Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 35
KYNNING − AUGLÝSING Bílrúður30. JÚNÍ 2014 MÁNUDAGUR 13 TILBOÐ ÚT JÚLÍ Nú í júlí mun Poulsen veita 50 prósenta afslátt af rúðu- þurrkum til þeirra sem koma í rúðuskipti eða viðgerð á rúðu. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins, poulsen.is, eða í síma 530 5900. EF RÚÐA ER BROTIN Í BÍLNUM ÞÍNUM ● Hringir þú í Poulsen í síma 530 5900 og pantar tíma í bílrúðuskiptum. ● Gefur þú upp bílnúmer og tryggingafélag bílsins. ● Mætir þú með bílinn á umsömdum tíma í Skeifuna 2. ● Færð þú hjálp við að fylla út tjónaskýrslu og skilur bílinn eftir. ● Sækir þú bílinn seinnipart dags og það eina sem þú þarft að greiða er sjálfsábyrgð. ● Ekur þú heim með splunku- nýja rúðu og gott útsýni. ● Ef aðeins þarf að gera við rúðu greiðir tryggingafélagið viðgerðina að fullu. ● Ef skemmd er minni en tíkall að stærð er oftast hægt að gera við rúðuna. Poulsen var stofnað af Dan-anum Valdimar Poulsen árið 1910 og er því orðið rúmlega aldargamalt fyrirtæki. Hjá Poulsen starfa í dag yfir 30 manns, hver með sína sérhæfingu, sem þjónusta bæði bíleigendur og bifreiðaverkstæði. Fullbúið bílrúðu- verkstæði Poulsen er í Skeifunni 2. Þjónusta alla Björgvin Ragnarsson, sölustjóri Poulsen, segir það ganga f ljótt fyrir sig að skipta um rúðu í bíl þegar fagmenn eru að verki. „Þetta er einfalt mál. Ef rúða er brotin í bílnum, hvort sem er að framan, aftan eða á hlið, pant- ar fólk tíma í bílrúðuskipti. Við fáum upplýsingar um númer bíls og hvar hann er tryggður. Mætt er með bílinn á umsömdum tíma, tjónaskýrslan fyllt út og hann skil- inn eftir. Bíllinn er svo tilbúinn seinnipart dagsins. Svona einfalt er þetta,“ segir Björgvin. Hvað kostnað varðar þarf ávallt að borga sjálfsábyrgð við bílrúðu- skipti en ef gera á við rúðu er það greitt að fullu af tryggingafélag- inu. Ef skemmdin er minni en um það bil tíkall að stærð er að sögn Björgvins oftast hægt að gera við rúðuna. „Af öryggisástæðum er þó ekki gert við skemmdir sem eru í beinni sjónlínu ökumanns. Þá er betra að skipta.“ Fagmennska í fyrirrúmi Verkstæði Poulsen hefur á að skipa faglærðu starfsfólki með margra ára reynslu. Meðal annars hefur það sinnt kennslu í bílrúðuísetn- ingum og bílrúðuviðgerðum úti um allt land. „Bí lrúðuíset ning er mik ið vandaverk og ekki sama hvern- ig hún er framkvæmd. Við höfum tileinkað okkur ákveðnar vinnu- reglur sem skara langt fram úr almennum vinnureglum. Það er trygging fyrir viðskiptavininn að vönduð vinnubrögð séu ávallt við- höfð og að viðgerðin muni standast tímans tönn.“ Gæði og vandvirkni Mikil áhersla er lögð á gæði, bæði í vörum og þjónustu. Poulsen flytur inn stærstu merkin í bílrúðum, AGC og Pilkington, sem er virtasti og umsvifamesti bílrúðuframleið- andi heims. „Þar sem við erum stærsti innflytjandi á bílrúðum, listum og smellum, ásamt vélum og tækjum til rúðuskipta, höfum við ávallt nýjustu tæki og beitum nýjustu aðferðum við rúðuskipti.“ Stærsti bílrúðuinnflytjandi landsins Fyrirtækið Poulsen er stærsti bílrúðuinnflytjandi landsins og býður upp á rúður í flestar gerðir bíla. Í Skeifunni 2 rekur Poulsen fullbúið bílrúðuverkstæði. Þar starfa fagmenn með margra ára reynslu. Mikil áhersla er lögð á gæði, bæði í vörum og þjónustu. Það er vandaverk að skipta um bílrúður. Starfsfólk Poulsen vinnur eftir ströngum vinnu- reglum sem tryggja að ávallt er vandað vel til verka. Poulsen flytur inn stærstu merkin í bílrúðum og býður upp á rúður í flestar gerðir bíla. Poulsen þjónustar bæði bíleigendur og bifreiðaverkstæði. Þar starfa fagmenn með áralanga reynslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.