Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGBílrúður MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 20144 Við leggjum mesta áherslu á framrúðuviðgerðir. Við sjáum líka um framrúðu- skipti en aðaláherslan er lögð á viðgerðirnar,“ segir Sigurður Ei- ríksson, eigandi Glerpró. Hjá fyrir- tækinu starfa menn með mikla reynslu en Sigurður sjálfur hóf störf við framrúðuviðgerðir árið 1994. „Þá var ég bara einn í þessu. Ég hóf störf á Sauðárkróki og var þar þangað til fyrir fjórum árum þegar við fluttum í bæinn.“ Fyrirtækið er nú staðsett á Hyrjar höfða 2 . Viðgerð á kostnað trygginga Sigurður segir almenning ekki átta sig á hversu mikinn hluta af rúðuskemmdum sé hægt að gera við. „Það má segja að það sé hægt að gera við bróðurpart af skemmd- um sem koma í rúður. Þótt það komi steinn í rúðuna sem myndar smásprungu þá er í flestum tilfell- um hægt að laga það,“ segir hann og bætir við að viðgerðin sé bíl- eigandanum að kostnaðarlausu. „Þetta er alfarið í boði trygginga- félaganna. Það er annað sem al- menningur veit oft ekki heldur og margir bíða því með að koma með bílinn í viðgerð þar til rúðan springur, en þá þarf að skipta um rúðu.“ Best að koma strax Sigurður segir því best að koma sem fyrst með bílinn í viðgerð ef sprunga kemur í rúðuna. Hann bætir þó við að vel sé hægt að gera við eldri sprungur. „Það er betra að fá þetta sem fyrst en við getum alveg gert við gamlar skemmdir líka. Þá er hins vegar hætta á að það hafi komist vatn eða óhrein- indi í skemmdina og því náum við aldrei alveg úr.“ Hann ítrek- ar að best sé að viðgerðin eigi sér stað áður en nokkur raki kemst í sprunguna. Í rúðunum er tvö- falt gler og á milli glerjanna ör- yggisfilma. Komist raki í hana getur hún gránað og þá verður grár blettur eftir í rúðunni. „Slíkt næst ekki úr, það er komið til að vera.“ Hægt er að setja svokallað- an rúðuplástur á skemmdina til að hindra að vatn og óhreinindi komist í hana. Einnig þola rúðu- skemmdir illa hitabreytingar og algengt er að rúðan springi út frá skemmdinni. Glerpró þjónustar bíla af öllum stærðum og gerðum en helstu viðfangsefnin eru rútur og stór- ir bílar. Sigurður telur aðalástæð- una fyrir því vera að hinn almenni bíleigandi gerir sér oft ekki grein fyrir annars vegar að hægt sé að gera við skemmdir í rúðum og hins vegar að það kosti hann ekki neitt. Mikilvægt er að engar skemmd- ir séu í sjónlínu ökumanns og oft þarf að skipta út rúðunni ef slík er raunin. Sigurður segir það þó ekki algilt. „Það fer eftir eðli skemmd- arinnar. Sumar skemmdir eru þess eðlis að þær hverfa algjör- lega eftir viðgerðina.“ Hröð þjónusta Sigurður segir framrúðuviðgerð- ir vandaverk en Glerpró leggur metnað í að vinna hratt og örugg- lega. „Yfirleitt erum við ekki leng- ur en klukkutíma frá því að bíllinn kemur inn til okkar og þangað til hann er tilbúinn. Eigandinn getur jafnvel bara sest inn og fengið sér kaffi hjá okkur á meðan,“ segir Sigurður brosandi. Á heimasíðu Glerpró, glerpro. is, er pöntunarkerfi fyrir bílrúðu- viðgerðir. Þar er tengill þar sem fólk skráir bílnúmer og símanúm- er og í framhaldi hefur fyrir tækið samband við viðkomandi. Einn- ig er hægt að hringja og panta tíma í síma 776 8600 eða hafa samband með tölvupósti á póst- fangið glerpro@gmail.com. „Svo getur fólk einfaldlega rennt við hjá okkur. Yfirleitt getum við farið strax í verkið,“ segir Sigurður og hvetur fólk til að líta við á Hyrjar- höfða 2. Hægt að gera við flestar skemmdir Glerpró ehf. er ungt fyrirtæki byggt á gömlum grunni, sem hefur sérhæft sig í framrúðu- og bílljósaviðgerðum frá árinu 1994. Sigurður Eiríksson, eigandi fyrirtækisins, segir almenning ekki gera sér grein fyrir hve stóran hluta af rúðuskemmdum sé hægt að gera við. Komist raki í rúðuskemmdina er hætta á að grár blettur myndist í rúðunni sem ómögulegt er að ná úr. Best er því að koma með bílinn í viðgerð sem fyrst. Sérstakan rúðuplástur má líma á skemmdina til að verja fyrir raka í milli- tíðinni. Rúðuviðgerðir eru vandasamt verk en starfsmenn Glerpró einsetja sér að vinna bæði hratt og vel. „Margir bíða með að koma með bílinn í viðgerð þar til rúðan springur en þá þarf að skipta um rúðu,“ segir Sigurður Eiríksson, eigandi Glerpró. MYNDIR/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.