Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 24
FÓLK|HELGARSPJALL
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Það var löng biðröð fyrir framan Jöklu, sirkustjaldið á Ísafirði, þegar við náðum
sambandi við Daníel Birgi, enda
aðeins hálftími í fyrstu sýningu.
Daníel hefur starfað með sirkusn-
um frá upphafi. „Ég rakst á einhjól
í búð árið 2007 og varð að eignast
það. Fjölleikhús hefur alltaf heillað
mig,“ segir Daníel þegar hann er
spurður um upphafið að því að
hann gerðist sirkusstrákur. „Ég hitti
sirkuskennara á kaffihúsi sem er
meistari í því að kasta hlutum upp
í loft og grípa þá. Ég hafði þá lært
að kasta þremur boltum en hann
kenndi mér tæknina við að fara í
fjóra bolta. Í framhaldinu frétti ég
að Lee Nelson væri með námskeið
í sirkuslistum og ég og félagi minn
skelltum okkur á það,“ segir Daníel.
„Þá var ég sautján ára og ekki aftur
snúið,“ útskýrir Daníel.
TRÚÐUR SEM BARN
„Ég veit ekki hvenær áhuginn byrj-
aði en systir mín lét mig hafa gaml-
ar barnamyndir um daginn þar sem
ég var klæddur eins og trúður. Ég
býst því við að þetta hafi blundað
í mér alla tíð,“ segir hann. „Sirkus-
listin lærist best með þrotlausum
æfingum.“
Hópurinn sem leikur listir sínar
í Sirkus Íslands hefur starfað frá
árinu 2007. „Þetta byrjaði eiginlega
allt í gegnum námskeiðið. Núna er
þetta orðið alvöruvinna og rosalega
margt að gerast. Þegar við erum
ekki að sýna þá erum við að æfa,“
segir hann.
GÓÐ VIÐBRÖGÐ
Þegar Daníel er spurður hvort
þetta sé skemmtileg vinna, svarar
hann, „já“, með ánægjuröddu. „Við
náum mjög vel saman. Margir sem
koma til að sjá okkur eru hissa á
að Íslendingar séu orðnir svona
vel æft fjöllistafólk. Við fáum ein-
staklega góð viðbrögð frá áhorf-
endum. Við erum í nánu sambandi
við áhorfendur á sýningum þar sem
við sjáum um alla hluti á staðnum,
meðal annars að afgreiða sælgæti
fyrir sýningu og í hléi. Svo eru alltaf
einhverjir áhorfendur þátttakendur
í sýningum. Okkur finnst mjög
skemmtilegt að heyra hvað fólk
er ánægt með sýninguna og tekur
virkan þátt í henni. Það er svo
ánægjulegt fyrir okkur að fá klapp
og hróp.“
Sirkus Íslands eignaðist tjaldið
Jöklu í sumar sem var sérhannað
fyrir hópinn. „Við vildum hafa það
svolítið íslenskt, eins og jökul í
laginu. Fullt af fólki aðstoðaði okkur
og styrkti við að gera þetta að veru-
leika,“ segir Daníel. Hann segir að
það hafi verið nokkuð mikið mál að
setja tjaldið upp í fyrsta sinn. „Við
vorum í þrjá daga að reisa tjaldið
fyrst á Klambratúni en þegar við
settum það upp á Ísafirði tók það
bara einn dag. Ekkert er flókið ef
maður kann það.“
SIRKUSLEST Á ÞJÓÐVEGI 1
Sirkushópurinn vakti mikla athygli
á leið vestur þótt Daníel segi að
sirkuslestin hafi nú ekki verið eins
og í bíómyndum. „Við vorum með
vörubíl og tvo röndótta, flotta
gáma. Það voru samt allnokkur
bros frá vegfarendum sem mættu
okkur á leiðinni.“
Daníel er í nokkrum hlutverkum
á sviðinu, hann kastar meðal ann-
ars bæði fólki og hlutum í loftið og
grípur. „Þetta eru svona fimleikar
með fólk,“ segir hann. Í barnasýn-
ingum er hann kynnir en hópurinn
býður þrenns konar sýningar. Í
allt kemur um 20 manna hópur að
sýningunum auk aðstoðarmanna.
Eftir helgina leggur sirkushópurinn
af stað til Akureyrar á leið sinni um
landið.
BLÖÐRUMAÐUR
Fyrir utan að vera fjöllistamaður
rekur Daníel fyrirtækið Bladrarinn.
is sem sérhæfir sig í að gera alls
kyns furðuverur úr blöðrum. „Ég
byrjaði samfara sirkusstarfinu að
skemmta börnum með blöðrum.
Þar sem ég hef haft mikinn áhuga
á fyrirtækjarekstri ákvað ég að
útvíkka þessa starfsemi og býð
nú upp á blöðruskreytingar fyrir
afmælisveislur og alls kyns tækifæri
og það hefur gengið mjög vel. Við
erum með eitt skemmtilegt atriði í
barnasýningu sirkussins þar sem
maður fer inn í blöðru. Það hefur
verið vinsælt hjá krökkunum.“
Þegar hann er spurður hvort
hann ætli að gera sirkusstarfið að
ævistarfi svarar hann því játandi.
„Vonandi verður það hægt. Þetta
er það skemmtilegasta sem ég hef
gert á ævinni og ég er í sífelldri
þjálfun. Ég held að Sirkus Íslands sé
kominn til að vera,“ segir hann.
Sem betur fer er ekki mikið um
óhöpp í sýningunum, eftir því sem
Daníel segir en þó hafa listamenn-
irnir fengið skrámur. „Ég var svo
óheppinn að tjaldpinni stakkst í
höndina á mér þegar við vorum
að setja tjaldið upp en ég var með
hanska svo betur fór en á horfðist.
Við gerum auðvitað líka mistök í
sýningunum en þá er galdurinn
að láta þau líta út fyrir að vera
viljandi.“
HUGFANGINN AF SIRKUSUM
Daníel fór tvisvar í sirkus þegar
hann var barn. Fyrst í Svíþjóð og
síðar á Spáni. Hann segist hafa
verið hugfanginn af þeim sýningum.
„Ég fór líka í sirkus sem kom hingað
til lands fyrir nokkrum árum. Síðan
sá ég alla sirkusa á Volcano-hátíð-
inni í Vatnsmýrinni.“
En kom foreldrum Daníels á
óvart að hann hafi valið þessa leið
í lífinu? „Nei, ég get ekki sagt það.
Ætli þeim finnist ég ekki á réttri
hillu í þessu,“ segir Daníel sirkus-
strákur sem nú þurfti að stökkva af
stað til að sinna áhorfendum sínum
á Ísafirði. ■ elin@365.is
SANNKALLAÐUR
SIRKUSSTRÁKUR
SIRKUSLÍF Daníel Birgir Hauksson er sannkallaður sirkusstrákur sem fann
draum sinn rætast með Sirkus Ísland. Um helgina leikur hann listir sínar á
Ísafirði með félögum sínum en síðan fer lestin til Akureyrar.
FLOTT FÖT Daníel Birgir Hauksson sirkusstrákur í blöðrujakkafötum
MYNDIR/SIRKUS ÍSLANDS
BOLTAR Daníel kemur fram í marg-
víslegum atriðum í Sirkus Íslands,
Meðal annars að henda upp í loft þessum
stórum boltum.
HRINGIR Það þarf mikla hæfileika til að
kasta þessum hringjum á milli sín án þess
að þeir fari í gólfið.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Verslunin Belladonna
Útsalan
í fullum gangi
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style