Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 28

Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 28
FRÉTTABLAÐIÐ Íslenskar snyrtivörur. Lífið mælir með. Tinna Rún opnar fataskápinn. Sissa ljósmyndari . Geggjuð gúmmístígvél. Snyrtibuddan. Bloggarinn. 6 • LÍFIÐ 4. JÚLÍ 2014 aðist. Sissa flutti þá heim með ljós- myndaskírteinið og tvær litlar stelpur í farteskinu. „Pabbi Tinnu kom hingað með mér heim en var farinn sex mánuðum seinna. Sambandið var löngu búið en ég hélt í einhverja fjölskylduímynd sem mig langaði í enda búin að prufa að vera einstæð. En hann var ekki heppilegur kandídat í þá ímynd, því miður. Upphaflega, þegar ég komst að því að ég var ófrísk af Tinnu ætl- aði ég í fóstureyðingu. Kvöldið fyrir dreymdi mig svo Tinnu og að við værum þrjár saman, ég Erla og Tinna og það gekk allt vel. Þá ákvað ég að láta þetta ganga.“ Sissa og dæturnar tvær eru mjög samheldið þríeyki og hafa alltaf verið nánar. Hún er stolt af stelpunum sem eru, eins og móðirin, sjálfstæðar og sterkar. Erla Hlín er verslunarstjóri í Aftur á Laugavegi og Tinna Empera starfar sem sminka og hárgreiðslu- kona í New York. Þeim vegnar báðum mjög vel. Elskar að kenna Eftir að hafa unnið sjálfstætt í mörg ár eftir heimkomuna ákvað Sissa að stofna Ljósmyndaskólann sem hún rekur nú í félagi við fyrr verandi eigin mann sinn, ljósmyndarann Leif Rögnvaldsson. Hún er skólastjóri og hann framkvæmdastjóri. Aðspurð hvernig það gangi að reka skóla og vinna svona náið með fyrrverandi manni sínum svarar Sissa: „Við látum það ganga,“ segir Sissa og hlær. „Ég hef mikla unun af því að kenna og hef eignast fullt af góðum vinum hérna í skólanum, tengist öllum góðum böndum. Ég er samt líka ströng og læt vita ef mér líkar ekki eitthvað. Enda er það ein leið til að kenna fólki. Kenna fólki að taka gagn- rýni og gera betur. Það gerir maður ekki með því að klappa fyrir öllu.“ Sissa hefur unun af innanhúss- hönnun og það sést á útliti Ljósmynda- skólans. Sissa og Leifur sáu um að hanna útlitið sem minnir helst á stúdíó loft í New York þar sem búið er að spá í öllum smáatriðum. Það sama á við um skrifstofu Sissu þar sem hún situr í hálfopnu rými umvafin fjöl- skyldumyndum, póstkortum og upp- lýstum römmum af öllum stærðum og gerðum. „Mér finnst mikilvægt að prenta út myndir sem mér finnst fallegar og hengja upp á vegg svo ég sjái þær allt- af. Maður er ekki alltaf með myndirn ar í tölvunni fyrir framan sig og skoð ar þær sjaldan sem er sorglegt. Þegar Erla kom heim eftir að hafa verið úti hjá systur sinni í New York gaf ég henni box fullt af myndum sem ég hafði prentað út, allt Instagram- eða Facebook-myndir úr ferðinni sem hún hafði sent mér. Þetta fannst mér hún þurfa að eiga sem minningu.“ Ljósmyndun er list Blaða- og fréttaljósmyndun hefur aldrei heillað Sissu, sem var einnig fljót að leggja tískudrauminn á hill- una. Hún kynntist verkum banda- ríska ljósmyndarans Sally Mann í náminu og heillaðist. Nú er hún meira í skapandi ljósmyndun, óhefðbundn- um fjölskyldu- og barnaljósmyndum. Hún segist sjaldan taka að sér nýja viðskiptavini, er með sína föstu sem núna eru farnir að mæta með barna- barnabörnin. Sissa hefur haldið tvær sýningar og stefnir í fleiri, í fyrra hélt hún sýn inguna Honesty, sem fjallaði um með virkni. „Það var eitthvað sem stóð mér nærri. Meðvirkni er eitthvað sem ég hef unnið með lengi sjálf og fannst IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga. M ér fannst alltaf töff og spennandi að vera ljósmyndari. Mig langaði að vinna við tísku því það var svo töff,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, sem flestir þekkja betur sem Sissu ljósmyndara, hlæjandi. Sissa er fædd og uppalin í Vest- urbæ Reykjavíkur og hefur alla tíð verið „miðbæjarrotta“. Hún er lærður þroskaþjálfi, starf sem hún hafði verið að vinna við síðan hún var unglingur. „Ég var kringum 15-16 ára ald- urinn þegar ég byrjaði að vinna sem þroskaþjálfi og vann á Skála- túnsheimilinu í mörg ár. Eftir út- skrift fór ég á unglingaheimilið í Kópavogi og þar fannst mér æðis- legt að vinna. Svo fékk ég bara nóg. Ég var orðin þreytt á að takast á við vandamál annarra allan daginn og langaði að breyta til. Ég vildi byrja að skapa og ljósmyndun varð fyrir valinu,“ segir Sissa en hún viður- kennir að það hafi verið heljarinnar u-beygja í lífinu. Margir höfðu efa- semdir um þessa breytingu á sínum tíma en ljósmyndun var þá ekki al- geng starfsgrein á Íslandi. „Það voru margir sem sögðu mér að ég gæti aldrei unnið sem ljósmyndari, að það væri ekki hægt að læra að vera ljósmyndari því það væru meðfæddir hæfileik- ar. Sem er bölvuð vitleysa. Auð- vitað er hægt að læra að verða ljós- myndari eins og hvert annað starf sem lærist. Það er auðvitað kost- ur að vera með eitthvað í sér, smá tilfinningu fyrir hlutunum. Ég hef alltaf haft það. Ég ætlaði fyrst að fara í innanhússarkitektúr en því fylgir svo mikil stærðfræði og ég er skelfileg í henni.“ Talaði sig inn í skólann Sissa ákvað að fara út að læra ljósmyndun enda ekki mikið um menntun í þeim geira í boði á Ís- landi á þessum tíma. Brooks Inst- itute í Santa Barbara varð fyrir val- inu. Fínn skóli með himinhá skóla- gjöld sem Sissa lét þó ekki á sig fá. „Ameríka varð fyrir valinu. Pabbi bjó í Palo Alto og mig lang- aði flytja mig nær honum. Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir fjar- lægðinni þá en frá pabba til Santa Barbara var um átta tíma keyrsla. Þannig að maður er ekki mikið að flakka á milli. Ég er mjög ánægð að hafa valið þennan stað þó að skólinn hafi kannski verið of fer- kantaður fyrir minn smekk, tækni- legur og ekki beint skapandi. Ég kynntist samt frábæru fólki og þetta var frábær staður að búa á. Svo fann ég svona minn stað í ljós- myndum enda skiptir það mestu í svona skapandi námi að vinna, gera, læra af mistökum og halda áfram,“ segir Sissa sem var 27 ára þegar hún byrjaði í náminu, þá ófrísk og einstæð. „Þetta þótti svolítið svakalegt á sínum tíma og á þessum stað. Ég fékk oft símhringingar þar sem fólk var að spyrja mig út í það hvernig ég gæti þetta og fá ráð- leggingar. Mér var meira að segja ráðlagt að ljúga og segja að maður- inn minn væri í hernum. Það þótti ekki passa saman, einstæð móðir í Brooks, þessum fína skóla. Ég gerði það samt ekki,“ rifjar hún upp, létt í bragði. Sissa var harðákveðin í að fara í þetta nám og þegar hún féll í hinu alræmda TOEFL-prófi, sem er skylda hjá mörgum erlendum skól- um fyrir inngöngu, lét hún ekki deigan síga. „Ég er skelfilega lesblind og sérstaklega þegar þetta snýst um hraða eins og í þessu prófi. Svo ég tók það aftur en þá var skólinn byrjaður og ég spurði bara hvort ég mætti ekki koma út og byrja því mér hafi gengið svo vel í prófinu. Þannig að þegar niðurstöðurnar úr seinna prófinu komu sem sýndu að ég hafði fallið aftur komu kenn- ararnir mér til varnar enda gat ég alveg talað og skilið ensku og ég fékk að halda áfram. Það er þessi lesblinda sem hrjáir svo marga sem eru í skapandi greinum, ég get næstum bent á þá nemendur sem eru hjá mér og þjást af lesblindu.“ Kraftaverkabarnið Eflaust hefðu margar einstæðar, nýbakaðar mæður ekki lagt í þetta ferðalag. Fyrir Sissu var það samt aldrei spurning. „Það var búið að segja við mig að ég gæti ekki eignast börn og ég trúði því. Ég hafði fengið stíflur í eggjastokkana og einhver læknir sagði ófrjósemi vera afleiðingu af því. Eftir að ég komst inn í Brooks fékk ég að vita að ég væri ófrísk og ég hugsaði að ég gæti ekki eytt þessu kraftaverkabarni og hélt áfram. Mig langaði í bæði, móð- urhlutverkið og ljósmyndunina. Margir höfðu ekki trú á að ég gæti látið þetta ganga upp og reyndu að fá mig ofan af því en það fékk mig til að vilja þetta enn þá meira og vera harðákveðnari í að geta þetta.“ Sissa segir þessa hugsun hafa einkennt líf sitt, að hún tvíeflist við mótlæti og trúir því að allir geti gert það sem þeir vilja. „Ég sé eitthvert fjall og efst á toppnum er takmarkið, í þessu tilfelli skírtein- ið, og ég bara ákvað að ég skyldi komast þangað. Ég trúi því að allt sé hægt ef maður vill það, maður kemst á toppinn. Stundum tekur það lengri tíma en maður ætlar sér og stundum þarf maður að fara einhverja krókaleið en ef maður gefst ekki upp hefst það á endan- um.“ Erla Hlín, eldri dóttir Sissu, fæddist 1987 og bjuggu þær mæðg- ur saman í Kaliforníu á meðan á námi Sissu stóð. Seinasta árið í náminu, þremur árum seinna, varð hún svo aftur ólétt, af yngri dótt- ur sinni Tinnu Emperu, sem var fimm daga þegar Sissa útskrif- MYNDIR/SIGRÍÐUR ELLA FÖRÐUN/MARGRÉT ÁSTA LINSUNNI FYLGIR VALD Sigríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Sissa ljósmyndari, tók ung u-beygju í lífi nu til að vinna sem ljósmyndari. Einstæð móðir með tvö börn lét hún drauminn rætast og stjórnar nú Ljósmyndaskólanum þar sem hún elur upp framtíðarljósmyndara, meðfram því sem hún sinnir eigin ferli. Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.