Fréttablaðið - 19.08.2014, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaþjónusta ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 20148
ÓLÍKIR SIÐIR
Stjórnendur fyrirtækja sem eru að hefja viðskipti við erlend fyrirtæki í fyrsta sinn
þurfa að hafa í huga að sinn er siður og menning í viðskiptum í hverju landi. Á það
sérstaklega við þegar átt er í samskiptum við fyrirtæki og stofnanir í öðrum heims-
álfum þótt það eigi vissulega líka við innan Evrópu. Það sem okkur Íslendingum
finnst vera kurteisi þykir jafnvel argasti dónaskapur annars staðar og öfugt.
Í sumum löndum þykir eðlilegt í viðskiptum að klæðast formlega og vera hreinn
og beinn í samskiptum. Annars staðar kjósa menn létt kurteisishjal og óformlegheit
til að kynnast betur.
Íbúar ólíkra þjóða eru misuppteknir af tímanum. Á meðan sums staðar þykir
ókurteisi að mæta seint á fund þykir í lagi annars staðar að líta á tímasetningu fundar
sem almennt viðmið. Þannig eru Þjóðverjar oft nefndir til sögunnar þegar stundvísi er
annars vegar en íbúar margra ríkja Afríku og Suður-Ameríku þykja vera sveigjanlegri.
Ef ekki vinnst tími til undirbúnings er alltaf gott að miða við snyrtilegan klæðnað,
nota eftirnöfn í samskiptum við fólk, mæta á réttum tíma á fundi og ekki síður að
vera vel undirbúinn.
HJARTA FYRIRTÆKISINS
Fyrirtækjum stendur til boða
að fá ítarlegt áhættumat fyrir
sitt starfsfólk hjá hjartarannsókn
Hjartaverndar. Hjúkrunarfræð-
ingar hitta fólk á vinnustaðnum
og gera mælingar og taka blóð-
prufur.
Kosturinn við þetta er að fólk
kemur einungis einu sinni í
höfuðstöðvar Hjartarannsóknar
en í þeirri heimsókn er tekið
hjartalínurit, skoðun og viðtal.
Fyrirtækjum stendur til boða að
fá fyrirlestur um þá þætti sem
hver og einn getur haft áhrif
á í sínu lífi og skipta svo miklu
máli í baráttunni við hjarta- og
æðasjúkdóma, eins og mataræði,
hreyfingu og lífsstíl.
Þjónustan hefur mælst vel fyrir
en fá má upplýsingar og leita
tilboða á info@hjartarannsokn.is
eða í síma 585 4700.
UTANAÐKOMANDI AÐ
STOÐ GETUR BORGAÐ SIG
Þegar breytingar standa til
í fyrirtækjum er mikilvægt að
halda starfsfólki eins upplýstu og
kostur er og leyfa því að taka þátt
í ferlinu. Fylgifiskar breytinga eru
oft einhvers konar breytingar á
högum starfsfólks. Hugsanlega
breytist vinnutíminn, álag,
starfsumhverfi eða staða.
Oft eru leiðtogarnir búnir að
hugsa allt til enda og eru komnir
langt fram úr starfsfólkinu. Það
getur skapað togstreitu og pirr-
ing. Best er að útskýra breyting-
arnar skref fyrir skref svo fólk fái
innsýn í hvað er í vændum. Fólk
þarf að fá tækifæri til að spyrja, tjá
sig og taka þátt í ákvörðunum. Sé
illa staðið að breytingum getur
það stofnað starfsandanum í
hættu sem aftur hefur áhrif á
framleiðni starfsfólks.
Stundum getur þurft utanað-
komandi aðstoð, til dæmis frá
vinnusálfræðingi, til að innleiða
breytingar og getur það jafnvel
margborgað sig.