Fréttablaðið - 19.07.2014, Side 24

Fréttablaðið - 19.07.2014, Side 24
FÓLK|HELGARSPJALL FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447 Það var löng biðröð fyrir framan Jöklu, sirkustjaldið á Ísafirði, þegar við náðum sambandi við Daníel Birgi, enda aðeins hálftími í fyrstu sýningu. Daníel hefur starfað með sirkusn- um frá upphafi. „Ég rakst á einhjól í búð árið 2007 og varð að eignast það. Fjölleikhús hefur alltaf heillað mig,“ segir Daníel þegar hann er spurður um upphafið að því að hann gerðist sirkusstrákur. „Ég hitti sirkuskennara á kaffihúsi sem er meistari í því að kasta hlutum upp í loft og grípa þá. Ég hafði þá lært að kasta þremur boltum en hann kenndi mér tæknina við að fara í fjóra bolta. Í framhaldinu frétti ég að Lee Nelson væri með námskeið í sirkuslistum og ég og félagi minn skelltum okkur á það,“ segir Daníel. „Þá var ég sautján ára og ekki aftur snúið,“ útskýrir Daníel. TRÚÐUR SEM BARN „Ég veit ekki hvenær áhuginn byrj- aði en systir mín lét mig hafa gaml- ar barnamyndir um daginn þar sem ég var klæddur eins og trúður. Ég býst því við að þetta hafi blundað í mér alla tíð,“ segir hann. „Sirkus- listin lærist best með þrotlausum æfingum.“ Hópurinn sem leikur listir sínar í Sirkus Íslands hefur starfað frá árinu 2007. „Þetta byrjaði eiginlega allt í gegnum námskeiðið. Núna er þetta orðið alvöruvinna og rosalega margt að gerast. Þegar við erum ekki að sýna þá erum við að æfa,“ segir hann. GÓÐ VIÐBRÖGÐ Þegar Daníel er spurður hvort þetta sé skemmtileg vinna, svarar hann, „já“, með ánægjuröddu. „Við náum mjög vel saman. Margir sem koma til að sjá okkur eru hissa á að Íslendingar séu orðnir svona vel æft fjöllistafólk. Við fáum ein- staklega góð viðbrögð frá áhorf- endum. Við erum í nánu sambandi við áhorfendur á sýningum þar sem við sjáum um alla hluti á staðnum, meðal annars að afgreiða sælgæti fyrir sýningu og í hléi. Svo eru alltaf einhverjir áhorfendur þátttakendur í sýningum. Okkur finnst mjög skemmtilegt að heyra hvað fólk er ánægt með sýninguna og tekur virkan þátt í henni. Það er svo ánægjulegt fyrir okkur að fá klapp og hróp.“ Sirkus Íslands eignaðist tjaldið Jöklu í sumar sem var sérhannað fyrir hópinn. „Við vildum hafa það svolítið íslenskt, eins og jökul í laginu. Fullt af fólki aðstoðaði okkur og styrkti við að gera þetta að veru- leika,“ segir Daníel. Hann segir að það hafi verið nokkuð mikið mál að setja tjaldið upp í fyrsta sinn. „Við vorum í þrjá daga að reisa tjaldið fyrst á Klambratúni en þegar við settum það upp á Ísafirði tók það bara einn dag. Ekkert er flókið ef maður kann það.“ SIRKUSLEST Á ÞJÓÐVEGI 1 Sirkushópurinn vakti mikla athygli á leið vestur þótt Daníel segi að sirkuslestin hafi nú ekki verið eins og í bíómyndum. „Við vorum með vörubíl og tvo röndótta, flotta gáma. Það voru samt allnokkur bros frá vegfarendum sem mættu okkur á leiðinni.“ Daníel er í nokkrum hlutverkum á sviðinu, hann kastar meðal ann- ars bæði fólki og hlutum í loftið og grípur. „Þetta eru svona fimleikar með fólk,“ segir hann. Í barnasýn- ingum er hann kynnir en hópurinn býður þrenns konar sýningar. Í allt kemur um 20 manna hópur að sýningunum auk aðstoðarmanna. Eftir helgina leggur sirkushópurinn af stað til Akureyrar á leið sinni um landið. BLÖÐRUMAÐUR Fyrir utan að vera fjöllistamaður rekur Daníel fyrirtækið Bladrarinn. is sem sérhæfir sig í að gera alls kyns furðuverur úr blöðrum. „Ég byrjaði samfara sirkusstarfinu að skemmta börnum með blöðrum. Þar sem ég hef haft mikinn áhuga á fyrirtækjarekstri ákvað ég að útvíkka þessa starfsemi og býð nú upp á blöðruskreytingar fyrir afmælisveislur og alls kyns tækifæri og það hefur gengið mjög vel. Við erum með eitt skemmtilegt atriði í barnasýningu sirkussins þar sem maður fer inn í blöðru. Það hefur verið vinsælt hjá krökkunum.“ Þegar hann er spurður hvort hann ætli að gera sirkusstarfið að ævistarfi svarar hann því játandi. „Vonandi verður það hægt. Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni og ég er í sífelldri þjálfun. Ég held að Sirkus Íslands sé kominn til að vera,“ segir hann. Sem betur fer er ekki mikið um óhöpp í sýningunum, eftir því sem Daníel segir en þó hafa listamenn- irnir fengið skrámur. „Ég var svo óheppinn að tjaldpinni stakkst í höndina á mér þegar við vorum að setja tjaldið upp en ég var með hanska svo betur fór en á horfðist. Við gerum auðvitað líka mistök í sýningunum en þá er galdurinn að láta þau líta út fyrir að vera viljandi.“ HUGFANGINN AF SIRKUSUM Daníel fór tvisvar í sirkus þegar hann var barn. Fyrst í Svíþjóð og síðar á Spáni. Hann segist hafa verið hugfanginn af þeim sýningum. „Ég fór líka í sirkus sem kom hingað til lands fyrir nokkrum árum. Síðan sá ég alla sirkusa á Volcano-hátíð- inni í Vatnsmýrinni.“ En kom foreldrum Daníels á óvart að hann hafi valið þessa leið í lífinu? „Nei, ég get ekki sagt það. Ætli þeim finnist ég ekki á réttri hillu í þessu,“ segir Daníel sirkus- strákur sem nú þurfti að stökkva af stað til að sinna áhorfendum sínum á Ísafirði. ■ elin@365.is SANNKALLAÐUR SIRKUSSTRÁKUR SIRKUSLÍF Daníel Birgir Hauksson er sannkallaður sirkusstrákur sem fann draum sinn rætast með Sirkus Ísland. Um helgina leikur hann listir sínar á Ísafirði með félögum sínum en síðan fer lestin til Akureyrar. FLOTT FÖT Daníel Birgir Hauksson sirkusstrákur í blöðrujakkafötum MYNDIR/SIRKUS ÍSLANDS BOLTAR Daníel kemur fram í marg- víslegum atriðum í Sirkus Íslands, Meðal annars að henda upp í loft þessum stórum boltum. HRINGIR Það þarf mikla hæfileika til að kasta þessum hringjum á milli sín án þess að þeir fari í gólfið. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Verslunin Belladonna Útsalan í fullum gangi 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.