Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 4
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 100 50 0 250 200 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Hass FÍKNIEFNAMÁL Gríðarlegur sam- dráttur hefur verið í haldlögðu magni af hassi frá hruni. Á sama tíma hefur lögregla lagt hald á töluvert meira af grasi og kanna- bisplöntum. Skýringuna er ekki að finna í því að lögreglu gangi verr að finna hassið heldur hefur algjört hrun orðið í neyslu á efninu. Örvar Geir Geirsson, stjórnarmaður í samtökunum RVK Homegrown sem berjast fyrir lögleiðingu kannabisefna, segir að nánast ekkert hass sé lengur á markaðn- um. „Öll framleiðsla á kannabis er orðin innlend. Síðan gjaldeyris- höftin komu á þá hefur verið erf- itt að koma fjármagni út úr land- inu til að flytja efnin inn. Allt fjármagn fór því í hina áttina, til að fjárfesta í búnaði hér innan- lands til að koma upp ræktun.“ Hann segir að þróunina hafi upp- haflega mátt sjá þegar lampar og annar ræktunarbúnaður fór að hverfa úr gróðurhúsum. Örvar segir jafnframt að tölu- verður munur sé á neyslu á grasi og hassi. „Þetta hefur verið mjög ánægjuleg þróun þar sem grasið fer betur í fólk en hassið.“ Umræða um lögleiðingu vímu- efna hefur breyst á síðastliðnum árum. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur meðal annars gefið það út að hann vilji endurskoða refsistefnu í fíkni- efnamálum. Örvar segir mikla ánægju ríkja meðal neytenda kannabisefna vegna þessa. „Við erum í skýjunum. Þetta virðist allt vera á hinni jákvæðustu leið.“ Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er verðið á grammi af grasi 3.500 krónur og hefur það staðið í stað um nokk- urra ára skeið. Sölumenn kanna- bisefna bjóða jafnan upp á magn- afslátt af efninu. Örvar bendir á að ef tekið sé mið af verðlagsþró- un og gengisþróun síðustu ára þá hafi kannabisefni í raun lækkað í verði. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir skýring- ar á minnkandi hassneyslu vera takmarkaðri aðgang að gjaldeyri. Hann segir lögreglu þó ekki eiga erfiðara með að finna smyglvarn- ing en heimaræktun. „Þetta er alltaf erfitt við að eiga en ef viljinn er fyrir hendi þá getur fólk annaðhvort flutt inn eða framleitt. Síðan er þetta bara spurning um vinnu, aðferðir og mannskap, hvernig gengur að leggja hald á efnin,“ segir Frið- rik Smári. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur heimaræktun ein- staklinga aukist. Sú framleiðsla er ekki hugsuð til sölu á efninu heldur einvörðungu einkaneyslu. snaeros@frettabladid.is Hassið horfið eftir hrun Hrunið varð til þess að nánast ekkert hass er lengur að finna á íslenskum fíkniefnamarkaði. Dæmi eru um að fólk rækti kannabisplöntur til einkanota. Neytendur eru ánægðir með viðhorfsbreytingu gagnvart neyslunni. Í BLÁUM SKUGGA Talsmaður RVK Homegrown segir það engin áhrif hafa á mark- aðinn þegar stórum verksmiðjum er lokað. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FRIÐRIK SMÁRI BJÖRGVINSSON HALDLAGT MAGN AF HASSI OG KANNABIS 2007–2013 (KG) Kannabis Árið 2008 fundust 200 kg af hassi í húsbíl sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar. Sá innflutningur útskýrir gríðarlegan kúf á árinu. Öll framleiðsla á kannabis er orðin innlend. Síðan gjaldeyrishöftin komu á þá hefur verið erfitt að koma fjármagni út úr landinu til að flytja efnin inn. Allt fjármagn fór því í hina áttina, til að fjárfesta í búnaði hér innanlands til að koma upp ræktun. Örvar Geir Geirsson, stjórnarmaður í RVK Homegrown BJÖRGUN Formlegri leit að Ástu Stefánsdóttur, sem hvarf í Bleiks- árgljúfri um hvítasunnuhelgina, er lokið. Björgunarsveitir hafa pakk- að búnaði sínum saman og munu að öllum líkindum ekki koma aftur að leitinni. Fossinum sem rennur um gljúfr- ið var veitt um stokk á laugardag og við það fundust göng í foss- inum sem ekki er vitað hve djúp eru eða hvar enda. „Svo virðist sem það sem fari niður fossinn fari niður göngin. Það fóru niður tveir sandpokar um síðustu helgi og það hefur ekkert sést af þeim,“ segir Svanur Sævar Lárusson, sem stjórnað hefur leitaraðgerðum í Bleiksárgljúfri. Hann segist aldrei hafa séð göng sem svipar til þeirra sem eru í fossinum. „Það er ótrúlegt hvern- ig náttúran getur skapað hlut- ina.“ Björgunarsveitarmaður sem seig niður að göngunum segist að minnsta kosti hafa séð tíu metra niður göngin. Hann sá þó ekki fyrir endann á þeim og varð ekki var við neitt fast í þeim. „Þetta vatn hlýtur að koma einhvers stað- ar í gegn, þó við sjáum ekki í end- ann á þeim,“ segir Svanur. „Þetta eru göng sem við mynd- um aldrei senda neinn í, þetta er það hættulegt.“ Hann segir að fossinn sé ekki þess eðlis að nokkr- um myndi detta í hug að hoppa niður. Svanur segir að erfitt sé að hætta leit og hugur björgunar- sveitarmanna sé hjá fjölskyldu Ástu. - ssb Björgunarsveitarfólk og lögregla lögðu allt kapp á að finna Ástu Stefánsdóttur en án árangurs: Árangurslausri leit í Bleiksárgljúfri lokið AÐ STÖRFUM Í GLJÚFRINU Aðstæður voru mjög hættulegar björgunarsveitar- fólki. MYND/GUÐBRANDUR ÖRN ARNARSON GJALDTAKA VIÐ GEYSI Ríkið fór fram á lögbann við innheimtu gjalds á ferða- mannastaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÓMSMÁL Garðar Eiríksson, tals- maður landeigendafélags Geysis, segir það ósanngjarnt að lagt sé lögbann á gjaldtöku félags- ins, á meðan aðrir landeigend- ur séu látnir óáreittir. Héraðs- dómur Suðurlands féllst í apríl á lögbannskröfu íslenska ríkisins á innheimtu gjalds af ferðamönn- um við Geysi. „Er eignarréttur okkar eitt- hvað minna virði heldur en ann- arra?“ spyr Garðar. „Ég tel að núna hafi átt sér stað mismunun.“ Hann segir með engu móti hægt að spá hverjar lyktir máls- ins verða og að hann hafi áhyggj- ur af næsta sumri. - gag Segir lögbann ósanngjarnt: Ríkið mismuni landeigendum SLYS Ökumaður bifhjóls sem fór út af veginum norðan við Akra- fjall á laugardag liggur enn alvarlega slasaður á gjörgæslu Landspítala. Slysið átti sér stað rétt austan við bæinn Kjalardal. Að sögn lögreglunnar á Akranesi kast- aðist maðurinn af hjólinu og lenti töluvert frá veginum. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Tildrög slyssins eru enn ókunn og er málið í rannsókn. - bá Fór út af vegi við Akrafjall: Bifhjólamaður slasaðist mikið AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. 21% er fækkun innbrota á landinu öllu milli áranna 2012 og 2013. Innbrot í fyrra voru 1.092 talsins og hafa ekki verið færri frá því að samræmd skráning hófst. Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá LÆGÐ Í SUMARFRÍI og vill auðvitað skoða Ísland! Stekkingur eða allhvass vindur næstu daga. Talsverð rigning verður um S- og V-vert landið á morgun en einna mest NV-til á miðvikudag. Hiti að 18 stigum á morgun en fer svo kólnandi, einkum N-lands. 9° 6 m/s 11° 7 m/s 13° 8 m/s 11° 11 m/s 8-18 m/s, hviður við fj öll að 35 m/s 8-15 m/s Gildistími korta er um hádegi 27° 31° 19° 21° 24° 16° 19° 19° 19° 27° 20° 31° 27° 32° 26° 19° 20° 21° 11° 6 m/s 12° 7 m/s 16° 4 m/s 13° 8 m/s 15° 7 m/s 13° 7 m/s 8° 10 m/s 12° 11° 9° 8° 11° 12° 17° 11° 15° 10° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MIÐVIKUDAGUR Á MORGUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.