Fréttablaðið - 04.09.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 04.09.2014, Síða 2
4. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Reinhard, er þetta ekki leit að glópagulli? Á sviði gullleitar er ég svo mikill glópur að ég get ekki svarað þessu. Reinhard Reynisson er framkvæmdastjóri Málmís og Atvinnuþróunarfélgs Þingeyinga. Félögin ætla að leita að gulli í Þormóðsdal og víðar. VELFERÐARMÁL „Foreldrum er stýrt frá dagforeldrum og inn á leik- skólana með gjaldskrám borgar- innar,“ sagði Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í ræðu sinni á borgar- stjórnarfundi í fyrradag. Þar með var Áslaug að gagnrýna þann mikla mun sem er á gjaldskrám dagfor- eldra og ungbarnaleikskóla, en hvor starfsemin um sig er niðurgreidd af borginni en þó rekin af öðrum. Áslaug bendir á að dagforeldra- kerfið sé mun ódýrara úrræði en að reka leikskóla. Með hverju barni á ungbarnaleik- skóla greiði borg- in 110-140 þúsund krónur en 46 þús- und hjá dagfor- eldrum. Þannig er mun dýrara að hafa barn hjá dagforeldri. „Það er hægt að lækka kostnað foreldra og borgarinnar með því að styrkja dagforeldrakerfið,“ segir Áslaug en hún hefur áhyggjur af dagforeldrastéttinni vegna fækk- unar barna sem hljóti að tengjast gjaldskránni. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, segist ekki geta útskýrt núver- andi gjaldskrá. „Það er sjálfsagt og eðlilegt að við skoðum þetta. Ég veit ekki af hverju fyrirkomulag- ið er eins og það er, því ég tók ekki ákvörðun um það. En meirihlutinn hyggst skoða allar gjaldskrár borg- arinnar og þetta verður hluti af þeirri vinnu,“ segir Sóley. - ebg Áslaug Friðriksdóttir gagnrýnir að niðurgreiðslur borgarinnar til daggæsluúrræða séu misháar: Segir gjaldskrár kæfa dagforeldrakerfið SÁDI-ARABÍA, AP Háttsettur starfs- maður öryggisyfirvalda í Sádi- Arabíu sagði að lögreglan hefði handtekið 88 menn sem eru grun- aðir um að vera hluti af hreyf- ingu sem tengist al-Kaída-sam- tökunum. Hreyfingin hafði lagt á ráðin um árásir bæði í Sádi-Arab- íu og öðrum löndum. Talsmaður innanríkisráðuneyt- isins, Mansour al-Turki, sagði að 59 af þeim sem voru handteknir hefðu áður þurft að dúsa í fang- elsi vegna svipaðra brota. Hann bætti því við að hreyfingin hefði verið undir smásjá yfirvalda í marga mánuði. - fb Lögðu á ráðin um árásir: 88 handteknir í Sádi-Arabíu SPÁNN Foreldrar enska drengs- ins Ashya King fengu að hitta son sinn á sjúkrahúsi á Spáni þar sem hann hefur verið undir læknis- hendi, samkvæmt BBC. Foreldrarnir, Brett og Nagh- emeh King voru handteknir í borginni Madrid eftir að hafa tekið fimm ára son sinn af sjúkra- húsi í ensku borginni South- ampton og flutt til Spánar. Þetta gerðu þau þvert á læknisráð en drengurinn er með heilaæxli. Saksóknaraembættið í Bretlandi dró handtökuskipun á hendur for- eldrunum til baka en málið hefur vakið mikla athygli þar í landi. - fb Foreldrar lausir úr fangelsi: Fengu að hitta veikan son sinn NÍGERÍA Ríkisstjórn Borno-ríkis í Norðaustur-Nígeríu segir borgina Bama ekki á valdi herskáu íslamistanna í Boko Haram, þrátt fyrir að fregnir þess efnis hafi borist frá íbúum og öryggissveitum borgar- innar. Þúsundir flýja úr norðausturhluta landsins yfir í Kamerún um þessar mundir. Samkvæmt fréttaveitunni AP hófu liðsmenn Boko Haram árásir á kamerúnsk þorp í síðustu viku. Meðal annars fundust þrír Kamerúnar myrtir í kaþólskri kirkju í þorpinu Assighassia, en íslamistarnir hafa til þessa látið sér nægja að ræna Kamerúnum og krefjast lausnar- gjalds. - bá Yfirvöld neita því að Boko Haram ráði yfir borginni Bama: Þúsundir flýja íslamista í Nígeríu HRAKIN FRÁ HEIMILUM SÍNUM Flóttamenn frá Bama leita hælis í skólabyggingu í borginni Maiduguri, stærstu borg Borno-ríkis. Frásögnum ber ekki saman um hvort Boko Haram hafi lagt Bama undir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Það er hægt að lækka kostn- að foreldra og borgarinnar með því að styrkja dagforeldrakerfið. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins SÓLEY TÓMASDÓTTIR TÆKNI Enn á eftir að skipa í nefnd sem leggja átti fram áætlun um aðgerðir til að gera íslensku gjald- genga í stafrænni upplýsinga- tækni. Samþykkt var einróma á síðasta þingi að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa í nefndina, sem átti að leggja áætl- un sína fram í síðasta lagi þann 1. september síðastliðinn. Eiríkur Rögnvaldsson, prófess- or í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, telur að íslenskan sé í hættu ef ekki er hægt að nota hana í stafrænu umhverfi. „Það er margs konar hugbún- aður og gagnasöfn sem þarf að byggja upp til þess,“ segir Eirík- ur. „Það liggur fyrir að einkafyr- irtæki standa ekki fyrir því hér. Þannig að ef íslenskan á að vera gjaldgeng á þessu sviði, þá verður að kosta það að minnsta kosti að einhverju leyti með almannafé.“ Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu dróst verkefnið sökum mikilla anna en vonast er til að skipað verði í nefndina á næstunni. Eiríkur segir að tíminn sé nokkuð dýrmætur hvað þetta varðar. „Það má svo sem segja að það skipti ekki sköpum, einhverjir mánuðir til eða frá, en það er mik- ilvægt að koma þessu af stað,“ segir Eiríkur. Ályktunin var samþykkt á Alþingi þann 12. maí. Hún felur í sér að sérfræðingar í málvísind- um og upplýsingatækni skili áætl- un sem innihaldi tímasett yfirlit um aðgerðir til að stuðla að notk- un íslensku á vettvangi stafrænn- ar upplýsingatækni, kostnaðarmat og fjármögnun. - bá Skila átti áætlun um íslensku í stafrænni upplýsingatækni nú 1. september: Ekki enn búið að skipa nefndina LÝSIR ÁHYGGJUM Eiríkur Rögnvalds- son hefur lengi bent á mikilvægi þess að hægt sé að nota íslensku í hinum stafræna heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPURNING DAGSINS Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 3 brennarar úr ryðfríu stáli FÉLAGSMÁL Hljóðbókasafn Íslands hefur tekið þá ákvörðun að inn- heimta árgjöld af lánþegum sínum í fyrsta skipti. Ástæða þess er bág fjárhagsstaða stofn- unarinnar og gjaldtaka er nauð- synleg til að safnið geti hald- ið uppi þeirri þjónustu sem það sinnir. Hljóðbókasafnið heyrir undir mennta- og menningarmálaráðu- neytið og hefur fjöldi lánþega margfaldast frá árinu 2007. Þá voru lánþegar um 1.600 og þrír af hverjum fjórum voru aldrað- ir einstaklingar með sjóntrufl- anir. Nú eru lánþegar um 7.200. Lesblindum námsmönnum hefur fjölgað hlutfallslega langmest. „Við gerðum ýmislegt á árinu 2 0 07 t i l að kynna rétt les- blindra. Í lögum er talað um að þeir sem ekki geta lesið prent- að letur að ein- hverju marki eigi rétt á þjón- ustu frá okkur,“ segir Þóra Sig- ríður Ingólfs- dóttir, forstöðu- maður Hljóðbókasafnsins. „Fyrst um sinn var þjónustan hugsuð fyrir blinda en nú sinnum við mikið til lesblindum námsmönn- um. Til að mynda býr Hljóð- bókasafnið til námsefni fyrir menntaskólanemendur með lestr- arörðugleika vegna lesblindu. Því hefur starfsemi okkar og þjón- usta vaxið mikið síðustu ár.“ Bergvin Oddsson, formaður Blindrafélagsins, vonar að þessi ráðstöfun Hljóðbókasafnsins, að innheimta árgjöld af lánþegum sínum, verði aðeins tímabund- in. „Hljóðbókasafnið hefur á síð- ustu árum verið að auka þjón- ustu sína gríðarlega og er það vel. Ég vona að þessi ráðstöfun verði til skamms tíma og opni kannski augu ríkisvaldsins til að auka fjárframlög til stofnun- arinnar. Hljóðbókasafnið sinnir ekki aðeins blindum heldur einn- ig lesblindum og öldruðum og því er mjög mikilvægt að það geti á sem bestan hátt sinnt þjónustu sinni af kostgæfni.“ Þóra Sigríður segir að stofnun- in hafi ekki fengið neinar hækk- anir á fjárlögum frá árinu 2008 þrátt fyrir þessa auknu þjón- ustu. „Á sama tíma og við erum að setja allt okkar efni yfir á staf- rænt form af hljóðsnældum, og höfum fengið nýsköpunarverð- laun fyrir þá vinnu okkar, hafa fjárframlög frá hinu opinbera staðið í stað lengi og þau voru skert á árinu 2008,“ segir Þóra Sigríður. „Nú er svo komið að námsmenn með lesblindu hlaða næstum öllu efni sínu niður af netinu í stað þess að fá efnið á geisladiskum.“ sveinn@frettabladid.is Hljóðbókasafn mun innheimta árgjöld Hljóðbókasafn Íslands hefur ákveðið að innheimta árgjöld af lánþegum sínum. Hefur ekki fengið hækkanir á fjárlögum frá hruni. Lánþegahópurinn hefur marg- faldast og þjónustar stofnunin lesblinda námsmenn í ríkara mæli en áður. BERGVIN ODDSSON formaður Blindrafélagsins HLJÓÐBÓKASAFN ÍSLANDS Fjöldi lánþega hjá safninu hefur margfaldast frá árinu 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrst um sinn var þjónustan hugsuð fyrir blinda en nú sinnum við mikið til lesblindum námsmönnum. Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.