Fréttablaðið - 30.06.2014, Page 21
BÍLRÚÐUR
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014
Kynningarblað
Rúðuskipti, viðgerðir,
tryggingar, þjónusta og
hugmyndabílar framtíðar.
Bílrúðan er rótgróið fyrirtæki í mið-bænum en þar er skipt um allar teg-undir bílrúða og hægt að panta tíma
með eins dags fyrirvara.
Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyr-
irtæki,“ segir Jakob Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Bílrúðunnar, eins elsta
starfandi fyrirtækis á sviði bílrúðuskipta
á Íslandi. „Við f lytjum inn, skiptum um
og gerum við rúður,“ segir Jakob og tekur
fram að nóg sé að panta tíma hjá Bílrúð-
unni með eins dags fyrirvara. Skipt sé um
rúðurnar samdægurs en það taki fjóra til
fimm klukkutíma.
Jakob segir að þegar Bílrúðan var stofn-
uð árið 1972 hafi fyrirtækið smíðað rúð-
urnar sjálft. Síðustu tuttugu árin hafi það
flutt þær inn. „Þetta voru orðnar svo stór-
ar og flóknar rúður,“ segir Jakob en Bílrúð-
an flytur inn rúður frá Sant-Gobain Sekurit
sem er að hans sögn „einn stærsti „orginal“
bílrúðu framleiðandinn í heiminum í dag“.
Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og
afturrúður ásamt því að gera við rúður. „Við
erum með rúður á lager í allar bíltegund-
ir. Svo getum við útvegað alls konar rúður
með skömmum fyrirvara ef við eigum þær
ekki,“ segir Jakob og bætir við að á Bílrúð-
unni sé einungis notað viðurkennt efni.
Hann lýsir svo viðgerðum á skemmdum
á rúðum: „Þegar gert er við minniháttar
skemmdir á rúðunum fellur eigin áhætta
niður og þá þarf eigandi ekki að borga neitt.
Það er engin sjálfsábyrgð á því,“ upplýsir
hann en Bílrúðan er viðurkennd af öllum
tryggingafélögunum.
Hverjir leita helst til ykkar? „Það eru
bæði einstaklingar og fyrirtæki. Við sinn-
um mörgum stórum bílaumboðum og
flestum stærstu bílaleigunum,“ segir Jakob
en á verkstæðinu starfar einungis menntað
fagfólk. „Við leggjum mikla áherslu á það
að allir séu menntaðir í því sem þeir eru
að gera. Framrúðurnar eru burðarvirk-
ið í bílnum þegar lent er í tjóni, svo þetta
þarf að vera vel gert,“ segir Jakob. „Við
erum líka réttingaverkstæði og málning-
arverkstæði þannig að við getum gert svo
mörgu skil. Við erum alhliða réttingaverk-
stæði.“ Bíl rúðan er til húsa að Grettisgötu
87 í Reykjavík. „Við erum á Grettisgötunni,
milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs, alveg
við Hlemm. Við erum á góðum stað og með
nóg af bílastæðum.“
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni
www.bilrudan.is og í símum 552 5780 og
552 5755.
Allar gerðir af rúðum í boði
Nóg er að panta tíma með eins dags fyrirvara hjá Bílrúðunni, að sögn Jakobs. Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyrirtæki sem er við Grettisgötu í Reykjavík og nóg er af bílastæðum hjá fyrirtækinu.
Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður.