Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 18
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kolli@365.is, s. 512 5447
KOLUR 305 Borðlampann kynnti Anna
Þórunn á liðnum HönnunarMars í Epal.
Myndir/Anna Þórunn
LANDFESTAR Lítið akkeri á lampafæt-
inum heldur utan um snúruna.
ANNA ÞÓRUNN
Anna keyrir daglega
fram hjá höfninni í
Hafnarfirði og sótti
innblástur þangað við
hönnun lampans.
MYND/ANNA ÞÓRUNN
LÝSING Lampinn lýsir bæði niður og upp
í gegnum lokið á skerminum. Til stendur
að útfæra lampann frekar í marmara.
Ég flutti í blessaðan Hafnar-fjörðinn fyrir tveimur árum og keyri nánast daglega
meðfram sjónum og höfninni.
Þegar ég ákvað að hanna lampa
sótti ég innblástur þangað,“ segir
Anna Þórunn Hauksdóttir vöru-
hönnuður en hún kynnti á liðn-
um HönnunarMars borðlampann
Kol 305.
Lampinn er úr málmi og kross-
við og segir Anna takmarkað
efnisval á Íslandi hafa haft sitt að
segja í hönnunarferlinu.
„Það verður að horfa í úr
hvaða efnum hægt er að fram-
leiða hér á landi og þar liggur
málmur beinast við. Ég fór því
að skoða skipin og togarana og
öll samskeyti á lampanum eru
gróf, líkt og á skipum. Skermur-
inn er hallandi, eins og skip að
kljúfa öldurnar. Togarar höfðu
í raun aldrei höfðað til mín en
eftir rannsóknarferlið finnst mér
þeir svo fallegir. Mig dauðlang-
aði bara út á sjó en það varð þó
ekki af því,“ segir Anna Þórunn
hlæjandi.
Lampinn lýsir bæði niður
og upp í gegnum gat á lokinu
og einnig er hægt að taka lokið
af skerminum. Á döfinni er að
útfæra lokið og litla „akkerið“ á
lampafætinum úr marmara. Akk-
erið hefur það hlutverk að halda
utan um snúruna og eignar Anna
manninum sínum þá útfærslu.
„Hann var orðinn svo þreyttur
á hvað langt var í rofann á nátt-
lampanum að hann var farinn að
vefja snúrunni utan um fótinn á
lampanum.
Mér fannst það ekkert sérstak-
lega smart og fór að velta fyrir
mér hvernig hægt væri að leysa
málið. Þannig varð hringurinn
til, hann vísar í landfestar og í
akkeri,“ útskýrir Anna. Maðurinn
hennar á heiðurinn af fleiru en
Anna segir ýmislegt hafa verið á
hann lagt við hönnun og smíði
lampans. „Hann skar sig illa á fæti
á stálprufum sem ég hafði lagt á
gólfið þegar við vorum að spek-
úlera í samsetningum og þurfti að
sauma fimmtán spor. Nafn lamp-
ans er því tileinkað honum en
maðurinn minn er Ítali og Kolur
þýðir maður sem er dökkur yfir-
litum. 305 er svo afmælisdagurinn
hans,“ útskýrir Anna.
Nánar má forvitnast um
hönnun Önnu Þórunnar á
www.annathorunn.is.
■ heida@365.is
KLÝFUR ÖLDURNAR
ÍSLENSK HÖNNUN Vöruhönnuðurinn Anna Þórunn Hauksdóttir kynnti nýjan
borðlampa á liðnum HönnunarMars, Kol 305. Togaraútgerð í Hafnarfirði var
innblásturinn að baki lampanum.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
fonix.is Hátúni 6a 105 Reykjavík S. 552 4420
HEIMILISTÆKJADAGAR
Í
20% AFSLÁTTUR