Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 48

Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 48
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 32 BAKÞANKAR Lilju Katrínar Gunnarsdóttur Eitt kvöld í vikunni var ég staðráðin í því að fara snemma að sofa. Svo gerðist það. Ég fann heimildarmynd sem ég þurfti að horfa á. Helst strax í gær. Heimildar- mynd um konur sem mótuðu æsku mína. Konur sem ég elskaði meira en lífið sjálft þegar ég var akfeitt ungmenni að alast upp í Fellunum. Heimildarmynd um stúlkna- sveitina Spice Girls. ÉG var tólf ára þegar Spice Girls var stofnuð. Ég gleymi því aldrei þegar ég beið í óþreyju eftir Nágrönnum einn sumar- dag, með kexmylsnu niður á höku, og myndband við lagið Wannabe kom á skjáinn. Þær náðu mér strax. Og þær héldu mér til ársins 1998 þegar uppá- haldið mitt, Geri Halliwell, yfirgaf sveitina. ÉG hélt samt að þær ættu ást mína ekki lengur. Þar skjátlaðist mér. Við áhorf heimildarmyndarinnar helltist nostalgían yfir mig. Gömlu mynd- brotin, sem ég hafði horft á aftur og aftur á útjöskuðum VHS-spólum, fóru með mig til baka í tímann og ég felldi meira að segja tár. Alveg nokkur. ÉG uppgötvaði nefnilega að ég hafði van- metið Kryddpíurnar. Þær voru mín fyrir- mynd þegar ég var að alast upp og þvílíkar fyrirmyndir. Þær gerðu bara nákvæmlega það sem þær vildu. Þær komu fram við alla eins, hvort sem það var Nelson Mandela eða Jói litli í hornbúðinni. Stundum voru þær kappklæddar, stundum voru þær léttklædd- ar – það fór allt eftir veðri og vindum. Þær voru alltaf með húmorinn í lagi. Og þær voru, eins og Victoria Beckham segir sjálf í heimildarmyndinni, bara venjulegar, lág- vaxnar, breskar stelpur sem litu ágætlega út eftir nokkra klukkutíma í sminki. LANGT var liðið á nóttina þegar ég rank- aði við mér, grátbólgin og full fortíðarþrár, og myndin búin. Mest langaði mig til að hlaupa fram á náttfötunum, vekja barnunga dóttur mína, draga fram gömlu VHS-spól- urnar og sýna henni þessi kjarnakvendi. Konur sem reyndu ekki sí og æ að hneyksla til að vekja á sér athygli. Konur sem þurftu ekki að snerta hver aðra kynferðislega til að selja plötur. BARA venjulegar konur sem ætluðu að sigra heiminn. Og gerðu það. Konurnar sem sigruðu heiminn Vivienne Westwood hannar föt á fl ugþjóna Nýrri línu goðsagnakennda fatahönnuðarins Vivienne Westwood var fagnað í London í vikunni. Í línunni eru fl ugþjónaföt sem Westwood hannaði fyrir fl ugfélagið Virgin Atlantic sem er að mestu í eigu Richards Branson. FLJÚGA HÁTT Westwood ásamt Richard Branson og nokkrum flugþjónum. NORDICPHOTOS/GETTY NÁTTFATAPARTÍ? Klæðn- aður söngkonunnar Elizu Doolittle vakti athygli. HEFUR ENGU GLEYMT Söngkonan Debbie Harry tróð upp í teitinu ásamt hljómsveit sinni Blondie. LITRÍK Söngkonan Kelis smart í hönnun frá Vivienne Westwood. ENSKA RÓSIN Breska leikkonan Naomie Harris mætti. GULLDRENGURINN Tón- listarmaðurinn Goldie mætti í strigaskóm og gallabuxum. HM Í BEINNI BESTU MÖGULEGU HLJÓÐ- & MYNDGÆÐI, 8 LIÐA ÚRSLIT FÖS. & LAU.KL. 16:00 & 20:00.FRÍTT INN SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas TRANSFORMERS 3D 4, 7, 10:10(P) TEMJA DREKANN SINN 2D 4:30 BRICK MANSIONS 10:40 22 JUMP STREET 8 MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:20 VONARSTRÆTI 5, 8 ÍSL TAL Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. www.laugarasbio.isSími: 553-20755% THE SALVATION TRANSFORMERS 2D TRANSFORMERS 3D TRANSFORMERS 3DLÚXUS AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL AÐ TEMJA DREKANN 2 3DÍSL. TAL 22 JUMP STREET TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL VONARSTRÆTI KL. 8 - 10.40 KL. 4 KL. 8 - 10.10 KL. 5 - 9 KL. 3.30 - 5.45 KL. 3.30 - 5.45 KL. 5.30 - 8 - 10.40 KL. 3.30 KL. 8 AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL TRAIN. . . DRAGON 3DENS. TAL ÓTEXT. 22 JUMP STREET X-MEN3D FAULT IN OUR STARS VONARSTRÆTI Miðasala á: Kauptu miða á X-Men með KL. 5.45 KL. 8 KL. 10.15 KL. 10.40 KL. 5.20 - 8 - 10.40 KL. 5.20 - 8 -T.V., BIOVEFURINN.IS-H.S.S., MBL -FRÉTTABLAÐIÐ-DV S.R.S EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK CHICAGO SUN TIMES PORTLAND OREGONIAN LOS ANGELES TIMES TOTAL FILM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.