Fréttablaðið - 04.09.2014, Page 18

Fréttablaðið - 04.09.2014, Page 18
4. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18 Í þrjú ár hefur Íþróttafélagið ÍR boðið upp á sérstakt tilboð sem þeir kalla ÍR-ungar. Það er íþróttatil- boð fyrir krakka í fyrsta og öðrum bekk í Breiðholti. Í ÍR-ungum er greitt eitt gjald fyrir önnina 17 þús- und krónur og barnið getur farið í frjálsar íþróttir, handbolta, körfu- bolta, fótbolta, keilu og skíði. Hægt er að nota frístundakortið, sem er 15 þúsund krónur á önn. „Þetta hefur skilað sér í því að fleiri börn eru komin til að æfa hjá okkur. Við höfum orðið vör við það að börn vilja skipta á milli greina og þurfa smá tíma til þess að finna réttu greinina,“ segir Haukur Þór Haraldsson, framkvæmdastjóri ÍR. Hann segist kannast við að í Grindavík hafi svipað fyrirkomu- lag verið tekið upp, en veit ekki til þess að fleiri félög hafi tekið þetta upp í Reykjavík. „Við erum með fleiri greinar en mörg önnur félög, sem eru kannski þekktust í einni íþróttagrein eða tveimur, þannig að það er auðveldara um vik fyrir okkur að gera þetta,“ segir Haukur Þór. Hann segir að önnur íþrótta- félög hafi verið í sambandi við ÍR til þess að spyrjast fyrir um þetta tiltekna fyrirkomulag. Annað félag sem íhugar þenn- an möguleika alvarlega er Fylkir í Árbæ. Árni Jónsson uppeldisfræð- ingur hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri félagsins um nokk- urra mánaða skeið. Hann segir að þetta hafi verið skoðað nokkrum sinnum hjá félaginu á liðnum árum. Sumar rannsóknir bendi til þess að aukið val dragi úr brottfalli ungra íþróttaiðkenda. Árni segir þó að það sé auðveld- ara að fara út í þetta verkefni þar sem deildirnar innan íþróttafélag- anna eru fleiri. Hann bætir þó við að það geti verið góður kostur fyrir íþróttafélög að vinna saman að því að auka úrval barna. Til dæmis gæti Fylkir unnið að þessu verkefni með sundfélaginu Ármanni sem hefur æfingar í Árbæjarlaug. Árni segir þó að félagið þurfi meiri peninga til þess að geta hrint þessu verkefni í framkvæmd. Til þess að það gæti orðið að veruleika þurfi að bæta við tveimur starfs- mönnum. Hann hefur rætt málið óformlega við Sóleyju Tómasdótt- ur, forseta borgarstjórnar. „Við höfum verið að reyna að fara meira í þessa átt, að kynna meira fjölbreytileikann, en ekki skikka félögin til þess að gera neitt. Vegna þess að við höfum áttað okkur á því að langmesta vinnan innan íþróttafélaganna er unnin í sjálf- boðaliðavinnu þó að það séu auð- vitað miklir styrkir,“ segir Kjartan Freyr Ásmundsson, markaðs- og þróunarstjóri hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur, sem eru heildarsam- tök íþróttafélaganna í Reykjavík. „Þetta er þróun í ákveðna átt, sem allir eru að stefna að, félögin líka,“ segir hann. jonhakon@frettabladid.is Brottfall minnkar með auknu úrvali Íþróttafélag Reykjavíkur býður börnum í fyrsta og öðrum bekk að stunda fleiri en eina íþrótt og greiða eitt árgjald. Fleiri íþróttafélög hyggjast fylgja í kjölfarið. Rannsóknir benda til að fyrirkomulagið leiði til þess að brottfall minnki. NEYTENDUR WOW air hefur hækkað töskugjald um 14,4 pró- sent, eða úr 3.495 krónum í 3.999 krónur. Nú kostar átta þúsund krónur að taka með sér tösku fram og til baka ef farið er til útlanda, þetta kemur fram á vefn- um turisti.is. WOW air fór að taka sérstakt gjald fyrir töskur fyrir tveimur árum. Þá var gjaldið 2.900 krónur fyrir hverja tösku. Töskugjaldið hefur því hækkað um nærri 1.100 krónur á tveimur árum. - jme WOW air hækkar töskugjald: Átta þúsund fyrir töskuna Framkvæmdastjórn ESB hefur sent Apple, Google og fleiri fram- leiðendum erindi vegna kvartana sem borist hafa vegna rafrænna kaupa innan tölvuforrits (apps) og þá helst tölvuleikja. Margir slíkir leikir eru auglýstir sem gjald- frjálsir en þegar komið er á visst stig leikjanna þarf að greiða fyrir vissa hluti, næsta borð, áfram- haldandi notkun og fleira. Google hefur ákveðið að gera þó nokkrar breytingar en hið sama á ekki við um Apple. - fbj Sameiginleg evrópsk aðgerð: Skoða rafræn „in-app“-kaup Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir að nauðsynlegt sé að veita bönkunum aðhald. Þetta sagði hann í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í gær er hann var spurður út í hærri gjaldtöku bankanna. Hann segir hugsanlegt að efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis ræði stöðuna þegar þing kemur saman. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mánudag íhugar Arion banki nú að taka hærri gjöld af fólki sem kemur í bankana á fund gjaldkera. Steingrímur segir að fyrirkomulag neytendamála á fjármálamarkaði sé óskýrt. „Og síðan verðum við að horfast í augu við það að við erum með dæmigerðan fákeppnismarkað og hann er náttúrulega enn grimm- ari eftir hrun og endurreisn nýju bankanna því að hlutdeild sparisjóð- anna hefur minnkað mjög mikið,“ segir hann. Markaðnum sé að uppi- stöðu skipt upp milli þriggja mjög stórra banka. „Og þá er auðvitað ástæða til að vera mjög vel á verði,“ segir Steingrímur. - jhh Steingrímur J. Sigfússon segir nauðsynlegt að veita bönkunum aðhald: Fákeppni ríkir á bankamarkaði VILL AÐHALD Steingrímur J. Sigfússon segir meiri fákeppni á bankamarkaði eftir hrun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Leigjendaaðstoð Neyt- endasamtakanna hefur fengið margar fyrir- spurnir varðandi skyld- ur leigjenda við lok leigu- sa mni ngs , va rða ndi tryggingar og rétt leigj- anda til afsláttar þegar afnot hans af íbúðinni skerðast vegna viðgerða eða viðhalds af hálfu leigusala. „Haustið er tíminn þar sem að fólk er mikið að lenda í því að leigusamningum er að ljúka og þá geta komið upp mál þar sem til dæmis leigusali vill að leigjandi skili íbúðinni nýmálaðri,“ segir Hrannar Már Gunnarsson hjá Leigjendaaðstoðinni. Samtökin hafa birt yfirlit um nokkur dæmi þar sem réttindi og skyldur bæði leigjanda og leigusala eru útskýrð nákvæmlega við slíkar aðstæður. Hrannar segir leigu- sala eiga að sjá um allt viðhald annað en það sem telst vera skemmdir af völdum leigjanda. „Það er skylda leigusala að sanna að um saknæma háttsemi leigjanda sé að ræða ef skemmdir koma upp. Í fullkomn- um heimi myndu byggingar- fulltrúar alltaf taka út leiguhús- næði fyrir og eftir leigutímann.“ Í yfirliti Leigjendaaðstoðar- innar má einnig finna skýringar á reglum um uppsagnarfrest á tímabundnum og ótímabundnum leigusamningum og rétt leigjenda þegar viðgerðar- og viðhaldsvinna hefur í för með sér skert afnot hans af leiguhúsnæðinu. - fbj Veita upplýsingar um reglur um leigusamninga: Margar fyrirspurnir HRANNAR MÁR GUNNARSSON Í AUSTURBERGI Íþróttafélag Reykjavíkur býður meðal annars leikfimi fyrir yngstu börnin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK „Bestu kaupin mín eru ábyggilega síminn minn,“ segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði meistaraflokks Stjörnunnar í knattspyrnu kvenna. Hún á iPhone sem er orðinn þriggja ára gamall. Áslaug segist nota símann sinn mjög mikið. Meðal annars til að taka á móti og senda tölvupóst og við ýmis verkefni í vinnunni. „Ég fer bráðum að kaupa mér nýjan þannig að ætli það verði ekki næstu góðu kaup,“ segir hún. Þegar Ásgerður er spurð að því hver séu verstu kaupin tekur hún sér langan tíma til umhugsunar, en kemst að þeirri niðurstöðu að ekkert eitt standi upp úr. „Ég á að vísu fimmtán pör af NIKE-skóm en ég myndi ekki segja að það væru vond kaup,“ segir hún. NEYTANDINN Ásgerður Stefanía Baldursdóttir Á þriggja ára gamlan iPhone Ég fer bráðum að kaupa mér nýjan þannig að ætli það verði ekki næstu góðu kaup. Þetta hefur skilað sér í því að fleiri börn eru komin að æfa hjá okkur. Haukur Þór Haraldsson, framkvæmdastjóri ÍR Kringlunni - Skeifunni - Spönginni Kringlunni Skeifunni Spönginni Sími 5 700 900 Umgjörð og gler í þínum styrkleika +/- 4 Fullt verð 44.590 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.