Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 32
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28 Ragnheiður SÝNING ÁRSINS 2014 eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson Íslenska óperan Stóru börnin LEIKRIT ÁRSINS 2014 eftir Lilju Sigurðardóttur Lab Loki Egill Heiðar Anton Pálsson LEIKSTJÓRI ÁRSINS 2014 fyrir Gullna hliðið Leikfélag Akureyrar Hilmir Snær Guðnason LEIKARI ÁRSINS 2014 Í AÐALHLUTVERKI fyrir Eldraunina Þjóðleikhúsið Margrét Vilhjálmsdóttir LEIKKONA ÁRSINS 2014 Í AÐALHLUTVERKI fyrir Eldraunina Þjóðleikhúsið Bergur Þór Ingólfsson LEIKARI ÁRSINS 2014 Í AUKAHLUTVERKI fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt Borgarleikhúsið Nanna Kristín Magnúsdóttir LEIKKONA ÁRSINS 2014 Í AUKAHLUTVERKI fyrir Óskasteina Borgarleikhúsið Egill Ingibergsson LEIKMYND ÁRSINS 2014 fyrir Gullna hliðið Leikfélag Akureyrar Helga Mjöll Oddsdóttir BÚNINGAR ÁRSINS 2014 fyrir Gullna hliðið Leikfélag Akureyrar Gunnar Þórðarson TÓNLIST ÁRSINS 2014 fyrir Ragnheiði Íslenska óperan Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson HLJÓÐMYND ÁRSINS 2014 fyrir Litla prinsinn Þjóðleikhúsið Björn Bergsteinn Guð- mundsson og Petr Hloušek LÝSING ÁRSINS 2014 fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt Borgarleikhúsið Ragnheiður og Gullna hliðið hlutu fl est Grímu-verðlaun Íslensku sviðslistaverðlaunin, Gríman 2014, voru afh ent í 12. skiptið við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Kynnar kvöldsins voru Bergur Ebbi og Dóri DNA og slógu þeir á létta strengi eins og þeim einum er lagið. Óperan Ragnheiður og leiksýningin Gullna hliðið frá Leikfélagi Akureyrar voru sigursælar og hlutu báðar þrenn verðlaun á hátíðinni og þá hlaut Kristbjörg Kjeld Heiðursverðlaun Grímunnar. LEIKRIT ÁRSINS Stóru börnin, sem sýnt var í Tjarnarbíói, var valið leikrit ársins. HEIÐURS- VERÐLAUNA- HAFI Kristbjörg Kjeld hlaut Heiðursverðlaun Leiklistarsam- bands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Elmar Gilbertsson SÖNGVARI ÁRSINS 2014 fyrir Ragnheiði Íslenska óperan Brian Gerke DANSARI ÁRSINS 2014 fyrir F A R A N G U R Íslenski dansflokkurinn Valgerður Rúnarsdóttir DANSHÖFUNDUR ÁRSINS 2014 fyrir F A R A N G U R Íslenski dansflokkurinn Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson ÚTVARPSVERK ÁRSINS 2014 Leikstjórn Viðar Eggertsson Útvarpsleikhúsið á RÚV Tyrfingur Tyrfingsson– leikskáld SPROTI ÁRSINS 2014 fyrir Bláskjá Óskabörn ógæfunnar og Borgarleik- húsið Hamlet litli eftir Berg Þór Ingólfsson BARNASÝNING ÁRSINS 2014 Borgarleikhúsið Kristbjörg Kjeld HEIÐURSVERÐ- LAUN LEIKLISTAR- SAMBANDS ÍSLANDS 2014 GLÆSILEG LEIKMYND Sýningin Gullna hliðið sem sett var upp á árinu hjá Leik- félagi Akureyrar hlaut þrenn verðlaun á hátíðinni, meðal annars fyrir leikmynd ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN SÝNING ÁRSINS Óperan Ragnheiður var sigursæl á hátíðinni og hlaut þrenn verðlaun, meðal annars sem sýning ársins. Lesendur eru beðnir að afsaka villu í síðustu helgarkrossgátu. Hún verður birt rétt í fimmtu- dagsblaðinu. Krossgátan verður leiðrétt 17. júní er fagnað í Árbæjar- safni. Fornbílaklúbburinn safnast saman á planinu og leggur af stað fylktu liði um hádegi niður í bæ. Margir gestir mæta í þjóðbún- ingum og fjallkona verður skrýdd klukkan 14. Á baðstofuloftinu verður spunnið á rokk, bakaðar verða lummur og í prentsmiðjunni verður prentari að störfum og venju samkvæmt býður Dillons- hús upp á ljúffengar veitingar. Margar nýjar sýningar hafa verið opnaðar í Árbæjarsafni í vor. Þar má nefna sýninguna Neyzlan-Reykjavík á 20. öld og nýja sýningu sem ber heitið S7 og er samvinnuverkefni Árbæjar- safns og Nýlistasafnsins. - gun Íslenskt í Árbæjarsafni Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari mun standa ein og leika á fiðlu sína í Þingvallakirkju í kvöld, á þjóðhá- tíð Íslendinga. Hún spilar verk eftir Jón Leifs, Béla Bartók og Johann Sebastian Bach. Rut hefur verið mikilvirk í íslensku tónlistarlífi, ekki síst í frumkvöðlastarfi sínu með Kammersveit Reykjavíkur og eflaust eiga ofangreind tónskáld eftir að eiga áhugavert samtal í flutningi hennar. Þetta eru aðrir tónleikarnir í tónleikaröðinni Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju. Þeir hefjast kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis. Tónleika- gestir eru beðnir um að leggja bílum sínum við Flosa- gjá og ganga til kirkju. Rut með fi ðlu á Þingvöllum FÍN Gestir eru hvattir til að mæta í búningum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þetta eru hljómsveitartón- leikar og stjórnandinn er hinn margverðlaunaði fiðluleikari Hu Kun, frá konunglegu tónlistar- akademíunni í London,“ segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir verk- efnisstjóri um tónleika í Hörpu klukkan 17 í dag. Um er að ræða hápunkt og lokaatriði alþjóðlegrar tónlistar- akademíu sem staðið hefur síð- ustu viku. Kristín Mjöll lofar spennandi dagskrá. Hún nefnir konsert fyrir fjórar fiðlur og strengja- sveit eftir Vivaldi með einleik- urum úr röðum úrvalsnemenda námskeiðsins og Sinfoniu Con- certante eftir Mozart. Þar leika einleik þeir InMo Yang á fiðlu og Eivind Holtsmark Ring stad á víólu. Flutningur verksins Hymni eftir Snorra Sigfús Birgisson er tileinkaður minningu Noru Kornblueh, Óskars Ingólfssonar og Richards Talkowsy. Tónleikunum lýkur með flutn- ingi Lofsöngs Sveinbjörns Svein- björnssonar. - gun Þjóðsöngur Íslands lokalagið Hátíðartónleikar verða í Norðurljósasal Hörpu í dag þar sem leikin verða meðal annars tónverk eft ir Dvořák, Mozart og Snorra Sigfús Birgisson. VERKEFNISSTJÓRINN „Þetta er mjög spennandi dagskrá,“ segir Kristín Mjöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MENNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.