Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 30. júní 2014 | SPORT | 27 Nú í 1/2 lítra umbúðum E N N E M M / S IA • N M 59 75 5 FÓTBOLTI „Hann er í sama gæða- flokki og Diego Maradona,“ sagði Oscar Tabarez, landsliðsþjálfari Úrúgvæ, eftir að lið hans var sleg- ið úr leik í 16-liða úrslitum HM í Brasilíu á laugardagskvöldið. Hinn 22 ára James Rodriguez hafði farið á kostum og skorað bæði mörkin í nokkuð öruggum 2-0 sigri Kól- umbíumanna sem um leið tryggðu sér sæti í fjórðungsúrslitum HM í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar. Rodriguez er markahæsti leik- maður keppninnar með fimm mörk í fjórum leikjum. Þar að auki hefur hann auga fyrir sannkölluð- um glæsimörkum en fyrra mark- ið hans gegn Úrúgvæ fer í sögu- bækurnar sem eitt fallegasta mark annars frábærrar keppni í Brasilíu hingað til. James hefur skorað í hverjum einasta leik Kólumbíu á HM og þar að auki lagt upp tvö til viðbótar. Næst verður það undir gestgjöf- unum í Brasilíu komið að stöðva þennan töframann. Liðin mætast í fjórðungsúrslitum á föstudags- kvöld klukkan 20.00. Úr skugga Falcao Hann er á mála hjá AS Monaco í Frakklandi en þangað kom hann fyrir tæpa sjö milljarða króna (45 milljónir evra) frá Porto í Portúgal fyrir ári. Meira fór fyrir félaga- skiptum annars Kólumbíumanns til Monaco það sumar en sóknar- maðurinn Falcao hefur hingað til verið talinn skærasta stjarna kól- umbíska landsliðsins. Falcao sleit hins vegar kross- band í hné í janúar og þrátt fyrir hetjulega baráttu náði hann ekki að jafna sig í tæka tíð. Óttuðust margir að fjarvera hans myndi veikja lið Kólumbíu til muna en James hefur nú margsýnt að þær áhyggjur reyndust óþarfar. Í viðtölum við fjölmiðla eftir sig- urinn á Úrúgvæ sagði Rodriguez að það ættu allir að leyfa sér að dreyma um að ná langt – það hafi hann gert. „Það er ekki auðvelt að afreka það sem ég hef gert. En það er mín skoðun að það sé allt hægt ef maður á sér draum og gerir allt sem maður getur til að láta hann rætast. Maður þarf bara að leggja nógu mikið á sig,“ sagði kappinn. Ótrúlegur skilningur Jose Pekerman, landsliðsþjálf- ari Kólumbíu, er maðurinn á bak við árangur liðsins og lofaði hann einnig sinn mann í hástert. „Ég hef á mínum langa ferli verið með marga leikmenn í mínum liðum sem hafa búið yfir einstökum hæfileikum. En það sem hefur komið mér mest á óvart er að hann virðist ekki eiga í neinum vandræðum með að skilja ákveðna þætti í þessari íþrótt sem tekur aðra knattspyrnumenn mörg ár að læra,“ sagði Pekerman. Brasilía hafði naumlega betur gegn Síle í 16-liða úrslitunum og þarf líklega að spila talsvert betur gegn Rodriguez og félögum til að komast áfram í undanúrslitin. Sér í lagi þar sem miklar vænting- ar eru gerðar til heimamanna í mótinu. „Það er engin pressa á okkur,“ sagði Rodriguez. „Brasilía á auð- vitað frábæra leikmenn en við getum líka verið hættulegir. Þetta verður fallegur knattspyrnuleik- ur og ótrúlegt fyrir okkur að taka þátt í honum.“ eirikur@frettabladid.is Kólumbíska undraverkið James Rodriguez hefur slegið í gegn á HM í Brasilíu og verið í aðalhlutverki í mögnuðu kólumbísku land- sliði sem er komið í 8-liða úrslit í fyrsta sinn. ➜ Fæddur í Cucuta, Kólumbíu, 12. júlí 1991. ➜ Hóf feril sinn hjá B-deildarliði Envigado í heimalandinu en hélt til Banfield í Argentínu árið 2008, þá sautján ára gamall. ➜ Eftir eitt og hálft ár í Argentínu var hann seldur til Porto þar sem hann vann samtals átta titla á þremur árum, þar af deildarmeistaratitilinn öll þrjú árin. ➜ Hann var valinn besti leikmaður portúgölsku úrvalsdeildarinnar árið 2012, tvítugur að aldri. Hann er yngsti leikmaðurinn frá upphafi sem hefur hlotið þessa nafnbót. ➜ Rodriguez var aðeins 21 árs gamall þegar franska liðið AS Monaco keypti kappann á 45 milljónir evra. Hann varð næstdýrasti leikmaður portúgölsku deildarinnar frá upphafi. Staðreyndir um James Rodriguez FRÁBÆR James Rodriguez er nú þegar búinn að skora jafn mörg mörk (fimm) og markahæstu menn HM 2010 gerðu í allri þeirri keppni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY TENNIS Skotinn Andy Murray seg- ist njóta þess að spila á Wimble- don-mótinu í tennis þó svo að miklar kröfur séu gerðar til hans. Í fyrra varð hann fyrsti Bretinn í 77 ár til að fagna sigri í einliða- leik karla á mótinu en þrátt fyrir að meiðsli hafi gert honum erf- itt fyrir undanfarna mánuði ætli hann sér alla leið aftur nú. „Ég nýt þess að vera tauga- óstyrkur og óttast ekki þá tilfinn- ingu. Mér finnst að ég nái alltaf mínu besta fram þegar pressan er sem mest á mér,“ sagði hann en Murray hefur ekki tapað lotu á mótinu til þessa og unnið alls sextán leiki í röð á Wimbledon. Þó eru flestir sterkustu tenniskapp- ar heims, með þá Novak Djokovic, Rafael Nadal og Roger Federer fremsta í flokki, enn meðal kepp- enda. Mun óvæntari tíðindi hafa átt sér stað í einliðaleik kvenna en efstu tvær konur heimslistans – hin bandaríska Serena Williams og Li Na frá Kína – eru báðar fallnar úr leik. Sýnt verður beint frá undanúr- slitum og úrslitum karla og kvenna á Stöð 2 Sport síðar í vikunni. - esá Murray ætlar sér að verja titilinn Síðari keppnisvikan á stærsta tennismóti ársins, Wimbledon-mótinu, hefst í dag. Á GAMANSÖMUM NÓTUM Murray með grínistanum Ricky Gervais. GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.