Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 10
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 IÐNAÐUR Um tíu þúsund fermetra verk- smiðja sem myndi framleiða dísilolíu úr notuðum dekkjum gæti risið í Helguvík á næstu árum. Forsvarsmenn verkefnis- ins hafa skrifað undir viljayfirlýsingu við Reykjaneshöfn um lóð á iðnaðarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gera áætlanir þeirra ráð fyrir verksmiðju sem gæti framleitt um 40 milljónir lítra af dísilolíu á ári. Olían yrði framleidd fyrir innanlandsmarkað. Verkefnið ber vinnuheitið G2 en það hefur verið í undirbúningi í um eitt ár. Áætlaður byggingarkostnaður er um 4,5 milljarðar króna. Verksmiðjan mun búa yfir nýrri tækni sem breytir kurluðum gúmmídekkjum í dísilolíu í framleiðsluferli sem nefnist hitasundrun (e. pyrolysis) þar sem hiti orsakar umbreytingu efna úr einu formi í annað. Við framleiðsluna myndast einn- ig aska og gas. Verksmiðjan yrði að hluta til knúin með gasinu en einnig rafmagni. Askan yrði flutt út og seld í frekari iðn- aðarframleiðslu. Ingvar Eyfjörð, einn forsvarsmanna verkefnisins, staðfestir vilyrðin fyrir lóð í Helguvík. Hann segist ekki vilja tjá sig nánar um stöðu verkefnisins en tekur fram að það sé grænt, útblástur verksmiðjunnar verði lítill og að framleiðslan breyti meng- andi sorpi í umhverfisvænna eldsneyti. „Við erum að horfa á Helguvík því aðstæður þar eru mjög góðar. Þar er búið að byggja upp iðnaðarsvæði með höfn og öðrum innviðum sem hentar starfseminni vel,“ segir Ingvar. haraldur@frettabladid.is Verksmiðja sem framleiðir dísilolíu gæti risið í Helguvík Tíu þúsund fermetra verksmiðja sem myndi framleiða um 40 milljónir lítra af dísilolíu á ári gæti risið í Helgu- vík. Tækni þar sem kurluð gúmmídekk verða að dísilolíu yrði notuð til framleiðslunnar. Fengu vilyrði fyrir lóð. Við erum að horfa á Helguvík því aðstæður þar eru mjög góðar. Þar er búið að byggja upp iðnaðarsvæði með höfn og öðrum innviðum sem hentar starfseminni vel. Ingvar Eyfjörð, einn forsvarsmanna verkefnisins. Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti B ra n de n bu rg Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300. Við náum til fjöldans TEIKNING Búið er að frumhanna verksmiðj- una þar sem sjá má merki G2. HELGUVÍK Reykjaneshöfn hefur úthlutað lóðum undir tvö kísilver, vatnsverksmiðju og álver. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓLK Eiríkur Jónsson, doktor í lögfræði frá Háskóla Íslands, hefur fengið stöðu prófessors við lagadeild skólans. Þetta er samkvæmt ákvörðun rektors en hún er byggð á áliti dómnefndar og afgreiðslu fram- gangsnefndar Háskóla Íslands. Eiríkur hefur starfað sem sett- ur héraðsdómari og ritað þrjár bækur á sviði lögfræðinnar, auk þess að hafa skrifað á annan tug fræðigreina. Hann hefur einnig umsjón með kennslu við Laga- deild Háskóla Íslands. - nej Ákvörðun dómnefndar í hús: Eiríkur Jónsson prófessor við HÍ ÁGÆTUR Eiríkur vakti athygli árið 2006 þegar hann fékk ágætiseinkunn frá Har- vard-háskóla. MYND/HRÖNN FERÐAMÁL Tæpum fjórðungi fleiri erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júní í ár en í fyrra. Þeir voru samtals um 110.600. Aldrei hafa verið fleiri ferðamenn hér á landi í júní. Þetta kemur fram í talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Flestir voru Bandaríkjamenn eða 19,2 prósent af heildarfjölda ferðamanna í júní. Næstfjöl- mennastir voru Þjóðverjar sem voru 15,6 prósent af heild. - nej Ferðamönnum fjölgar ört: 23% aukning ferðamanna VIÐSKIPTI Samanburður á greiðslu- byrði heimilanna vegna húsnæð- iskostnaðar gefur skakka mynd af stöðu húsnæðiskerfanna, segir Gylfi Arnbjörnsson. Í Hagsjá Landsbankans í gær kom fram að samanburður á húsnæðiskostnaði á milli Norðurlanda bendir til þess að Danir greiða hlutfallslega langmest af ráðstöfunartekjum sínum í hús- næði. Íslendingar greiða minna en Norðmenn, Svíar og Danir, en Finn- ar greiða minnst. Þessar tölur hafa vakið athygli í ljósi þess hversu mikið ASÍ og félagsmálaráðherra hafa horft til danska kerfisins. „Við erum með 40 ára lán en Danir eru með þrjátíu ára lán. Það þarf svolítið að bera saman þenn- an mismun. Og líka það að vísi- tala Hagstofunnar reiknar meðal- greiðslubyrði heimilanna. Þeir sem búa í skuldlausu eru líka part- ur af vísitölu Hagstofunnar. Það er auðvitað líka mjög lág greiðslu- byrði þeirra. Þannig að þetta gefur skakka mynd af þessu,“ segir Gylfi. - jhh Tölur um greiðslubyrði húsnæðislána á Norðurlöndum gefa skakka mynd: Bera þarf saman lengd lána GYLFI ARNBJÖRNSSON Forseti ASÍ er talsmaður þess að Ísland taki upp danskt húsnæðiskerfi. SAMGÖNGUR Farþegar í flugi frá Keflavík til Bandaríkjanna þurfa ekki að reikna með töfum þrátt fyrir að öryggiskröfur hafi verið auknar vegna flugs til Banda- ríkjanna á sumum flugvöllum. „Það er ekki að vænta neinna breytinga fyrir farþega,“ segir Friðþór Eydal, upplýs- ingafulltrúi Isavia. Hann vill ekki gefa upp hvort óskað hafi verið eftir hertri öryggis- gæslu á Keflavíkurflugvelli. „Farþegarnir yrðu í öllu falli ekki varir við neitt, þó svo að einhver fyrirmæli hefðu komið.“ Fréttavefur BBC greinir frá því að öryggisgæsla hafi verið hert á sumum flugvöllum vegna flugs til Bandaríkjanna, þar með talið á nokkrum breskum flug- völlum. Þrátt fyrir aukna öryggisgæslu er ekki búist við „umtalsverðum“ töfum fyrir farþega, segir Patrick McLoughlin, samgönguráðherra Bretlands, í samtali við BBC. Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að hryðjuverkasamtök tengd al-Kaída og Jemen séu að hanna sprengjur sem eru sérstaklega hugsaðar til að smygla um borð í flugvélar. Samkvæmt upplýsingum BBC frá heima- varnarráðuneyti Bandaríkjanna eru aukn- ar öryggiskröfur viðbrögð við ógnum sem teknar séu alvarlega. - bj Öryggisgæsla aukin á flugvöllum víða í tengslum við flug til Bandaríkjanna: Engar breytingar fyrir farþega ENGAR TAFIR Verði öryggisgæsla aukin í flugi til Bandaríkjanna frá Keflavík munu farþegar ekki verða varir við það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Bílaleiga Kynnisferða er orðin umboðsaðili alþjóðlega bílaleigufyrirtækisins Enterprise Rent-a-Car á Íslandi. Enterprise Rent-A-Car er hluti af stærstu bílaleigu heims, Enterprise Holdings í St. Louis í Bandaríkjunum. Bílaleigan rekur 8.100 sölustaði um allan heim. „Í kjölfar samningsins mun merki Enterprise verða sýnilegt víða um land á næstu mánuðum,“ segir í tilkynningu Kynnisferða. - hg Nýr samningur Kynnisferða: Fékk umboðið fyrir Enterprise VIÐSKIPTI Óhagstæð vöruskipti Bráðabirgðatölur frá Hagstofu Íslands sýna að vöruskipti í júní voru óhagstæð um 7,7 milljarða. Þannig nam útflutn- ingur í mánuðinum 40,7 milljörðum króna á meðan innflutningur nam 48,4 milljörðum króna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.