Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 40

Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 40
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24 Blóðdropinn 2014, verðlaun Hins íslenska glæpafélags fyrir bestu glæpasögu ársins 2013, verður afhentur við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafninu, Grófarhúsi, í dag klukkan 16.30. Handhafi Blóð- dropans verður jafnframt fulltrúi Íslands í baráttunni um Glerlykil- inn, sem veittur er árlega fyrir bestu norrænu glæpasöguna. Þær sögur sem sendar voru í slaginn um Blóðdropann að þessu sinni eru Skuggasund eftir Arnald Indriðason, Olnbogavík eftir Her- mann Jóhannesson, Hlustað eftir Jón Óttar Ólafsson, Blóð hraustra manna eftir Óttar M. Norðfjörð, Andköf eftir Ragnar Jónasson, Hinir réttlátu eftir Sólveigu Páls- dóttur, Grimmd eftir Stefán Mána, Drekinn eftir Sverri Berg og Lygi eftir Yrsu Sigurðardóttur. Blóðdropinn afh entur í dag TILNEFND Lygi eftir Yrsu Sigurðardóttur er ein þeirra bóka sem keppa um Blóðdrop- ann í ár. Ég eignaðist barn fyrir einu og hálfu ári og var bara ekki í formi til að syngja vegna ógleði alla meðgönguna,“ segir Heiða Árna- dóttir, söngkona Mógils, spurð hvers vegna hljómsveitin hafi ekki komið fram á Íslandi í þrjú ár. „Ég eiginlega datt bara út.“ Heiða segir tónlist hljómsveitarinnar vera bræðing af djassi, klassík og þjóðlagatónlist og að hljómsveitarmeðlimir semji sjálfir öll lög og texta. „Á þessu tónleikaferðalagi núna erum við að flytja efni sem aldrei hefur heyrst áður og verður á okkar þriðju plötu sem við byrjum að taka upp strax eftir helgina. Við vinnum lög og texta hvert í sínu horni en komum svo saman og vinnum lögin áfram.“ Í hljómsveitinni Mógili eru Heiða Árnadóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Jensson, Eiríkur Orri Ólafsson og Joachim Badenhorst. Þau hafa leikið víða um Evrópu og sent frá sér tvo hljómdiska; Ró sem kom út 2008 og Í stillunni hljómar árið 2011. Spurð hvernig nafnið Mógil hafi komið til segir Heiða að sig hafi langað til að nota eitthvert nafn úr íslenskri náttúru. „Mér fannst Mógil svo fallegt nafn. Ég var búin að safna fullt af fallegum nöfnum en þetta varð ofan á.“ Tónleikarnir í Hofi í dag hefjast klukkan 12, á Sólheimum á morgun klukkan 14 og í Mengi annað kvöld klukkan 21. Heiða segist ekki búast við að hljómsveitin haldi fleiri tónleika fyrr en næsta haust þegar platan verður komin út þannig að þetta sé fágætt tækifæri til að heyra í henni. fridrikab@frettabladid.is Fyrsta tónleikaferðin í þrjú ár Hljómsveitin Mógil er á tónleikaferð um landið, spilar í Hofi á Akureyri í hádeginu í dag, Sólheimum í Grím- snesi á morgun og Mengi í Reykjavík annað kvöld. Allt efnið er frumsamið af hljómsveitarmeðlimum. HLJÓMSVEITIN MÓGIL „Á þessu tónleikaferðalagi núna erum við að flytja efni sem aldrei hefur heyrst áður og verður á okkar þriðju plötu sem við byrjum að taka upp strax eftir helgina,“ segir Heiða Árnadóttir, söngkona sveitarinnar. MYND/ÚR EINKASAFNI MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.