Fréttablaðið - 19.08.2014, Side 50
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 34
SUND Ingibjörg Kristín Jónsdótt-
ir, SH, stakk sér fyrst til sunds af
íslensku keppendunum á Evrópu-
meistaramótinu í 50 metra laug í
Berlín í gær.
Ingibjörg keppti í 50 metra
flugsundi og kom í mark á 28,12
sekúndum. Hennar besti tími í
greininni er aðeins 0,09 sekúnd-
um betri. Þessi tími dugði Ingi-
björgu þó ekki til að komast í
undanúrslit. Hún hafnaði í 5. sæti
í sínum riðli í undanrásunum og
í 33. sæti af 38 keppendum alls-
Ingibjörg verður aftur á ferðinni
í fyrramálið þegar hún keppir í
100 metra skriðsundi.
Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH,
mætir einnig til leiks á morgun,
þar sem hún keppir í 100 metra
bringusundi. Komist Hrafnhildur
áfram fara undan undanúrslitum
um kvöldið. Hrafnhildur keppir
einnig í 50 metra bringusundi
á laugardaginn og 200 metra
bringusundi á fimmtudaginn. - iþs
Ingibjörg hafn-
aði í 33. sæti
Í LAUGINNI Ingibjörg keppir aftur á
morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað spjaldtölvan,
leikjatölvan og sjónvarpið nota mikið rafmagn.
Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í HEIMILISTÆKIN?
FÓTBOLTI Marta Carissimi, leik-
maður meistaraflokks kvenna-
liðs Stjörnunnar, lék með Inter á
síðasta ári, en hún er mjög spennt
fyrir leiknum sem fer fram á
Laugardalsvelli á miðvikudaginn.
Marta lék með Inter fyrir aðeins
einu ári, en leikur í dag með mót-
herjum ítalska stórveldisins á
Íslandi.
„Ég er spennt fyrir þessum leik
þar sem þetta er skemmtileg til-
viljun að ári eftir að ég spila fyrir
Inter á sínum tíma leik ég með
Stjörnunni en ég er frá Tórínó og
ég er því ekki stuðningsmaður
Inter,“ segir Marta í viðtali við
Fréttablaðið.
Þetta eru allt stjörnur
Marta þekkir aðstoðarþjálfara
Inter, en þeir hafa ekkert haft
samband til þess að spyrjast fyrir
um leikmenn Stjörnunnar.
„Þessi lið leika ekki saman líkt
og hérna heima svo við æfðum
ekki á sama stað og karlalið Inter.
Maður þekkir samt alla því þetta
eru allt stjörnur sem þurfa að
fá allt það besta,“ sagði Marta
létt en hún á ekki von á öðru en
að leikmenn Inter vanmeti ekki
Stjörnuna.
Þekkja fögnin
„Þeir vita nánast allt um þetta lið
og þeir vita að þeir eru leikmenn
Inter. Þeir vita að þetta verður
ekki auðvelt en þeir vita jafn-
framt að ætlast er til að þeir vinni
þetta nokkuð auðveldlega. Ítalskir
fjölmiðlar þekkja Stjörnuna út frá
fögnunum sem voru fyrir nokkr-
um árum og það býst enginn við
því að þeir geti veitt Inter ein-
hverja keppni. Inter er stórveldi á
heimsvísu og þeir gera kröfur um
það að fara langt í öllum keppnum
og það er gríðarleg pressa á leik-
mönnum Inter fyrir þennan leik,“
sagði Marta sem sagði að margir
af ítölskum vinum hennar vonist
til þess að Stjarnan skori í leikj-
unum til þess að leikmennirnir
tækju fögnin frægu.
„Fyrstu dagana voru allir að
tala um þessi fögn, ítalskir fjöl-
miðlar og íbúar Mílanó. Sumir töl-
uðu jafnvel um að leikmenn Inter
myndu valta yfir þá en ég hef
fundið fyrir því að Ítalir vonast til
þess að Stjarnan nái að skora. Það
eru margir sem eru búnir að deila
fögnunum á samskiptamiðlunum
og ég held að það sé óhætt að segja
að allir vonist eftir því að Stjarnan
skori og við fáum að sjá eitt fagn.
Það trúir enginn að þeir séu hætt-
ir að gera þetta. Ég sagði þeim
að þeir væru hættir þessu en þau
vonast samt eftir því að þeir bjóði
upp á eitt gott fagn,“ sagði Marta.
Tvisvar í Dalinn
Marta er líkt og áður hefur verið
nefnt frá Tórínó og mun því halda
með Stjörnunni í leiknum á mið-
vikudaginn.
„Ég fer á leikinn og ég mun
styðja Stjörnuna því ég spila með
þeim. Ég vonast til þess að þeir
nái góðum úrslitum. Svo mæti
ég að sjálfsögðu daginn eftir og
hvet íslenska landsliðið í leiknum
gegn Danmörku,“ sagði Marta
sem virðist vera yfir sig hrifin af
íslenskum fótbolta.
kristinnpall@365.is
Ítalir vona að Stjarnan skori
Leikmaður kvennaliðs Stjörnunnar var á mála hjá Inter á síðustu leiktíð en liðin mætast annað kvöld. Vinir
hennar heima á Ítalíu bíða spenntir eft ir því að sjá fögn Garðbæinga en þeir munu því miður grípa í tómt.
STJÖRNUKONA Marta Carissimi leikur nú með Stjörnunni og heldur með sínu liði. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR