Fréttablaðið - 19.08.2014, Síða 25
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2014 Kynningarblað Vodafone, Síminn, Hressing, krísustjórnun og vörumerki
Hugmyndafræði Vodafone á heimsvísu byggir á einfald-leika og áhyggjuleysi og það
kunna íslensk fyrirtæki að meta. Sí-
fellt fleiri fyrirtæki velja að greiða
fast mánaðargjald fyrir notkun
allra sinna fjarskiptatækja án þess
að hafa áhyggjur af bakreikn-
ingi síðar meir,“ segir Trausti Guð-
mundsson, forstöðumaður fyrir-
tækjaþjónustu Vodafone.
Hann segir stöðu Vodafone á ís-
lenskum fyrirtækjamarkaði vera
afar sterka.
„Mörg stærstu fyrirtækin og
mikilvægustu stofnanir landsins
hafa valið Vodafone, en að sjálf-
sögðu líka þúsundir smærri fyrir-
tækja. Við leggjum okkur fram við
að hlusta á þeirra þarfir, veita góða
og skjóta þjónustu og gera það sem
við getum til að gera þau sam-
keppnishæfari á sínum markaði.“
Bestu meðmælin
Reynsla Vodafone af þjónustu við
íslensk fyrirtæki er mikil og fjöl-
breytt. Trausti segir að fyrirtæk-
ið hafi metnað til að gera ávallt
betur og fagnar því hve sumir
viðskiptavinir geri miklar kröfur
um áreiðanleika og gæði.
„Við erum til að mynda stolt
af því að öryggis- og viðbragðs-
aðilar hafi kosið að vera með
fjarskiptaþjónustu hjá okkur
og lítum á það sem gæðastimp-
il fyrir vörur og þjónustu Voda-
fone. Dæmi um slíka aðila
eru Neyðar línan, Landsbjörg,
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins, Landhelgisgæslan, Land-
spítalinn, Ríkisútvarpið og bæði
stóru orkufyrirtækin sem stóla á
okkur til að tryggja örugg og góð
fjarskipti. Öll stærstu sveitarfélög
landsins hafa einnig valið Voda-
fone, stærstu smásölufyrirtækin
og áfram mætti telja. Í því felast
mikil meðmæli,“ segir Trausti.
Í fyrirtækjaþjónustu Vodafone
er lögð mikil áhersla á persónu-
lega þjónustu og ráðgjöf.
„Við lítum á okkur sem sam-
starfsmenn viðskiptavina okkar
en ekki eingöngu þjónustuaðila.
Viðskiptavinir geta í mörgum til-
vikum nýtt sér yfirgripsmikla
tækniþekkingu okkar í sínum
rekstri og við höfum tekið þátt í
skemmtilegum nýsköpunar- og
þróunarverkefnum þar sem fjar-
skiptatæknin er nýtt á skemmti-
legan hátt, ýmist til að skapa
auknar tekjur fyrir viðskipta-
vini eða hagræða í þeirra rekstri,“
segir Trausti.
Sterkir innviðir
mikilvægir fyrir samfélagið
Þjónusta Vodafone nær um allt
land og eru innviðir fyrirtækis-
ins sterkir.
„Við rekum okkar eigin fjar-
skipta- og lykilkerfi sem ná til
alls samfélagsins og bjóðum
upp á víðnet sem tengir fyrir-
tæki og útibú um land allt. Dæmi
um slíkt eru smávöruverslanir
og bensínafgreiðslustöðvar sem
treysta á mjög háan uppitíma
kerfa, þar sem ekkert má klikka,“
útskýrir Trausti.
Fyrirtækjaþjónusta hefur á
undanförnum árum verið vax-
andi hluti af starfsemi Vodafone
og nú er svo komið að helming-
ur tekna fyrirtækisins kemur frá
þjónustu við fyrirtæki.
Leiðandi um allan heim
Vodafone er eitt stærsta fjarskipta-
fyriræki heims og hefur Voda-
fone hér á landi beinan aðgang að
tækniþekkingu, reynslu og vöru-
þróun ytra.
„Allt gefur það viðskiptavinum
okkar forskot og það vilja íslensk
fyrirtæki nýta sér til að verða sam-
keppnishæfari á markaði. Tækni-
framfarirnar stuðla einnig að létt-
ari rekstri og við leggjum okkur
fram um að kynna fyrir viðskipta-
vinum nýjar og hagstæðar leiðir, ef
við teljum þær henta fyrirtækjum
sem eru í viðskiptum við okkur,“
segir Trausti.
Á undanförnum misserum hefur
Vodafone verið leiðandi í vöruþró-
un hér á landi. Vodafone RED, bæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki, og
Traveller-þjónustupakkarnir sem
innihalda hagstæðari verð á ferða-
lögum erlendis eru dæmi um slíkt.
Í báðum tilvikum er áhyggjuleysi
og einfaldleiki undirliggjandi þátt-
ur í þjónustunni sem Trausti segir
að viðskiptavinir kunni að meta.
Mínar síður vinsælar
Trausti segir þjónustuna vera í
stöðugri þróun, með tilliti til þarfa
og óska viðskiptavina. Þannig hafi
til dæmis fyrirtækið þróað Mínar
síður, þjónustusíður Vodafone á
netinu, í samstarfi við stóra við-
skiptavini.
„Margir vilja þjónusta sig sjálf-
ir með ýmsa hluti hvenær sólar-
hringsins sem er og þar gegna
Mínar síður lykilhlutverki. Þar hafa
fyrirtæki góða yfirsýn yfir sín fjar-
skiptamál, bæði varðandi notk-
un og kostnað, og Mínar síður njóta
mikilla vinsælda.“
Þar sem fagfólkið verslar er þér óhætt
Vodafone er eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki veraldar. Vodafone er einnig í fararbroddi þegar kemur að traustri og áreiðanlegri
fyrirtækjaþjónustu á Íslandi. Það skýrist af fyrsta flokks þjónustu, sanngjörnu verði og öruggum fjarskiptakerfum, sem má alltaf reiða
sig á. Meðal þeirra sem hafa valið Vodafone eru viðbragðsaðilar á borð við Neyðarlínuna, Landsbjörg, Landspítalann og Ríkisútvarpið.
Trausti Guðmundsson er forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu Vodafone. MYND/VALLI