Fréttablaðið - 04.07.2014, Qupperneq 26
FRÉTTABLAÐIÐ Íslenskar snyrtivörur. Lífið mælir með. Tinna Rún opnar fataskápinn. Sissa ljósmyndari. Geggjuð gúmmístígvél. Snyrtibuddan. Bloggarinn.
4 • LÍFIÐ 4. JÚLÍ 2014
FATASKÁPURINN TINNA
KRISTÓFERSDÓTTIR
Þegar ég var ung hélt ég að … ég vissi allt.
Núna veit ég þó … að ég veit ósköp lítið um allt. En
það er svo gott.
Ég mun eflaust aldrei skilja … hvað verður um
sokkana mína, kveikjarana og hárteygjurnar.
Ég hef engan sérstakan áhuga á … að nenna
þessari rigningu.
Karlmenn eru … ekki kettlingar.
Ég hef lært að maður á alls ekki að … gera eitt-
hvað þegar það er best að gera ekki neitt. Gullna regl-
an: Alltaf gera ekki neitt. (Þessari reglu er sérstaklega
beint til spennufíkla.) Höf. reglu: Frank Arthur Blöndahl.
Ég fæ samviskubit þegar ég … gleymi að name-
droppa Heklu og Ljónínu Ben í viðtölum … BÚMM.
Ég slekk á sjónvarpinu þegar … RÚV er með
kjaftæði sbr. spænska sápuóperan og Wallander.
Um þessar mundir er ég upptekin af … því að
búa til pilot-útvarpsþátt, skrifa ljóðabók og krota.
Ég vildi óska að fleiri vissu af … bókinni minni
10.01 Nótt sem er seld í Máli og menningu, Iðu og
Bóksölu stúdenta!
GERIR ÚTVARPSÞÁTT OG
LJÓÐABÓK OG KROTAR
TÍU SPURNINGAR ALMA MJÖLL ÓLAFSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Tinna Rún er mikið fyrir svart og velur sér oftast föt sem eru
þröng að neðan og víð að ofan.
Tinna er 24 ára starfsmaður í Suzie Q
og heldur úti tískublogginu tinnarun.
com. „Ég geng mest í svörtu og það er
alveg uppáhaldsliturinn minn. Sumir
vinir mínir ganga svo langt að kalla mig
gothara. Á móti gothinu kemur samt
óstjórnleg ást mín á öllu með kögri, ætli
ég sé ekki bara svartklæddur hippi? Ég
reyni þó að kaupa mér fl íkur í lit ein-
stöku sinnum, en þá eru það yfi rleitt litir
eins og hermannagrænn eða dökkblár.
Ég vel oftast þröngt að neðan og vítt að
ofan vegna þess mér fi nnst það henta
mínu vaxtarlagi best. Það sumartrend
sem ég gjörsamlega kolféll fyrir í ár eru
sandalar í Birkenstock-stílnum og luma
ég á einu pari með þykkum botni. Þá hef
ég notað óspart, bæði á táslunum og í
skemmtilegum sokkum undir.“
1
„Þessar eru glænýjar í fata-
skápnum. Kærastinn minn kom
með þessar heim úr vinnunni
fyrr í vikunni. Þær eru frá Nudie
og er nýtt snið frá þeim. Ég veit
ekki hvort okkar er ánægðara
með þær, en kærastinn minn
er algjör gallabuxnapervert og
Nudie er eitt af hans uppáhalds-
merkjum. Þær eru samt klárlega strax
komnar í uppáhald hjá mér líka.“
2
5
„Þetta fallega hálsmen
er frá Hildi Yeoman. Ég
ætlaði að gefa systur
minni gamla iPhone-inn
minn fyrir stuttu síðan,
hún tók það víst ekki í
mál að fá hann gefins
og kom færandi hendi
með þessa gersemi.“
4
„Þessir eru frá
New Balance og
voru hvorki meira né
minna en fjórða parið mitt frá þeim. Þess-
ir eru samt klárlega fallegastir af þeim
sem ég á, svart, leður og sjúklega þægi-
legir, ég bið ekki um meira.“
ÉG NÆRI
BODY
BUTTER
Ég er súper mjúk og góð blanda fyrir líkamann
þinn ef þú ert með þurra og mjög þurra húð.
Flott blanda með góðum innihaldsefnum eins
og Shea Butter og Argan olíunni sívinsælu.
Made in Italy
www.master-line.eu
Fæst í apótekum og Hagkaup
„Þessi jakki er frá meist-
aranum Alexander
Wang. Ég er svo ótrú-
lega hrifin af þessu
sporty lúkki. Hann er
léttur og þægilegur og
passar við nánast hvað
sem er. Systir mín fékk
þennan frá herra Wang
eftir myndatöku hjá
honum og hugsaði strax
til mín, hún er yndisleg.“
„Þennan keypti ég fyrir
nokkrum árum í H&M. Í
tvö ár hefur hann vald-
ið mér hugarangri en ég
hélt að ég hefði selt hann
í Kolaportinu í fyrra. Nei,
nei, elsku kjóllinn birt-
ist bara upp úr poka sem
fannst uppi á háalofti. Ég
var svo ótrúlega glöð að
finna hann og er strax
búin að ákveða hve-
nær ég ætla að klæðast
honum.“
3