Fréttablaðið - 30.06.2014, Side 10

Fréttablaðið - 30.06.2014, Side 10
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND Á R N A S Y N IR tjaldaðu ekki til einnar nætur High Peak Como 37.990 / 44.990 KR. 4 og 6 manna traust fjölskyldutjald High Peak ancona 59.990 KR. 5 manna þægilegt fjölskyldutjald High Peak cave 26.990 KR. 2 manna þægilegt göngutjald The north face talus 3 64.990 KR. 3 manna létt og rúmgott göngutjald Frábært úrval af tjöldum í glæsibæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Skrúfur og festivörur í Múrbúðinni Rifflur sem skera viðinn Ruspert ceramic húðun þolir meira en 2000 tíma saltupplausn Torx Týpa 17 oddur auðveldar skrúfun! „Torque” rifflur minnka viðnám og hreinsa gatið! Skrúfur-stærðir 4-6mm allt að 140mm langar A4 A2 Rafgalv Ruspert Gipsskrúfur Kopar Mikið úrval af skrúfum og festingavörum Ruspert skrúfan sem iðnaðarmenn velja. Pakki af þessum Ruspert skrúfum 4,5x50 200 stk kostar kr. 1.095 DÓMSMÁL Allir héraðsdómstólar landsins nema Héraðsdómur Reykjavíkur geyma framlögð rann- sóknargögn í málum er snerta hús- leit eða hleranir. Þetta kemur fram í svörum við fyrirspurnum Frétta- blaðsins til héraðsdómstóla landsins sem og svörum dómstólanna við fyr- irspurnum lögfræðinga Samherja. Samkvæmt lögum um sakamál ber dómstólum að geyma fram- lögð gögn, en dómstjóri Héraðs- dóms Reykjavíkur segir vafa ríkja um gögn sem lögð séu fram á rann- sóknarstigi. Ingveldur Einarsdótt- ir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur verið kærð meðal annars vegna þess að máls- skjöl og fylgigögn við úrskurð um húsleitarheimild hjá Samherja árið 2012 finnast ekki hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Í 15. grein sakamálalaga segir: „Skjöl, sem eru lögð fram í dómi, skulu vera í frumriti séu þau tiltæk. Þau skulu merkt í áframhaldandi töluröð og vottuð um framlagn- ingu.“ Í annarri málsgrein sömu lagagreinar segir: „Framlögð skjöl skulu varðveitt í skjalasafni hlutað- eigandi dómstóls þar til þau verða afhent Þjóðskjalasafni.“ Sigurður Líndal lagaprófessor segir dómstóla verða að haga vinnu sinni þannig að þeir vinni eins á öllu landinu. Það sé ekki æskilegt ef vinnulag um geymslu gagna sé mismunandi eftir umdæmum hér- aðsdómstóla. Ingimundur Einarsson, dóm- stjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, tekur undir að óheppilegt sé að menn viðhafi ekki sömu vinnu- brögð í öllum héraðsdómstólum landsins, en segir Héraðsdóm Reykjavíkur fara að lögum. „Þetta hefur alla tíð verið gert með þessum hætti,“ segir Ingi- mundur. Hann segir vafa leika á hvort dómstólnum sé skylt að geyma gögn sem eru lögð fram þegar óskað er eftir heimild til hús- leitar eða símahlerunar. „Málið hefur ekki verið höfð- að, þarna er verið að óska eftir úrskurði á rannsóknarstigi, en það er ekki verið að höfða málið með þessu,“ segir Ingimundur. Hann segir að í þessu líti dóm- stóllinn til 103. greinar sakamála- laga, þar sem fjallað er um fram- gang rannsóknarmála fyrir dómi. Þar segir að lögreglustjóri eða ákæruvaldið skuli leggja skriflega og rökstudda kröfu um atbeina dómara fyrir dómstólinn. Þeirri kröfu eiga að fylgja þau gögn sem hún styðst við. Þar er ekkert tekið fram um hvort dómstóllinn skuli geyma gögn eða ekki. Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Íslands, hefur tjáð sig um málavöxtu á þann hátt að eðlilegt sé að rannsóknargögn séu ekki geymd. Hann skrifar á Facebook-síðu sína: „Rannsóknar- gögn „liggja þannig frammi“ þegar mál er tekið fyrir en eru ekki „lögð fram“ þannig að þau verði að dóm- skjölum og varðveitt hjá viðkom- andi dómstól. Þess er því ekki að vænta (eðlilega) að rannsóknar- gögn sé að finna í skjalasafni hér- aðsdóms.“ Þetta virðist stangast á við ákvæði 15. greinar sakamálalaga, sem dómstólar eiga að fara eftir. „Það er mikill munur á því að rannsóknargögn séu lögð fram sem skjöl í málum eða hvort rann- sóknargögn liggi frammi þannig að dómari geti glöggvað sig á mála- vöxtum til að úrskurða um heimild til hlustunar eða húsleitar. Rann- sóknargögn eru afar viðkvæm. Einnig þyrfti að hugsa þessi mál alveg upp á nýtt ef þyrfti að geyma öll gögn hjá dómstólnum,“ segir Skúli í samtali við Fréttablaðið. „Það er rétt að öll skjöl sem lögð eru fram í málinu eru geymd og eiga að vera geymd samkvæmt lögum.“ sveinn@frettabladid.is brjann@frettabladid.is Óljóst hvort dómar eigi að geyma gögn Dómstólar landsins viðhafa ekki sama verklag í hlerunar- og húsleitarmálum. Allir aðrir dómstólar en Héraðsdómur Reykjavíkur geyma öll gögn. Dómstjóri Héraðs- dóms Reykjavíkur segir vafa leika á hvernig túlka skuli lögin en segist fara að lögum. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Héraðsdómurinn er sá eini á landinu þar sem skjöl eru ekki geymd í úrskurðum um hlustun og húsleit. Sigurður Líndal lagaprófessor telur lagabókstafinn hvað varðar geymslu rannsóknargagna nokkuð skýran. Lögin kveða á um að leggja skuli fram gögn í málum um rannsóknarúrskurði og gögnin eigi að vera geymd hjá héraðsdómi þar til þau fara til Þjóðskjalasafns. Þegar hann er spurður út í muninn á því að gögn „liggi frammi“ og að gögn séu „lögð fram“ er fátt um svör. „Ég játa það að ég skil þetta eiginlega ekki. Þetta þarf líklega að senda í guðfræðideildina, þeir eru fræðingar í því að reyna að skilja það sem er óskiljanlegt,“ segir Sigurður. „Lögin eru nokkuð skýr“ Það er mikill munur á því að rannsóknar- gögn séu lögð fram sem skjöl í málum eða hvort rannsóknargögn liggi frammi þannig að dómari geti glöggvað sig á málavöxtum til að úr- skurða um heimild til hlustunar eða húsleitar. Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Íslands HLÍFÐARBÚNAÐUR Meðlimur samtakanna Læknar án landamæra setur á sig hlífðargleraugu áður en hann sinnir sjúklingum sem eru í einangrun. NORDICPHOTOS/AFP SÍERRA LEÓNE, AP Ebóla-faraldurinn sem geisar í þremur löndum í Vestur-Afríku er orðinn stjórnlaus, að sögn samtakanna Læknar án landamæra. Alls hefur verið staðfest að 599 hafa smitast af vírusnum og 338 hafa látist í Líberíu, Gíneu og Síerra-Leóne. Þetta er versti ebóla-faraldurinn sem vitað er af. Engin lækning er til við ebóla-vírusnum. Hann veldur innvort- is blæðingum og líffærabilun. Vírusinn smitast milli manna meðal annars í jarðarförum þeirra sem hafa látist af hans völdum. Rúmlega helmingur þeirra sem smitast af ebóla-vírusnum deyr. - bj Nærri 600 smitast af ebóla-vírusnum í þremur Afríkuríkjum: Ebóla-faraldurinn stjórnlaus

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.