppi, sem móðir mín hafði saumað og leitaði að villum í munstrinu. Svo eftir mislanga stund var orðið komið, en stundum liðu nokkrir dagar þangað til hann fann rétta orðið. ➜Það er mat lögreglu að með þannig markvissum aðgerðum megi fækka brotum í umferð, auka enn virðingu ökumanna fyrir lögum og reglum og fækka slysum. ➜ Helsti annmarki vindorkunnar er óstöð- ugur vindurinn, einkum yfi r sumarmánuðina og algengi hægviðris. Dægursveifl a er oft einkennandi fyrir vindafarið. UMFERÐ Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfi rlög- regluþjónn á höfuð- borgarsvæðinu VINDORKA Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.