Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 54
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 38 „Markmiðið er að dreifa karókí- gleðinni,“ segir Ragnheiður Maí- sól en hún blæs til útikarókís á Menningarnótt ásamt Margréti Erlu Maack. Útikarókíið verður að erlendri fyrirmynd en þær stöllur sækja innblástur til Mauerparks í Berlín þar sem slíkt karókí á sér stað alla sunnudaga. „Núverandi karókíið okkar er að New York-fyrirmynd,“ segir Mar- grét Erla en stöllurnar hafa vakið mikla athygli fyrir lífleg karókí sem þær hafa haldið undir lista- mannanafni sínu Hits&Tits. „Við ætlum að láta fólk skrá sig fyrir fram á Facebook-síðunni okkar, þannig að þetta endi ekki á að vera bara við að syngja,“ segir Ragnheiður en karókíið fer fram á torginu með útitaflborðinu á Lækj- argötu. Ragnheiður bætir við að þær verði með ýmsa aukahluti til þess að bæta frammistöðu söngvar- anna. „Við Margrét erum alltaf með alls konar aukahluti til að ná hámarksstuði, við mælum líka með að fólk mæti í búningum og síðan verða margfrægu, heima- gerðu konfettí-sprengjurnar á sínum stað. Mamma er að vinna í blómabúð og hún er að safna lauf- blöðum og blómum fyrir okkur,“ segir Margrét Erla. „Við viljum ekki sprengja konfettí sem meng- ar alla Reykjavík.“ Gleðin hefst klukkan 16.00 og stendur til 19.00. - bþ Hámarksstuð í karókígleðinni Margréti Erlu Maack og Ragnheiði Maísól þekkja efl aust margir sem karókídúóið Hits&Tits en á Menningarnótt halda þær karókí að erlendri fyrirmynd. VILJA DREIFA GLEÐINNI Stöllurnar í Hits&Tits vilja hámarka stuðið á Menn- ingarnótt. „Málið er að ég var inni í öðrum hópi sem kallast Andvaka og þar var fólk sem var að tala um að það væri einmana og andvaka, og ákvað ég að búa til svoleiðis hóp,“ segir hinn 34 ára gamli Hermann Þór Sæbjörnsson Neffe en hann hefur stofnað hóp á Facebook undir nafn- inu Kúrufélaga grúbban. Hópinn stofnaði Hermann Þór þann 28. júlí síðastliðinn og eru strax rúmlega 600 manneskjur skráðar í hann, en er ekki erfitt að halda utan um þetta? „Ég hef sett inn reglur sem fólk þarf að fara eftir eins og til dæmis að segja til um aldur, svo að fólk sé nú á svip- uðum aldri, og hvernig kúr það vill,“ segir Hermann Þór. „Það eru alltaf einhverjir sem vilja að kúrið endi með kynlífi en fólk þarf að taka það fram svo það fari í kúrið með sömu væntingar.“ Hann vill ekki að síðan breytist í einhverja einkamálasíðu. „Það vita allir að einkamál.is er bara sölusíða fyrir vændi.“ Hermann Þór, sem er kallaður Kúrubangsinn á síðunni, stofnaði hópinn í fullri alvöru og vill með honum búa til góðan og áreiðanleg- an vettvang fyrir fólk til þess að finna hlýju og vonandi góða vini. „Það er alvara í þessu. Ef fólk er með dónaskap og stæla þá hendi ég því út úr hópnum um leið. Ég hef þurft að henda nokkrum út úr grúppunni,“ útskýrir Hermann Þór. Honum barst ábending um kynferðisafbrotamann á síðunni og var sá aðili fjarlægður um leið. „Ef ofbeldismenn eða glæpamenn eru að reyna nýta sér hópinn þá hendi ég þeim út um leið. Þetta á að vera góður vettvangur. Ég veit um nokkur dæmi þess að fólk hafi farið á deit eftir að hafa kynnst í hópnum,“ segir Hermann Þór. Hann vill að hin ameríska stefnu- mótamenning verði sterkari hér á landi og telur hópinn kjörinn kost til þess að bæta úr stefnumóta- menningu Íslendinga. Hermann Þór ætlar sér stóra hluti og er með ýmsar hugmyndir ef vel gengur. „Ef við náum ákveðn- um fjölda fólks væri gaman að halda viðburð, eins konar kúrukvöld, þar sem fullt af kúrurum hittist. Það gæti einnig verið gaman að fara í bíó saman, það er oft góð stemn- ing sem myndast þar,“ segir Her- mann Þór. Þá útilokar hann ekki að ef vel gengur fari meðlimir hópsins saman í útilegu. „Það gæti einnig verið gaman að fara í utanlandsferð ef góður hópur myndast.“ gunnarleo@frettabladid.is Kallaður Kúrubangsinn Hermann Þór Sæbjörnsson hefur stofnað hóp á Facebook þar sem fólk getur fundið sér kúrufélaga. Fjöldi fólks hefur óskað eft ir aðgangi í hópinn. KÚRUBANGSI Hermann Þór Sæbjörnsson Neffe stofnaði hópinn Kúrufélaga grúbban á Facebook en fjöldi fólks hefur óskað eftir aðgangi í hópinn. Hópurinn á að vera góður vettvangur fyrir fólk til þess að kynnast og líða vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ Hermann Þór lýsti fyrir okkur hvernig gott kúr fer fram: „Gott kúr er til dæmis þegar horft er á góða bíómynd og fólk spjallar og hlær saman. Fólk kúrir og knúsast yfir myndinni. Oft leiðir kúrið út í kynlíf en fólk þarf að taka það fram hvort það vilji kynlíf eftir kúrið svo það sé nú með sömu væntingarnar,“ segir Hermann Þór um gott kúr. UPPSKRIFT AÐ GÓÐU KÚRI Rannsókn sem birt var í tímaritinu Comprehensive Psychology sýnir fram á að regluleg faðmlög og kúr hafi góð áhrif á heilsuna. Samkvæmt rann- sókninni lækkar tíu sekúndna faðmlag blóðþrýstinginn og hleypir horm- ónum í blóðstreymið sem láta okkur líða vel. Á meðan á þessu stendur lækkar magn stresshormónsins kortisóls í blóðinu. Þá geta faðmlög einnig minnkað einkenni þunglyndis og minnkað líkur á hjartaáföllum. ALLRA MEINA BÓT DORMA Holtagörðum, Reykjavík 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Húsgagnahöllinni, Reykjavík 558 1100 HE IL SU DÝ NU DA GA R Nature’s Rest Stærð cm. Verð Dýnudagar 80x200 62.900,- 53.465,- 90x200 68.900,- 58.565,- 100x200 72.900,- 61.965,- 120x200 79.900,- 67.915,- 140x200 92.900,- 78.965,- 160x200 99.900,- 84.915,- 180x200 117.900,- 100.215,- Nature’s Comfort Stærð cm. Verð Dýnudagar 100x200 99.900,- 84.915,- 120x200 119.900,- 101.915,- 140x200 138.900,- 118.065,- 160x200 149.900,- 127.415,- 180x200 164.900,- 140.165,- Nature’s Luxury Stærð cm. Verð Dýnudagar 120x200 129.900,- 110.415,- 140x200 155.900,- 132.515,- 160x200 169.900,- 144.415,- 180x200 189.900,- 161.415,- „Uppáhaldsdýrið mitt er kötturinn. Ég elska kattardýrin, í öllum form- um, tígrisdýr, pardusdýr, ljónin og heimiliskettina, allt saman uppá- halds.“ Anna Hlín söngkona. UPPÁHALDSDÝR „Ég var búin að hugsa þetta lengi,“ segir Sigrún Þorvaldsdóttir Norð- fjörð en hún lét nýverið húðflúra eiginhandaráritun Jóns Jónssonar á handlegginn. „Ég sendi honum bara skilaboð og sagðist vera pínu klikk- uð en samt ekki,“ segir Sigrún og hlær. „En hann var mjög til í þetta, hann er svo yndislegur og var alveg smá stressaður að skrifa áritunina.“ Sigrún er mikill aðdáandi Jóns og hlustar á tónlistina hans nánast dag- lega. „Þetta hljómar kannski fárán- lega en hann lagði bara einhver álög á mig, ég er alveg heltekin af tónlist- inni,“ segir Sigrún. „Ég spurði hann einmitt hvort hann færi ekki að gera aðra plötu, ég er með hina bara á repeat á bílnum,“ segir hún og hlær. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigrún fer undir nálina en hún er með þó nokkur húð- flúr. „Þetta toppar samt öll hin.“ Sigrún virðist þó hafa grætt meira en bara húðflúrið á atvik- inu þar sem Jón bauð henni að vera heiðursgestur á tónleikum sínum í desember. „Ég er alveg í sæluvímu.“ baldvin@365.is Flúraði Jón Jónsson á handlegginn Sigrún Þorvaldsdóttir Norðfj örð er mikill aðdáandi tónlistarmannsins Jóns Jóns- sonar sem var meira en reiðubúinn að gefa henni eiginhandaráritun til fl úrunar. Í SÆLUVÍMU Sigrún er með nýjustu plötu Jóns á „repeat“ í bílnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.