Fréttablaðið - 30.06.2014, Side 6
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu gömul er reggíhljómsveitin
Hjálmar?
2. Hvert á landið stendur til að fl ytja
Fiskistofu?
3. Í hvaða tveimur hljómsveitum
syngur söngkonan Salka Sól Eyfeld?
SVÖR
1. Tíu ára 2. Akureyri 3. Amaba Dama og
Reykjavíkurdætur
ÍRAK, AP Stjórnarherinn í Írak hélt
í gær áfram stórsókn í átt að borg-
inni Tíkrit sem hófst á laugardag.
Hart var barist um borgina í gær,
en í gærkvöldi voru vígamenn
ISIS-hryðjuverkasamtakanna enn
við stjórn í borginni.
ISIS tóku Tíkrit þann 11. júní, en
borgin er fæðingarborg Saddams
Hussein heitins, einræðisherra
landsins. Íbúar borgarinnar eru
flestir súnnítar, eins og vígamenn
ISIS, og hafa verið óánægðir með
stjórn Nuris al-Maliki, forsætis-
ráðherra Íraks, sem er sjíti.
Herþyrlur og skriðdrekar tóku
þátt í sókn stjórnarhersins, en
bandarískir ráðgjafar tóku þátt
í að skipuleggja hana. Vígamenn
ISIS hrundu árás stjórnarhersins
á laugardag, en harðir bardagar
stóðu yfir í allan dag í gær.
Qassim al-Moussawi, talsmaður
hersins, sagði í gær að aðgerðirn-
ar í Tíkrit hefðu verið skipulagð-
ar í nokkrum skrefum, og að þær
hefðu gengið samkvæmt áætlun.
„Öryggissveitirnar hafa náð á
sitt vald að mestu þeim svæðum
sem skilgreind voru í fyrsta stig-
inu, svo við höfum náð árangri,“
sagði al-Moussawi. „Nú er bara
tímaspursmál hvenær við náum
fullri stjórn á borginni.“
Bandarísk stjórnvöld hafa sent
til Íraks 180 af þeim 300 hernað-
arráðgjöfum sem tilkynnt hefur
verið að eigi að senda til landsins.
Þá hafa bandarískar herþotur og
ómönnuð flugför verið notuð til að
fylgjast með ferðum vígamanna
ISIS á jörðu niðri. - bj
Hart barist um Tíkrit eftir að íraski stjórnarherinn hóf stórsókn til að ná borginni úr höndum ISIS:
Vígamenn ISIS hrundu árás stjórnarhersins
FAGNA Íraskir hermenn halda á lofti
herteknum fána ISIS um 60 kílómetra
norður af Bagdad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Viðskiptavinir nokkurra
íslenskra fyrirtækja urðu varir
við það um helgina að gjaldfært
var á greiðslukort þeirra vegna
greiðslna sem tókust ekki.
Um er að ræða greiðslur sem
framkvæmdar voru á stuttu tíma-
bili síðastliðinn laugardag. Meðal
annars kom þetta niður á viðskipta-
vinum Atlantsolíu, sem auglýst
hafði sérstakt tilboð þennan dag.
„Það komu upp truflanir í sam-
skiptum milli aðila sem sjá um
að þjónusta dælulykil Atlantsolíu
og annarra sambærilegra aðila,“
segir Kristinn Wium, rekstr-
arstjóri hjá fyrirtækinu Point,
sem veitir þjónustu með posa og
greiðslusöfnun. Hann segir að enn
liggi ekki alveg ljóst fyrir hvað
hafi gerst.
„Þetta var tíu mínútna tímabil
þar sem truflanir voru í heimilda-
gjöfinni hvað þessa lykla varðar.
Það er verið vinna í að greina hvað
kom upp.“
Kristinn getur ekki sagt að
svo stöddu hvaða fleiri fyrirtæki
truflunin hafði áhrif á, né hversu
marga viðskiptavini.
Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Atlantsolíu, segir að leitast
verði við að koma til móts við þá
viðskiptavini sem fengu ekki rétt-
an afslátt vegna truflunarinnar.
- bá
Notendur dælulykla og greiðslukorta lentu í vandræðum um helgina:
Óvart rukkaðir vegna truflana
TÓKU BENSÍN Truflunin kom meðal
annars niður á notendum dælulykils
Atlantsolíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Öfgaflokkar frá Dan-
mörku og Finnlandi eru meðal
þeirra sem gengu í mánuðinum
til liðs við þingflokk Samtaka evr-
ópskra íhaldsmanna og umbóta-
sinna (AECR), samtaka sem Sjálf-
stæðisflokkurinn er meðal annars
aðili að.
AECR varð til árið 2009 þegar
Breski íhaldsflokkurinn sagði
sig úr Evrópska þjóðarflokknum,
samtökum hófsamra hægriflokka
(EPP), vegna ágreinings um völd
og ítök Evrópusambandsins. Sjálf-
stæðismenn hafa átt aðild að sam-
tökunum frá því í nóvember 2011,
en þeir áttu áður aðild að EPP.
Í kjölfar kosninga til Evrópu-
þingsins nú síðustu helgina í maí
gengu til liðs við þingflokk AECR,
sem kallast ECR, fjórir þingmenn
Danska þjóðarflokksins og tveir
þingmenn Finnska flokksins, sem
áður kallaðist Sannir Finnar.
Þessir flokkar hafa oft verið
nefndir hægriöfgaflokkar og
berjast báðir fyrir harðlínustefnu
í innflytjendamálum. Ummæli
þingmanna þeirra hafa sætt mik-
illi gagnrýni og þótt bera vott um
kynþátta- og útlendingahatur.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
er einn þriggja varaforseta AECR.
„Það sem sameinar okkur í
AECR er fyrst og síðast Evrópu-
pólitíkin,“ segir Ragnheiður Elín.
„Það er ágætis samhljómur með
stefnuyfirlýsingu AECR og sjálf-
stæðisstefnunni. Þar er lögð
áhersla á frelsi einstaklingsins,
viðskiptafrelsi, lága skatta og þess
háttar, plús að vera ekki hlynnt
frekari Evrópusamruna. Það er
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sá
samleið með þessum samtökum.“
Ragnheiður segir að aðild nýrra
flokka að AECR verði væntanlega
rædd á stjórnarfundi samtakanna
í vikunni. Hún segir það alls ekki
svo að hvaða flokkar sem er geti
rúmast innan þessara samtaka.
„Flokkarnir þurfa að undirgang-
ast þá stefnu sem samtökin standa
fyrir,“ segir hún. „Þegar nýir
flokkar eru teknir inn, þá er þess
gætt afar vel að það sé ekki um
neina öfgaflokka að ræða, og engin
öfgasjónarmið. Við höfum hafnað
flokkum í gegnum tíðina sem hafa
sóst eftir aðild vegna slíkra hluta.“
Hún segir að þar sem Ísland
sé ekki í Evrópusambandinu hafi
Sjálfstæðisflokkurinn ekkert um
það að segja hvaða flokkar ganga
til liðs við þingflokkinn á Evrópu-
þinginu.
„En hvað sem öðru líður, þá er
ég fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sína
stefnu, sem er skýr og klár og laus
við allar öfgar í þessum efnum.“
bjarkia@frettabladid.is
Öfgaflokkar í félagi
með Sjálfstæðisflokki
Sjálfstæðisflokkurinn er aðili að evrópskum samtökum íhaldsmanna. Þingflokkur
samtakanna á Evrópuþinginu starfar nú með umdeildum þjóðernisflokkum en
Ragnheiður Elín Árnadóttir segir sjálfstæðismenn engu ráða um samstarfið.
Á EVRÓPU-
ÞINGINU
Þingflokkur
AECR hefur
mátt sæta
gagnrýni fyrir
samstarf sitt
og þjóðernis-
flokka frá
Danmörku
og Finnlandi.
NORDICPHOTOS/AFP
Þegar
nýir flokkar
eru teknir
inn, þá er
þess gætt afar
vel að það sé
ekki um
neina öfgaflokka að ræða.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
einn þriggja varaforseta AECR
PAKISTAN, AP Foreldrar sautján
ára stúlku sem giftist án leyfis
þeirra myrtu dóttur sína og eig-
inmann hennar á föstudagskvöld
í Punjab-héraði í austurhluta Pak-
istan.
Muafia Bibi og eiginmaður
hennar, hinn þrítugi Sajjad
Ahmed, voru myrt í þorpinu
Satrah síðastliðinn föstudag. Að
sögn lögreglu bendir allt til þess
að foreldrar stúlkunnar, tveir
frændur hennar og afi hafi ráðist
að hjónunum og myrt þau. Þau
voru myrt með kjöthníf. Meintir
árásarmenn eru nú allir í haldi
lögreglu.
Asghar Ali, lögreglustjórinn
á svæðinu, segir að hjónin hafi
gengið í það heilaga 19. júní og að
fjölskyldan hafi lokkað þau heim
með því að segjast sátt við ráða-
haginn. - bþ
Giftust án samþykkis:
Voru myrt af
fjölskyldunni
ÚKRAÍNA, AP Petro Porosjenko,
forseti Úkraínu, freistaði þess
í gær að ná friðsamlegri lausn
á átökum við aðskilnaðarsinna
í austurhéruðum landsins með
símafundi með Vladimír Pútín
Rússlandsforseta í gær.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, og Francois Hollande, for-
seti Frakklands, tóku einnig þátt
í símafundinum, sem stóð í tvær
klukkustundir.
Leiðtogar Evrópusambandsins
hafa krafið Rússa og aðskilnaðar-
sinna um aðgerðir til að tryggja
frið í Úkraínu, og hafa hótað
frekari refsiaðgerðum verði ekki
brugðist við.
Í yfirlýsingu frá Hollande um
fundinn sagði að þar hefðu Rúss-
ar og Úkraínumenn verið hvattir
til að vinna að því sameiginlega
að uppfylla skilyrði ESB. - bj
ESB hótar harðari aðgerðum:
Ræddu frið
á símafundi
VEISTU SVARIÐ?