Fréttablaðið - 04.09.2014, Side 41
FIMMTUDAGUR 4. september 2014 | TÍMAMÓT | 29
Stórtónleikar
í Eldborg Hörpu
12. september 2014
kl. 21.00
Fjölmörg af stærstu nöfnum íslenskrar
tónlistar sameinast í minningu um
orgelmeistarann Karl J. Sighvatsson
FLOWERS
Björgvin Halldórsson og Jónas R. Jónsson
MANNAKORN
Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson
TRÚBROT
Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson
MEGAS
HJALTALÍN
Högni Egilsson og Sigríður Thorlacius
APPARAT ORGAN KVARTETT
ÓLAFUR ARNALDS
Allur ágóði af tónleikunum rennur til Minningarsjóðs Karls J.
Sighvatssonar sem styrkir ungt tónlistarfólk til náms.
Miðasala á midi.is og harpa.is
Styrktaraðilar Karlsvöku:
MERKISATBURÐIR
1845 Jón Sigurðsson, síðar nefnd-
ur forseti, og Ingibjörg Einarsdóttir
gefin saman í hjónaband
1888 Jón Árnason, þjóðsagnasafnari
og landsbókavörður, lætur lífið
1888 George Eastman skráir vöru-
merkið Kodak
1943 Íslandsklukkan eftir Halldór
Kiljan Laxness kemur út
1948 Wilhelmina Hollandsdrottning
segir af sér vegna heilsufarsástæðna
1949 Kirkjan á Möðrudal á Fjöllum
vígð
1963 Swissair-flug 306 brotlendir
nærri Dürrenäsch í Sviss og áttatíu
manns láta lífið
1969 Björgvin Halldórsson kosinn
poppstjarna ársins á popphátíð í
Laugardalshöllinni í Reykjavík
1970 Salvador Allende er kosinn for-
seti Síle
1973 Bókstafurinn Z felldur úr opin-
beru máli
1984 Níunda og síðasta hrina Kröflu-
elda hefst
2010 Jarðskjálfti upp á 7,1 á Richter
skekur suðurhluta Nýja-Sjálands
Átta ár eru liðin frá andláti
sjónvarpsstjörnunnar Steves
Irwin, sem oftast var kallaður
Krókódílaveiðarinn.
Steve lést þann 4. september
árið 2006 við tökur á heimild-
armynd um ástralska kóralrif-
ið við Norðaustur-Queensland
þegar risavaxin stingskata
réðst á hann og veitti honum
banasár.
Steve var aðeins 44 ára gam-
all og hafði helgað líf sitt gerð
sjónvarpsefnis um krókódíla
og önnur óargadýr. Mörgum
þótti hann of djarfur í nágrenni
villidýra og varð það að lokum
honum að bráð.
Steve lét eftir sig eiginkonu
og tvö börn en Justin Lyons,
myndatökumaður Krókódíla-
veiðarans, ljóstraði upp síðustu
orðum stjörnunnar fyrir stuttu.
„Hann leit á mig rólegur og
sagði: Ég er að deyja. Það var
það síðasta sem hann sagði,“
sagði Justin í áhrifaríku viðtali
við Sydney Morning Herald.
- lkg
Krókódíla-
veiðarinn allur
GLEÐIGJAFI Steve var mikill gleðigjafi
en mörgum þótti hann of djarfur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leitarvélin Google var stofnuð þennan dag
árið 1998 og fagnar hún því sextán ára
afmæli sínu í ár. Stofnendur leitarvélarinnar
voru þeir Larry Page og Sergey Brin, en
þeir voru þá nemendur við Stanford-há-
skólann í Kaliforníu. Það sem gerði Google
frábrugðna öðrum leitarvélum var að í stað
þess koma með þá síðu sem oftast hafði
verið flett upp, hönnuðu þeir kerfi sem
tengdi síður saman til þess að auka gæði
upplýsinga í niðurstöðunum. Í dag leitar
hún að tvö hundruð atriðum á sekúndu
áður en hún skilar niðurstöðum. Árið 1999
létu stofnendur síðunnar undan og hófu
að selja auglýsingar á síðuna, en það var
eitthvað sem þeir ætluðu sér ekki að gera.
Í dag er Google eitt stærsta fyrirtæki heims
ásamt því að vera vinsælasta leitarvélin
með um tvær milljónir notenda á sekúndu.
Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðustu ár og
er í dag ekki bara leitarvél. Google veitir
ýmsa aðra þjónustu undir sínu merki og
heldur úti tölvupóstinum G-mail, korta-
vefnum Google Maps, þýðingarvélinni
Goole Translate, gervihnattaleitarvélinni
Google Earth og það nýjasta eru gleraugun
Google Glass. Hjá fyrirtækinu starfa nú tæp
fimmtíu þúsund manns í sjötíu skrifstofum
í fjörutíu löndum, og er það talið einn
skemmtilegasti vinnustaður heims í dag.
ÞETTA GERÐIST: 4. SEPTEMBER 1998
Leitarvélin Google var stofnuð þennan merka dag