Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 62
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 42
TÉKKAR HRIFNIR
AF ÁSGEIRI
Plata Ásgeirs Trausta, In the Silence,
fær glimrandi dóma á tékknesku
vefsíðunni musicserver.cz. Gagn-
rýnandinn Dan Hájek segir plötuna
fallega og ekki skipti máli hvort hlustað
sé á hana á íslensku eða ensku. „In the
Silence er brothætt og
er sveipuð ljóðrænum
blæ,“ skrifar hann
meðal annars. Þá er
Dan einnig hrifinn af
textum Einars Ge-
orgs Einarssonar,
föður Ásgeirs,
sem hann segir
að haldist í
þýðingu Johns
Grant. - lkg
„Hann kom náttúrulega til lands-
ins út af hinu margfræga afmæli
en náði síðan að framlengja ferð-
ina,“ segir Natalie, betur þekkt
sem DJ Yamaho, en hún þeyt-
ir skífum í kvöld á Dolly ásamt
bandaríska rapparanum Zebra
Katz. „Það verður gaman að sjá
hvernig við förum að þessu, ég er
kannski meira í danstónlistinni,“
segir Natalie sem er þó fræg fyrir
hipphopp-settin sín. „Við munum
allavega brúa mörg bil í kvöld
sem er skemmtilegt og krefjandi
á sama tíma.“
Zebra Katz er ungur rappari og
þrátt fyrir að hafa verið í tónlistar-
bransanum í aðeins þrjú ár hefur
hann náð að skapa sér stórt nafn
innan tónlistarheimsins og hefur
komið fram ásamt tónlistarmönn-
um á borð við Azaelia Banks og
Lönu Del Ray. Aðspurð hvort hún
geti uppljóstrað hverju dansþyrst-
ir gestir Dolly geti búist við segist
Natalie ekki vilja skemma ánægj-
una.
„Þetta verður að koma á óvart,
ég kem með eitthvað frá mér, hann
kemur með eitthvað frá sér og svo
gerum við eitthvað saman,“ segir
plötusnúðurinn. „Ég á allavega
von á brjáluðu kvöldi, ég er mjög
spennt.“
- bþ
Brúa bil með tónlist
Natalie G. Gunnarsdóttir, betur þekkt sem DJ
Yamaho, þeytir skífum í kvöld ásamt Zebra Katz.
BAK Í BAK Tónlistarmennirnir tveir eru spenntir fyrir kvöldinu.
Leikstjórinn Quentin Tarantino hefur
eytt síðustu dögum á Íslandi. Hann
kom við í garðpartíi athafnamannsins
Jóns Ólafssonar á fimmtudagskvöldið
og hefur greinilega skemmt sér vel
því hann var mættur strax næsta
dag á Gráa köttinn. Þar gæddi hann
sér á góðum kræsingum
eftir gleðiríkt
kvöld en gestir
staðarins tóku
sérstaklega
eftir hve
sólginn
hann var
í beik-
onið á
disknum.
- lkg
BRJÁLAÐUR Í BEIKON
„Við skrifuðum söguna saman en
vorum þó hvor á sínum staðnum á
hnettinum,“ segir Kolbrún Anna
Björnsdóttir, rithöfundur og leik-
kona, en hún skrifar bókina Á
puttanum með pabba ásamt Völu
Þórsdóttur, rithöfundi og leikkonu,
en Vala býr á Möltu. „Við unnum
saman í gegnum Skype og það
gekk alveg ótrúlega vel, það var
bara eins og við værum í sama
herberginu,“ bætir Kolbrún Anna
við.
Sagan gerist í sumarfríi íslensk-
ítölsku systkinanna Sonju og
Frikka á Sikiley en þau eyða sumr-
inu með pabba, afa og ömmu. Fríið
byrjar ekki vel því amma og afi
verða snögglega að sinna veikum
frænda og pabba er boðið drauma-
hlutverk í kvikmynd á Spáni. Allt í
einu er enginn eftir á Sikiley til að
sjá um systkinin. Á meðan pabbi
reynir að fá pössun hjá vinum og
nágrönnum kaupa systkinin flug-
miða heim til Íslands en eini gall-
inn er að mamma er ekki heima
og svarar ekki símanum. Þess
vegna fylgir pabbi systkinunum
til Íslands í þeirri trú að mamma
finnist fljótt.
„Sagan var upphaflega skrif-
uð sem sjónvarpsþáttaröð en það
gekk illa að fjármagna framleiðsl-
una, þannig að við byrjum allavega
á bók,“ segir Kolbrún Anna. Hún
útilokar þó ekki að sagan fari á
hvíta tjaldið. „Kannski verður
þetta að bíómynd eða þáttum að
lokum, það kemur í ljós.“
Þær standa nú fyrir söfnun á
söfnunarsíðunni Karolina Fund
til þess að fá aðstoð við að gefa
út söguna, bæði sem rafbók og á
prenti. „Textinn er þegar kominn
en okkur langar að gæða persónur
og söguna lífi með fallegum teikn-
ingum eftir Láru Garðarsdóttur,“
segir Kolbrún Anna.
Hún segir söguna taka á ýmsum
staðalímyndum, að skipt sé um
kynjahlutverk og að jafnrétti sé
haft að leiðarljósi. „Á ferðalagi sínu
hitta persónurnar aðrar persónur
sem umsnúa hugmyndum um stað-
alímyndir og hlutverk kynjanna.
Þær hitta meðal annars bónda
sem er kona og mótorhjólagengi
sem skipað er karlmönnum sem
eru hjúkkur og tannlæknar. Við
snúum upp á staðalímyndir víðs
vegar,“ útskýrir Kolbrún Anna.
Söfnunin er nýhafin en þær hafa
strax fengið góð viðbrögð og eru
bjartsýnar á framhaldið.
gunnarleo@frettabladid.is
Börnin á puttanum
Vala Þórsdóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir skrifuðu saman bókina Á putt-
anum með pabba þrátt fyrir að vera á hvor á sínum staðnum á hnettinum.
HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ Þær Kolbrún og Lára vinna vel saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
Þeir sem styrkja um 1.600 krónur fá sérstakt þakkarbréf í tölvupósti og boð á
útgáfuhófið.
Fyrir styrk upp á 15.600 krónur færðu sérstakt þakkarbréf í tölvupósti, áritaða
prentaða bók, rafbók á ensku eða íslensku, áritaða mynd úr bókinni, nafnið
þitt prentað með þökkum í bókina og boð í útgáfuhóf.
Fyrir 312.000 króna styrk færðu sérstakt þakkarbréf í tölvupósti, rafbók á
ensku eða íslensku, áritaða prentaða bók, nafnið þitt prentað í bókina með
þökkum, áritaða mynd úr bókinni, aukapersóna í bókinni er nefnd eftir þér
eða einhverjum að þínu vali og teiknuð inn í bókina auk boðs í útgáfuhóf.
Verkefnið á Karolina Fund Ég á allavega von á
brjáluðu kvöldi, ég er
mjög spennt.
Natalie G. Gunnarsdóttir.
„Ég mun alltaf minn-
ast þessa dags sem
dagsins sem ég eldaði
mat, nuddaði augu
mín og fattaði síðan að
jalapeño-pipar er nátt-
úrulegur piparúði.“
TAYLOR SWIFT UM ÆVINTÝRI
SÍN Í ELDHÚSINU Á TWITTER.
Inspiral.ly
MURE
Authenteq
ViralTrade
Boon Music
/S
ÍA
–
1
4
-
H
V
ÍT
A
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
1
6
5
4
Startup Reykjavík verkefnið er í fullum
gangi. Tíu sprotafyrirtæki þróa hug-
myndir sínar með aðstoð frá Arion banka
og Klak-Innovit.
Fylgstu með á www.startupreykjavik.com
og á Facebook.com/StartupReykjavik.
SPENNANDI HUGMYNDIR
VERÐA AÐ VERULEIKA
EYLAND JEWELLERY TIL
SÖLU HJÁ NASTY GAL
Katrín Alda Rafnsdóttir, hönnuður og
eigandi fatamerkisins KALDA, hefur
gert samning við tískusíðuna vinsælu
Nasty Gal um sölu á skartgripalínu
sinni Eyland Jewellery. Síðan er ein
virtasta og vinsælasta vefverslunin
í tískuheiminum fyrir konur. „Þetta
er frábær byrjun og verður
gaman að sjá hvert þetta
stefnir héðan í frá,“ segir
Katrín Alda í samtali við
Fréttablaðið. Hægt
verður að nálgast valda
gripi úr línunni hjá
Nasty Gal á næstunni
en nú þegar eru þeir
fáanlegir á heimasíðunni
eylandjewellery.com. - fbj