Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaþjónusta ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 20146 Vantar þig ítalskt kaffihús á vinnustaðinn? INNNES býður fjölbreytt úrval drykkjarlausna á vinnustaðinn. www.kaffi.is INNNES ehf. Fossaleyni 21, 112 Reykjavík Sími 585 8585 • www.kaffi.is Cellini kaffi, freyðandi fersk mjólkurblanda, ein snerting á skjá og þú ert með ekta ítalskan Cappuccino í höndunum Við hönnun vörumerkja þarf að hafa ýmislegt í huga. Vörumerkið þarf að vera einfalt og eftirminnilegt en einnig þarf það að standast tímans tönn. „Einfaldleikinn er mjög mikilvæg- ur þegar kemur að vörumerkjum,“ segir Kristín Agnarsdóttir, grafísk- ur hönnuður. „Áður en lógó eru hönnuð þarf að sjá notkun þeirra fyrir. Þau þurfa að geta birst á mis- munandi stöðum og þurfa stór fyrirtæki að hafa þetta sérstaklega í huga. Smærri fyrirtæki nota lógó- in sín aðallega á heimasíðu sinni, í haus reikninga, á nafnspjöldum og kannski á fleiri stöðum en hjá stærri fyrirtækjunum birtast þau í alls kyns samhengi og í mismun- andi miðlum.“ Kristín segir útlit vörumerkja skapast að mörgu leyti af hlutverki fyrirtækisins. „Það er mikilvægt að hugmyndafræði fyrirtækisins komi vel fram í lógói þess. Ef lógó er vel heppnað eru mikil verðmæti fólgin í því. Það eru til margar góðar leiðir til að eyðileggja lógó og ætti til dæmis ekki að hafa þau of flókin. Það er ekki góð hugmynd að hafa allt of marga liti í þeim og alls ekki margar myndir. Ljós- mynd á vörumerki væri til dæmis afar slæm hugmynd,“ segir hún og brosir. Litanotkun í vörumerkjum segir Kristín vera misjafna eftir löndum og menningarsvæðum. „Ég var í námi bæði á Spáni og í Bandaríkjunum. Þar hafa litir misjöfn áhrif og þeir hafa svo enn önnur áhrif hér á landi. Rauður litur hefur til dæmis frekar nei- kvæð áhrif í Bandaríkjunum og er jafnvel tengdur við sósíalisma. Gulur er þjóðlegur litur á Spáni enda í fánanum þeirra. Blár litur hefur í gegnum tíðina verið heldur kaldur litur sem tengist stofnun- um, bönkum og tryggingum. Síð- astliðin ár hefur hann þó náð ein- hvers konar endurlífgun í gegn- um tækniheiminn, þá með aðeins meira gulu í og ljósari. Því dekkri sem hann er því virðu- og þjóð- legri er hann. Grænn er alls stað- ar tengdur umhverfinu og grænni orku. Það þarf þó líka að hugsa um samhengi litanna í vörumerkinu og plássinu sem liturinn fær.“ Vörumerki fyrirtækja þurfa að vera einföld Kristín Agnarsdóttir, grafískur hönnuður, segir mikil verðmæti fólgin í vörumerki hvers fyrirtækis og því mikilvægt að þau séu vel hönnuð. Einföld og eftirminnileg vörumerki sem eldast vel eru best heppnuðu merkin. Það fer eftir löndum og svæðum hvaða liti er best að tengja hverju fyrirtæki. Kristín segir útlit vörumerkja skapast að miklu leyti af tegund fyrirtækisins. MYND/GVA Kristín tók nokkur dæmi um vel heppnuð vörumerki sem allir þekkja. Lógóin eiga það sameiginlegt að vera einföld og eftirminnileg. Deutsche bank. „Einfalt vörumerki sem stenst tímans tönn. Tilfinningin á bak við það skín vel í gegn. Fyrirtækið hefur líka náð að nota sér merkið og skálínuna í því á skemmtilegan hátt í mark- aðssetningu.“ Apple. „Mér finnst það flott af því að pælingin á bak við það er skemmtileg. Þetta er vísun í epli Newtons og kemur ávextinum í raun ekkert við heldur snýst um þetta „aha-móment“ þegar eitthvað lýkst upp fyrir fólki enda fyrirtækið gert margar byltingar á tæknisviðinu og komið fram með marg- ar nýjar hugmyndir.“ London Underground. „Merkið er fyrst og fremst einfalt en það er líka teygjanlegt og starfsfólki þess hefur tekist að nýta það vel og nota það yfir fleiri samgönguhugtök eins og til dæmis hjólreið- ar.“ Habitat. „Mér finnst bara vera falleg merking á bak við þetta vörumerki og finnst það mjög lýsandi fyrir hlutverk fyrirtækisins.“ Einföld og eftirminnileg Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti Við náum til fjöldans B ra n de n bu rg Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.