Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 54
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I
„Tónleikarnir voru gjörsamlega
truflaðir. Þvílíkt þéttir og góðir,“
segir leikarinn Guðjón Davíð
Karlsson, betur þekktur sem
Gói. Hann skellti sér á tónleika
goðsagnakenndu hljómsveitar-
innar Rolling Stones í Svíþjóð á
dögunum ásamt góðvini sínum
Sverri Þór Sverrissyni, Sveppa,
bróður hans, Ingvari Sverrissyni,
föður hans, Sverri Friðþjófssyni,
og leikstjóranum Braga Þór Hin-
rikssyni.
Eins og margir vita er Sveppi
gallharður Stones-maður og segir
Gói að hann hafi smitað sig.
„Ég er orðinn gallharður núna.
Sveppi er búinn að sjá þá fjórum
sinnum en þetta var í fyrsta skipt-
ið mitt. En ég hef alltaf verið mjög
hrifinn af þeim. Nú elska ég þá!“
segir Gói.
Hljómsveitin Rolling Stones er
nú á tónleikaferðalaginu 14 On
Fire en fresta þurfti nokkrum tón-
leikum fyrr á árinu eftir að kær-
asta söngvarans Micks Jagger,
fatahönnuðurinn L’Wren Scott,
framdi sjálfsmorð. Gói segir að
hljómsveitarmeðlimir hafi verið í
toppformi þrátt fyrir það áfall.
„Það sem ég dáðist líka að var
að sjá brosið og gleðina skína úr
augum þeirra og Jaggerinn sjö-
tíu plús hlaupandi stanslaust í
tvo tíma án þess að blása úr nös.
Algjörir snillingar.“ - lkg
Gallharður aðdáandi eft ir tónleikana
Vinirnir Sveppi og Gói skelltu sér á tónleika Rolling Stones í Svíþjóð.
WILD HORSES Þessi mynd var tekin af
köppunum strax eftir tónleikana.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Sveppi er búinn að sjá
þá fjórum sinnum en þetta
var í fyrsta skiptið mitt.
Gói
„Síðustu fimm ár hef ég verið að
búa til tónlist inni í herbergi og er
loksins að fara að opinbera hana,“
segir hinn 21 ára gamli tónlistar-
maður Þorsteinn Sindri Baldvins-
son, betur þekktur sem Stony. Hann
hefur nú sent frá sér sitt fyrsta smá-
skífulag, sem ber nafnið Feel Good,
en lagið varð þó til fyrir um þremur
árum en textinn er nýr.
Stony er líklega best þekktur
fyrir myndböndin sín á YouTube en
þar leikur hann helst á trommur, en
í tónlistinni sinni spilar hann ekki
bara á trommur. „Ég rappa, syng og
spila á ýmis hljóðfæri í tónlistinni
minni.“ Spurður út í hæfni sína í
því að kveða rímur og sönghæfnina
segir Stony: „Það kemur allavega í
ljós núna en ég hef bara gaman af
þessu.“
Á þessum fimm árum hefur Stony
samið fjölda laga sem bíða þess að
líta dagsins ljós. „Ég var að fara í
gegnum tölvuna og sá að ég er með
um 75 lög sem eru ekki alveg tilbú-
in, ég hef ekki nógu mikla athygli til
að klára þetta,“ segir Stony og hlær.
Hann er þó með þrjú lög sem eru
næstum því tilbúin, fyrir utan það
lag sem kemur nú út. Hann nýtur þó
dyggrar aðstoðar Styrmis Hauks-
sonar sem sér um að mastera lögin
hans og þá aðstoðaði Vignir Snær
Vigfússon hann í einu lagi.
Þá hefur Stony verið tíður gestur
á skjáum landsmanna eftir að hann
kom fram í Pepsi-auglýsingu fyrir
skömmu. - glp
Stony sendir frá sér eigin tónlist
Tónlistarmaðurinn Stony sendir frá sér frumsamið efni í fyrsta sinn um þessar
mundir. Hann syngur, rappar og leikur á öll hljóðfærin og á í nógu að snúast.
FJÖLHÆFUR Þorsteinn Sindri Bald-
vinsson, eða Stony, sendir frá sér nýtt
frumsamið efni. MYND/BALDUR KRISTJÁNS
Hinn fimmtán ára gamli rapp-
ari Chris Miles er bandarískur
og hefur vakið mikla athygli fyrir
hæfileika sína, enda skrifaði hann
nýverið undir stærðarinnar útgáfu-
samning við eitt stærsta útgáfufyr-
irtæki í heimi, Warner/Chappell.
Það er þó ekki í frásögur færandi
nema að á bak við þennan hæfi-
leikapilt er íslenskur maður að
nafni Benedikt Steinar Benedikts-
son, betur þekktur sem Benni Ben.
„Ég ásamt þremur bandarískum
félögum mínum er með fyrir-
tækið T3musicgroup og við upp-
götvuðum Miles árið 2012 og
gerðum samning við hann. Það
má alveg segja að hann sér nokk-
urs konar Justin Bieber rappsins
því hann semur tónlist eins og
enginn annar,“ segir Benni Ben
spurður út í upphaf samstarfsins.
Benni fór í nám til Flórída árið
2009 í upptökufræðum og kynnt-
ist þar félögum sínum sem stofn-
uðu svo með honum fyrirtæk-
ið T3musicgroup. „Við vissum
strax að þarna væri virkilega
hæfileikaríkur piltur á ferðinni
og eftir stuttan tíma fóru stærri
fyrirtæki að sýna honum áhuga
og varð svo stærðarinnar samn-
ingur að veruleika núna í maí,“
bætir Benni við.
Hann starfar nú sem upp-
tökustjóri Miles, ásamt öðrum
bandarískum félaga sínum en
hinir tveir starfa sem umboðs-
menn rapparans unga. „Við í
T3musicgroup skiptum þessu á
milli okkar.“
Benni hefur þó einnig fengið
félaga sína í upptöku- og pródús-
erateyminu Redd Lights til þess
að vinna með Miles. „Þeir eru með
þeim stærstu og bestu heima og
ég vildi fá þá út, því þeir eru það
góðir að þeir eiga að vera úti,“
segir Benni. Piltarnir í Redd Lights
dvöldu þó úti í New York í vetur, þar
sem Benni býr, og unnu með Miles.
„Þeir voru úti hjá mér í vetur og
unnu mikið með Chris. Við erum
að gera mörg góð lög með honum.“
Redd Light hafa einmitt einnig gert
samning við T3musicgroup.
Í dag vinnur Benni ásamt
félögum sínum í T3music group,
Redd Lights og fleiri erlend-
um pródúserum að fyrstu plötu
Chris Miles. „Við stefnum á að
gefa plötuna út í vetur, líklega
fyrir jól. Við höfum fengið frá-
bær viðbrögð og ég hlakka til að
sjá hvernig þetta fer.“
gunnarleo@frettabladid.is
Stendur á bak við
rísandi rappstjörnu
Benedikt Steinar Benediktsson uppgötvaði hinn 15 ára gamla rappara Chris Miles.
• Hann var kynntur til
sögunnar á heimsvísu í
síðustu viku og er strax
orðinn mjög vinsæll.
• Hann er fimmtán ára
gamall og er frá Long Island
í New York.
• Hann hefur gert samning við
Warner/Chappell Music sem
er hluti af Warner Music
Group og er eitt stærsta
útgáfufyrirtæki í heiminum.
• Hann er rosalega vinsæll á
Twitter með tæpa fimmtán
þúsund fylgjendur og með yfir
40.000 þúsund áskrifendur á
YouTube.
• Honum er líkt við Eminem
og fer í viðtal í næstu viku á
útvarpsstöðinni Shade 45,
sem er einmitt í eigu Eminem.
HVER ER
CHRIS MILES?BJART FRAMUNDAN Upptökustjórinn
Benedikt Steinar Ben-
ediktsson eða Benni
Ben stendur þétt við
bakið á Chris Miles.
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég verð að segja lagið Love Never
Felt So Good með Michael Jackson
og Justin Timberlake því það kemur
mér sko í stuð.“
Anna Karen Ellertsdóttir, tískudíva á Spyr.is
og förðunarfræðingur.