Fréttablaðið - 30.06.2014, Síða 16
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
RAGNHILDUR HELGADÓTTIR
lést 14. júní á dvalarheimilinu Grund.
Útför hennar verður gerð frá Neskirkju
við Hagatorg mánudaginn 30. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Helgi B. Thoroddsen
Sigrún B. Bergmundsdóttir
Bergmundur Bolli og Jóhannes
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
STEFANÍA INGIBJÖRG
PÉTURSDÓTTIR
lést fimmtudaginn 26. júní á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Páll Bragi Kristjónsson
Jórunn Pálsdóttir Þórarinn Stefánsson
Þórður Pálsson Kristín Markúsdóttir
Rakel Pálsdóttir Óskar Sigurðsson
Kristján L. Loðmfjörð Pálsson Tinna Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Sápuóperan Leiðarljós eða „Guiding
Light“ er Íslendingum að góðu kunn.
Vanessa Chamberlain, Billy Lewis, Reva
Shayne og Ross Marler eru þekkt nöfn
í hugum margra. Samkvæmt Heims-
metabók Guinness er Leiðarljós sú
sápuópera sem var lengst í framleiðslu
og er lífseigasti dramaþáttur sjónvarps-
sögunnar. Leiðarljós gerist í Springfield
í Bandaríkjunum. Í þáttunum er fjallað
um ástir, hatur, átök og sættir á milli
fjölskyldna og vina. Höfundur Leiðarljóss
er Irna Phillips og byggði hún þættina á
eigin lífsreynslu.
Leiðarljós byrjaði sem útvarpsþáttaröð
árið 1937 áður en hún færðist yfir í sjón-
varpið 30. júní 1952. Titillinn „Guiding
Light“ á nafn sitt að rekja til lampa í
lesstofu dr. John Ruthledge sem var ein af
aðalpersónunum í þáttaröðinni þegar hún
hóf göngu sína árið 1937.
Leiðarljós var einstaklega vinsæl sápu-
ópera og hefur unnið til fjölda verðlauna
á sínum langa ferli. Þættirnir voru á dag-
skrá RÚV frá árinu 1995 til 2012 og átti
tryggan hóp áhorfenda enda voru sýndir
rúmlega 4.200 þættir allt í allt hérlendis.
Leiðarljós er sú leikna þáttaröð sem
hefur verið sýnd lengst í sjónvarpi í heim-
inum, eða í 57 ár, en áhorf fór dvínandi á
nýju árþúsundi og árið 2012 var fram-
leiðslunni hætt.
ÞETTA GERÐIST 30. JÚNÍ 1952
Leiðarljós byrjar í sjónvarpi
MERKISATBURÐIR
1232 Antoníus frá Padúa, verndardýrlingur týndra hluta, er tek-
inn í heilagra manna tölu.
1564 Stóridómur samþykktur á Alþingi.
1579 Í Bæ á Rauðasandi er mannrán framið er erlendir hval-
veiðimenn ræna Eggerti Hannessyni sýslumanni og heimta fyrir
hann lausnargjald.
1594 Morðbréfamálið: Fjögur bréf sem hermdu morð upp á Jón
Sigmundsson lögmann eru dæmd fölsuð á Alþingi.
1742 Sunnefumál: Hans Wium sýslumaður dæmir systkinin Sun-
nefu Jónsdóttur og Jón Jónsson Sunnefubróður til dauða fyrir
sifjaspell.
1856 Jerome Napóleon prins, bróðursonur Napóleons Frakka-
keisara, kemur til Íslands á herskipi með fylgdarliði.
1862 Eldgos hefst vestan Vatnajökuls og stendur í tvö ár. Eld-
stöðin heitir Toppgígar og hraunið sem rann heitir Tröllahraun.
1874 Skólapiltar Lærða skólans mótmæla latneskum stílum
með því að halda brennu vestur á Melum.
1910 Laufey Valdi-
marsdóttir verður
fyrst íslenskra kvenna
til að ljúka stúdents-
prófi frá Lærða skól-
anum í Reykjavík.
1934 Nótt hinna
löngu hnífa í Þýska-
landi. Blóðugar hreins-
anir innan nasista-
flokksins.
1968 Kristján
Eldjárn er kjörinn
forseti Íslands.
1990 Kvennahlaup ÍSÍ
haldið í fyrsta sinn og
er hlaupið á sex stöð-
um.
1994 Kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar,
Bíódagar, er frumsýnd.
2005 Spánn heimil-
ar hjónabönd samkyn-
hneigðra.
„Við köllum þetta Reykjavík Safari,
sem er árleg ganga þar sem gengið er
um miðbæinn og menningarstofnanir
Reykjavíkurborgar kynntar á ýmsum
tungumálum,“ segir Bergsveinn Þórs-
son, verkefnastjóri hjá Borgarsögusafni
Reykjavíkur, spurður um menningar-
gönguna sem fram fer á fimmtudags-
kvöldið, 3. júlí. „Við erum að reyna að
ná til íbúa höfuðborgarsvæðisins af
erlendum uppruna og kynna þeim hvað
stendur til boða hjá þessum stofnunum.
Við komum við á Listasafni Reykjavík-
ur, Landnámssýningunni, göngum um
Lækjargötuna og stoppum hjá Stjórn-
arráðinu, það er komið við hjá Hörpu
og talað um hana. Það er sem sagt bæði
verið að segja frá sögulegum húsum og
stöðum og svo þessum menningarstofn-
unum.“
Gangan skiptist í sex hópa eftir
tungumálum og í ár fara kynning-
arnar fram á íslensku, ensku, pólsku,
arabísku, víetnömsku og frönsku. „Við
reynum að breyta því hvaða tungu-
mál eru í boði á hverju ári og í ár
bjóðum við til dæmis í fyrsta
skipti upp á kynningu á arab-
ísku,“ segir Bergsveinn. „Gang-
an hefst við Grófarhús, aðalsafn
Borgarbókasafnsins, Tryggva-
götu 15 klukkan 20. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri mun að
þessu sinni leiða Reykjavík
Safarí af stað. Það leggja
sem sagt allir af stað í einu
en síðan skiptist hópurinn
upp eftir tungumálum og
sameinast síðan við Gróf-
arhúsið eftir um það bil
klukkustund. Þar verð-
ur boðið upp á hressingu
og skemmtun frá Sirkus
Íslands. Fimleikadúett
leikur listir sínar og býður þeim sem
þora að taka þátt.“
Þetta er sjöunda sumarið sem
boðið er upp á göngur af þessu tagi
en þær eru hluti af kvöldgöngu-
dagskrá menningarstofnana
Reykjavíkurborgar undir heitinu
Kvöldgöngur. Bergsveinn segir
þátttökuna yfirleitt hafa verið góða
og almenna ánægju hafa ríkt
með framtakið. Að þessari
göngu standa Borgarbóka-
safn, Listasafn og Borg-
arsögusafn Reykjavíkur
svo og Reykjavík – Bók-
menntaborg UNESCO.
fridrikab@frettabladid.is
Menningarstofnanir
borgarinnar kynntar
Menningarlífi ð í miðborginni verður kynnt á íslensku, ensku, pólsku, víetnömsku,
arabísku og frönsku í kvöldgöngu sem nýr borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, leiðir.
KYNNA MENNINGUNA Meðal
þeirra stofnana sem staldrað
er við er tónlistarhúsið Harpa.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BORGARSTJÓRINN
LEIÐIR Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri mun leiða
gönguna fyrsta spölinn.