Fréttablaðið - 04.10.2014, Síða 16
4. október 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
Árið 2006 var gert
samkomulag við þáver-
andi ríkisstjórn um
stefnumörkun til að
efla íslenska kvik-
myndagerð 2007-2010.
Aðilar voru sammála
um að Kvikmyndasjóð-
ur þyrfti að vera 700
milljónir króna til að
geta rækt menningar-
hlutverk sitt við fram-
leiðslu á íslensku kvik-
myndaefni og var sett
upp áætlun hvernig því
markmiði yrði náð á
samningstímabilinu.
700 milljónir á verð-
lagi dagsins í dag sam-
svara tæplega 1.200
milljónum. Framlög í
Kvikmyndasjóð á þeim
tíma sem síðan er lið-
inn hafa aldrei náð
markmiðum samkomu-
lagsins, þótt vissulega
hafi þau farið nálægt
því árið 2013. Öll hin
árin er munurinn sláandi og samanlagt
á árunum 2010-2014 vantar 2,6 millj-
arða til að þetta markmið náist. Í fjár-
lögum fyrir árið 2014 var framlag til
Kvikmyndasjóðs skorið niður um hart-
nær 40% milli ára, eða um 400 millj-
ónir króna.
Árið 2010 var Kvikmyndasjóður líka
skorinn niður á milli ára um hartnær
30%. Þá var verið að vinna með fjár-
lagagat upp á 240 milljarða króna. Í
slíku árferði var ekki um auðugan garð
að gresja og kvikmyndagerðinni var
stillt upp við vegg þegar núverandi
samkomulag var endurnýjað. Í sam-
komulaginu sem gildir 2011-2015 var
áætlað að framlag ársins 2015 yrði 700
milljónir króna.
Á núvirði er sú tala 812 milljónir
króna og því vantar enn þá nær 100
milljónir króna í áætlað framlag 2015
til að ná framlagi sem var í kreppu-
samningnum frá árslokum 2010. Á
sama tíma eru tekjur ríkissjóðs áætl-
aðar að raunvirði 17,7% hærri en 2010 á
verðlagi í ágúst 2014.
Ekki áhugi
Af þessum tölum er fátt annað hægt
að álykta annað en að vilji stjórnvalda
standi ekki til þess að hér sé framleitt
íslenskt kvikmyndaefni af því magni og
gæðum sem þó var víðtæk sátt um árið
2006. Þrátt fyrir betri stöðu ríkissjóðs
í dag og hærri framlög til mennta- og
menningarmála en árið 2006, virðast
stjórnvöld ekki hafa áhuga á að efna
samninga frá 2006 og 2010. Íslensk
kvikmyndagerð er sú eina í heimin-
um sem talar íslensku. Innlend kvik-
myndagerð endurspeglar þá menningu
og samfélag sem við lifum í og sú eina
í heiminum sem endurspeglar íslenskt
þjóðfélag. Og þetta er staðan, þrátt
fyrir að fyrir löngu sé sýnt fram á að
öll opinber fjárfesting í innlendri kvik-
myndamenningu skili sér margfalt til
baka í ríkiskassann í krónum talið.
Kvikmyndasjóður er samkeppnis-
sjóður. Rétt eins og tveir aðrir slíkir,
varð hann fyrir miklum niðurskurði
á síðustu árum. Kvikmyndaframleið-
endur fagna því að stjórnvöld hafi
séð að sér með frekari niðurskurð á
tveimur af þessum mikilvægu sam-
keppnissjóðum en finnst á sama tíma
undarlegt að þriðji samkeppnissjóður-
inn sé skilinn eftir. Þegar þróun þess-
ara sjóða er skoðuð á sex ára tímabili
sést greinilega hvernig Kvikmynda-
sjóður hefur verið skilinn eftir. Árið
2009 eru Tækniþróunarsjóður og Kvik-
myndasjóður nær jafnir að stærð,
en árið 2015 stefnir í að sá síðar-
nefndi sé einungis um helmingur af
stærð hins fyrri, eða 1.373 m. kr. á móti
725 milljónum. Þarna munar því um 650
milljónir á framlagi til samkeppnissjóða
sem voru nær jafn stórir árið 2009.
Af framansögðu er kannski ekkert
undarlegt að undirritaðir auglýsi eftir
efndum og endurnýjun frá ríkisstjórn
Íslands á stefnumörkun í íslenskri kvik-
myndamenningu.
Auglýst eftir efndum og endurnýjun
Er þörf fyrir breytt viðhorf til fóstureyð-
inga? Að mínu mati er þörf fyrir umræðu
og samtal um fóstureyðingu. Ástæðan er
sú að hátt í 1.000 fóstureyðingar eru fram-
kvæmdar á Íslandi ár hvert, sem þýðir að
hátt í 2.000 manns taka árlega þá ákvörðun
að binda enda á meðgöngu barns síns. Nú
skyldi enginn halda að sú ákvörðun og fram-
kvæmd láti nokkurt foreldri ósnortið. For-
eldrið þarf að lifa við þessa ákvörðun og það
reynist mörgum erfitt, fyrir suma er fóstur-
eyðingin kveikjan að þung-
lyndi sem aldrei læknast.
Tilhugsunin og söknuðurinn
yfir því lífi sem hefði getað
orðið verður óbærileg, og
engin geðlyf geta læknað
þessa hjartasorg,
Bæn til þjóðar
Eflum forvarnir, fækkum
þeim foreldrum sem neyð-
ast til að enda líf barns síns.
Upplýsum betur um stuðn-
ing velferðarkerfisins sem
er til staðar fyrir þá verðandi foreldra sem
kjósa að ganga með barnið sitt. Hvetjum for-
eldra unglinga til að ræða meira við ungling-
inn sinn um kynlíf, engin getnaðarvörn veitir
100% vörn gegn þungun, því fylgir kynlífi
alltaf áhætta á getnaði og fóstureyðing er
engin lausn. Fóstureyðing er neyðarúrræði
sem þarf að vera til staðar en henni fylgir
áhætta, það er enginn samur eftir þetta
neyðarúrræði. Bætum fræðslu um kynlíf,
ræðum um afleiðingar kynlífs og áhættuna
sem fylgir kynlífi. Spyrnum gegn markaðs-
væðingu óhefts kynlífs, gerum athugasemdir
þegar fjölmiðlar hvetja til óábyrgrar kyn-
lífsiðkunar. Bætum sjálfstraust ungmenna
okkar, þau þurfa ekki að vera kynferðislega
virk til að þóknast tíðarandanum.
Umfram allt rjúfum þagnarmúrinn.
Bænin sem má
ekki heyrast
N r Hyundai i10
Verðlaunab ll fr 1.990.000 kr.
Hyundai – Kauptúni 1 – Beint á móti IKEA – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
5
2
8
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
N r Hyundai i10 hefur unnið til 10 verðlauna s ðastliðnum fj rum m nuðum og er n efa einn skemmtilegasti sm b llinn
markaðnum. Með fullkominni 4G Wi–Fi tengingu geta farþegar auðveldlega breytt i10 minnsta skemmtistað heimi og sent
beint fr skemmtilegum b lt r með g ðum vinum. Gerðu eitthvað skemmtilegt!
Kynnið ykkur n ja l nam guleika hj s lum nnum Hyundai
5 ra byrgð
takmarkaður akstur
Hyundai i10 – eldsneytisnotkun: 4,7 l/100 km bl nduðum akstri*
• 4G Wi–Fi tenging
• ESP st ðugleikast ring
• ABS hemlar með EDB hemlaj fnun
• 6 loftp ðar
• Upphituð sæti og leðurst ri
• Aksturst lva
• Þokulj s
• ISO-fix barnab lst lafestingar
Fyrsti b llinn markaðnum
með Wi–Fi tengingu
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
10% TBORGUNINN N JANHYUNDAI
N i b llinn er Hyundai
OPIÐ DAG
FR KL. 12-16
MENNING
Hilmar
Sigurðsson
formaður Sam-
bands íslenskra
kvikmyndafram-
leiðenda
Friðrik Þór
Friðriksson
formaður Samtaka
kvikmyndaleikstjóra
SAMFÉLAG
Guðrún
Sæmundsdóttir
situr í stjórn
félagsins Valkostir.is
1,2
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
0
06 07 08 09 10 11 12 13 14 15
KVIKMYNDASJÓÐUR
2006-2015
ma. kr.
1,8
1,6
1,4
1,2
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
0
ma. kr.
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
ÞRÓUN SAMKEPPNISSJÓÐA
2009-2015
Rannsóknarsjóður
Tækniþróunarsjóður
Kvikmyndasjóður