Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 21
BÍLRÚÐUR MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Kynningarblað Rúðuskipti, viðgerðir, tryggingar, þjónusta og hugmyndabílar framtíðar. Bílrúðan er rótgróið fyrirtæki í mið-bænum en þar er skipt um allar teg-undir bílrúða og hægt að panta tíma með eins dags fyrirvara. Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyr- irtæki,“ segir Jakob Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Bílrúðunnar, eins elsta starfandi fyrirtækis á sviði bílrúðuskipta á Íslandi. „Við f lytjum inn, skiptum um og gerum við rúður,“ segir Jakob og tekur fram að nóg sé að panta tíma hjá Bílrúð- unni með eins dags fyrirvara. Skipt sé um rúðurnar samdægurs en það taki fjóra til fimm klukkutíma. Jakob segir að þegar Bílrúðan var stofn- uð árið 1972 hafi fyrirtækið smíðað rúð- urnar sjálft. Síðustu tuttugu árin hafi það flutt þær inn. „Þetta voru orðnar svo stór- ar og flóknar rúður,“ segir Jakob en Bílrúð- an flytur inn rúður frá Sant-Gobain Sekurit sem er að hans sögn „einn stærsti „orginal“ bílrúðu framleiðandinn í heiminum í dag“. Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður. „Við erum með rúður á lager í allar bíltegund- ir. Svo getum við útvegað alls konar rúður með skömmum fyrirvara ef við eigum þær ekki,“ segir Jakob og bætir við að á Bílrúð- unni sé einungis notað viðurkennt efni. Hann lýsir svo viðgerðum á skemmdum á rúðum: „Þegar gert er við minniháttar skemmdir á rúðunum fellur eigin áhætta niður og þá þarf eigandi ekki að borga neitt. Það er engin sjálfsábyrgð á því,“ upplýsir hann en Bílrúðan er viðurkennd af öllum tryggingafélögunum. Hverjir leita helst til ykkar? „Það eru bæði einstaklingar og fyrirtæki. Við sinn- um mörgum stórum bílaumboðum og flestum stærstu bílaleigunum,“ segir Jakob en á verkstæðinu starfar einungis menntað fagfólk. „Við leggjum mikla áherslu á það að allir séu menntaðir í því sem þeir eru að gera. Framrúðurnar eru burðarvirk- ið í bílnum þegar lent er í tjóni, svo þetta þarf að vera vel gert,“ segir Jakob. „Við erum líka réttingaverkstæði og málning- arverkstæði þannig að við getum gert svo mörgu skil. Við erum alhliða réttingaverk- stæði.“ Bíl rúðan er til húsa að Grettisgötu 87 í Reykjavík. „Við erum á Grettisgötunni, milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs, alveg við Hlemm. Við erum á góðum stað og með nóg af bílastæðum.“ Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.bilrudan.is og í símum 552 5780 og 552 5755. Allar gerðir af rúðum í boði Nóg er að panta tíma með eins dags fyrirvara hjá Bílrúðunni, að sögn Jakobs. Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyrirtæki sem er við Grettisgötu í Reykjavík og nóg er af bílastæðum hjá fyrirtækinu. Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.