Fréttablaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 8
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Nj
óttu
með v
eitingum frá Aal
to Bi
str
o
EFNAHAGSMÁL Matsfyrirtækið
Standard & Poor’s hefur breytt
horfum um lánshæfi ríkissjóðs úr
stöðugum í jákvæðar.
Matsfyrirtækið býst við um
þriggja prósenta hagvexti til 2017
auk þess að skuldahlutfall opin-
berra aðila lækki um 10 prósentu-
stig í 61 prósent af landsfram-
leiðslu.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
er óbreytt og er BBB- fyrir lang-
tímaskuldbindingar og A-3 fyrir
skammtímaskuldbindingar.
Moody’s gaf fyrr í vikunni út
óbreytt lánshæfismat. - ih
Uppfæra mat fyrir Ísland:
Lánshæfishorfur
orðnar jákvæðar
GASA Ban Ki-moon, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, hyggst fara
til Mið-Austurlanda til að miðla
málum í deilunni á Gasa.
Líkur á vopnahléi virðast þó
ekki miklar. Ísraelar segjast ekki
ætla að láta staðar numið fyrr en
búið er að eyðileggja gangakerfi
Hamas-samtakanna undir landa-
mæri Ísraels og Gasa auk þess
að stöðva flugskeytaskot Hamas
til Ísrael. Benjamin Netanyahu
segir að Ísraelsher gæti farið mun
lengra inn á Gasa.
Að minnsta kosti 24 Palestínu-
menn og einn Ísraeli hafa fallið frá
því innrás Ísraela hófst á fimmtu-
dag. Í heild hafa um 280 Palest-
ínumenn og tveir Ísraelar týnt lífi
síðan hernaðaraðgerðir hófust á
Gasa fyrir ellefu dögum. Meirihluti
hinna látnu er almennir borgarar.
Fjöldi Palestínumanna á ver-
gangi hefur tvöfaldast síðan inn-
rásin hófst á fimmtudag. Um fjöru-
tíu þúsund Palestínumenn eru nú á
vergangi á Gasa.
Ísraelskir ráðamenn búast við
að innrásin geti staðið yfir í tals-
verðan tíma. „Við þurfum að klára
það verk sem við hófum. Við þurf-
um að útrýma öllum hryðjuverka-
mönnunum. Það verður engin
friðhelgi veitt,“ sagði Uri Ariel,
ráðherra Ísraelska heimastjórn-
arflokksins.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti sagðist styðja rétt Ísraela til
að verja sig: „Engin þjóð ætti að
þurfa að sætta sig við að flugskeyt-
um sé skotið inn á hennar land.“
Jeffrey Feltman, yfirmaður póli-
tískrar deildar Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í gær að nauðsynlegt
væri að alþjóðasamfélagið hæfi
vinnu að tveggja ríkja lausn, þar
sem bæði Palestína og Ísrael yrðu
sjálfstæð ríki. - ih
Ban Ki-moon hyggst miðla málum í deilunni á Gasa:
Tvöfalt fleiri á vergangi
FJÖLDI SÆRÐRA Hlúð að særðu palestínsku stúlkubarni en yfir tvö þúsund hafa
særst á Gasa síðustu daga og yfir fjörutíu þúsund eru á vergangi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
AF
P