Fréttablaðið - 19.08.2014, Page 22

Fréttablaðið - 19.08.2014, Page 22
FÓLK|HEILSA Endurtekin bakverkjaköst eru algeng en sjaldnast mjög hamlandi og aðeins lítill hluti fólks þróar með sér langvarandi bakvandamál sem hamla því í daglegu lífi,“ segir dr. Harpa Helgadóttir, sjúkraþjálfari og Ph.D. í líf- og læknavísindum. Harpa hefur kennt bakleikfimi síðastliðin 25 ár og er aðjunkt við Háskóla Íslands og Univers- ity of St. Augustine í Flórída og Kaliforníu. „Rannsóknir sýna að þegar einstaklingur fær bakverk í fyrsta sinn er gagnlegt að fá einfaldar leiðbeiningar til að draga úr verkjum og minnka líkur á að fá í bakið seinna. Fyrstu dagana er ráðlegt að forðast athafnir sem auka verkinn en það flýtir fyrir bata að snúa sem fyrst til daglegra athafna, vinnu og tóm- stunda. Mikilvægt er að það gerist smám saman til að minnka hættu á auknum verkjum og hömlum,“ upplýsir Harpa. Hún segir langa hvíld og rúm- legu seinka bata. „Hreyfingarleysi og einhæft álag er algengasta ástæða þess að bakverkir verða langvarandi og hamlandi. Þó er einnig algengt að fólk yfirkeyri sig og geri of mikið of snemma. Ef við ofgerum okkur og hættum ekki fyrr en verkurinn er orðinn óbærilegur verðum við í kjölfarið að hvíla okkur og gera minna. Þegar verk- urinn minnkar förum við svo aft- ur af stað og ofgerum okkur á ný. Í hvert skipti sem við ofgerum okkur er líklegra að við forðumst að gera það sem olli verkjum og haldi þessi þróun áfram minnkar virkni okkar með tímanum.“ SAMHLJÓMUR VÖÐVA MIKILVÆGUR Ef sveigjur í hrygg eru óeðlilega miklar eða of litlar veldur það óeðlilegu álagi á hrygginn. „Mjaðmagrind og hryggjarliðir þurfa að vera sem mest í mið- stöðu við daglegar athafnir til að álag á hrygginn sé sem jákvæð- ast. Einnig þarf að ríkja jafnvægi og samræmi á vinnu vöðvanna sem styðja við hryggsúluna. Ef við hugsum vöðvana eins og hljóðfæri í hljómsveit þarf hver vöðvi að geta spennst og slaknað á réttu augnabliki, spennan þarf að vera hæfilega mikil og geta haldist í ákveðinn tíma til að góður samhljómur verði,“ segir Harpa. Margir tengja bakverki við lotna líkamsstöðu og telja besta ráðið við bakverkjum að hafa bak- ið beint og halda kviðnum inni. „Það veldur hins vegar aukinni vöðvaspennu í hrygg og truflar eðlilega stöðu og hreyfingar baks. Aukinn þrýstingur og samþjöpp- un á sér stað í hryggnum og nær- ingarflæði til vefja minnkar. Til að átta sig á hvernig slík vöðva- spenna hefur áhrif á liði má prófa að hreyfa úlnlið í hringi með slaka fingur. Kreppið svo hnefann og haldið honum krepptum um leið og hreyfingin er endurtekin. Rannsóknir sýna að fólk með langvarandi bakverki hefur ekki minnkaðan styrk í bolvöðvum. Vöðvarnir spennast hins vegar óeðlilega mikið og á röngum tíma auk þess sem þeir ná ekki eðli- legri slökun samanborið við þá sem hafa ekki bakverki.“ HREYFING DREGUR ÚR VERKJUM Algengt er að fólk með langvar- andi bakverki hætti að hreyfa sig eðlilega og verði hrætt við athafnir eins og að beygja sig eftir hlutum. „Á meðan það er eðlilegt að fara varlega fyrstu dagana er mikilvægt að hreyfingar verði sem fyrst eðlilegar og fólk beygi sig ekki eins og það sé að lyfta þungum hlut þegar lyft er léttu. Hræðsla við verkinn eykur vöðvaspennu í baki og eykur um leið líkur á hann finnist aftur,“ segir Harpa. Margir haldi að því meiri sem bakverkir eru því meiri skaði hafi orðið á hryggnum. „Það þarf hins vegar alls ekki að vera. Fólk með svipuð bakvandamál getur fundið fyrir mismunandi miklum sársauka. Magn sársauka getur farið eftir ýmsu, til dæmis við hvaða að- stæður verkurinn byrjaði, fyrri reynslu af verkjum, hræðslu, líkamsástandi, streitu og viðhorfi til verkja. Hafi einstaklingur bak- verki getur verið að taugar sem senda taugaboð um verkinn séu hlutfallslega virkari hjá honum en öðru fólki. Það getur leitt til þess að hann finni fyrir meiri sársauka þegar hann hreyfir sig eða reynir að gera eitthvað þótt hann sé ekki að meiða hrygginn.“ Í slíkum tilfellum segir Harpa hreyfingu og æfingar bestu leiðina til að draga úr verkjum og hömlun. „Hins vegar er mikilvægt að byrja rólega og auka álagið smám saman. Ef doðatilfinning er á söðulsvæði, verkjaleiðni niður í fótleggi og minnkaður styrkur í fótleggjum er mikilvægt að leita til læknis.“ FÆSTIR ÞURFA SKURÐAÐGERÐ Að sögn Hörpu er myndgreining (röntgen, segulómun eða sneið- mynd) í flestum tilfellum óþörf þar sem niðurstöður bæti ekki meðferð nema hjá mjög litlum hópi fólks. „Samband á milli þess sem sést á myndgreiningu og bak- verkja er í mörgum tilfellum mjög óljóst þar sem myndgreining hjá þeim sem hafa aldrei haft bak- verki getur sýnt slitbreytingar og jafnvel brjósklos án þess að einkenni séu til staðar. Skoðun dugar yfirleitt til að greina þann litla hóp fólks þar sem mynd- greining er nauðsynleg.“ Segulómun er myndgreining sem skurðlæknir þarf til að meta hvort skurðaðgerð gæti komið að gagni. Harpa segir örlítinn hluta fólks með bakverki þurfa í skurðaðgerð en að oftast sé reynt að komast hjá skurðaðgerð því henni geta fylgt aukaverkanir. Langtímaárangur sé svipaður og eftir sjúkraþjálfun og almenna líkamsrækt. „Flestir sem þjást af bakverkj- um geta dregið úr einkennum með því að hreyfa sig reglulega, auka skilning sinn á orsök verkj- anna og hvaða þættir geta valdið því að verkirnir aukist eða fram- kallist. Fræðsla er því mikilvæg- asti þátturinn í því að hjálpa fólki að halda áfram daglegu lífi án þess að þurfa að fara í skurðað- gerð. Einstaklingsmiðaðar leið- beiningar skipta miklu þar sem engir tveir einstaklingar eru eins og ólíkar ástæður geta orsakað bakverkina.“ Sjá nánar á www.bakleikfimi.is. ■ thordis@365.is HEILRÆÐI VIÐ BAKVERKJUM HEILSA Flestir sem fá bakverki ná góðum bata án þess að lífsgæði þeirra breytist verulega. Löng hvíld og rúmlega seinkar bata. VÍSINDI Dr. Harpa Helgadóttir hefur í aldarfjórð- ung kennt bak- leikfimi. Hún segir hreyfingarleysi og einhæft álag vera algengustu ástæðu þess að bakverkir verði langvarandi og hamlandi. MYND/DANÍEL Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heilsu Qigong 5 helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”. 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega. Skráning í síma 553 8282 Lokaútsala 70% afsláttur Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Lokaútsala 70% afsláttur Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is ll dVer l i Bes un n a onna r 38-58Stærði Stærð r 38-52i Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Umsögn: S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan. Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.