Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 18
4. október 2014 LAUGARDAGUR
| HELGIN | 18
Söngleikir, leyndardómar
og samkynhneigð
Framhaldsskólarnir eru nú í óðaönn að undirbúa leiksýningar vetursins. Fréttablaðið
heyrði í nokkrum formönnum nemenda- og leiklistarfélaganna og ljóst er að framund-
an er spennandi vetur í leiklistinni. Söngleikir og dramatískar ástarsögur verða vinsælar.
Verzlunarskólinn
Nemendafélag Versló setur upp söng-
leikinn Saturday Night Fever, byggð-
an á samnefndri kvikmynd með John
Travolta í aðalhlutverki. Leikstjóri
er Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Listafélag Verslunarskólans setur
svo upp nýja útgáfu af Shakespeare-
leikritinu Rómeó og Júlíu, en í þess-
ari útgáfu verða elskhugarnir tvær
stúlkur, þær Rómeyja og Júlía. Með
aðalhlutverk fara þær Agnes Gísla-
dóttir og Rannveig Eva Snorradóttir.
Frumsýnt verður þann 7. nóvember.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
„Leikfélagið okkar heitir Yggdrasill og
í vetur ætla þau að setja upp leikritið
101 Reykjavík eftir Hallgrím Helga-
son,“ segir Stefanía Tara Þrastardótt-
ir, formaður Þórdunu, nemendafélags
Verkmenntaskólans á Akureyri, en
flestir muna eftir kvikmyndinni sem
gerð var eftir bók Hallgríms. „Við
fáum flottan leikstjóra, hann Jón Gunn-
ar Þórðarson, en hann hefur áður sett upp Rocky Horror, Ræflavík
og Lísu og Lísu hjá Leikfélagi Akureyrar. Við stefnum svo að því að
frumsýna 24. október, þetta verður gaman og við hlökkum mikið til að
setja upp flotta sýningu.“
Rómeyja og Júlía Agnes Gísla-
dóttir og Rannveig Eva Snorradóttir.
Stefanía
Tara Þrastar-
dóttir, for-
maður nem-
endafélagsins
Þórdunu
Menntaskólinn við Hamrahlíð
„Við í Leikfélagi Menntaskólans við Hamra-
hlíð munum setja upp sýningu næsta vor.
Leikstjórinn okkar í ár er enginn annar en
Dóri DNA. Núna á haustönn verður sett upp
sýning eftir Helga Grím Hermannsson, nem-
anda í skólanum, en hann bar sigur úr býtum
í handritakeppni sem haldin var í skólanum.
Það er svakaleg leynd sem hvílir yfir því
hvaða sýning verður síðan sett upp í
vor en hún verður eflaust tilnefnd til
Grímunnar sem snilld ársins,“ segir
leikfélagsstjórn Menntaskólans við
Hamrahlíð.
Leikfélagsstjórnin
RÓMEÓ OG JÚLÍA
LEIKFÉLAGIÐ YGGDRASILL
BEETLEJUICE
Menntaskól inn
í Reykjavík
Rakel Björk Björnsdóttir, for-
maður Herranætur, leikfélags
Menntaskólans í Reykjavík, var
dularfull þegar hún var spurð út
í hvaða verk yrði sett upp í vetur,
og gat því miður ekki ljóstrað
því upp hvaða sýning hefði orðið
fyrir valinu. „Þetta verður ein
stærsta sýning sem við höfum
sett upp, enda afmælissýning
því þetta verður 170. sýningin
sem Herranótt setur upp,“ segir
Rakel. „Stefán Hallur Stefánsson,
leikari og leikstjóri, mun leik-
stýra verkinu sem verður sýnt í
Gamla bíói og við stefnum að því
að frumsýna þann 27. febrúar,“
segir Rakel. „Verkið verður bæði
fyndið og dramatískt, tónlistin
mjög góð og skemmtileg. Þetta
verður magnað!“
Menntaskól inn
á Ísafi rði
„Það er ekki
búið að negla
niður hvaða
verk við ætlum
að sýna en valið
stendur á milli
Beetlejuice,
Rock of Ages
eða Mamma
mia!,“ segir
Ísak Emanú-
el Róbertsson
í Nemendaráði MÍ. „Við sýnum
leikritið alltaf í svokallaðri Sól-
risuviku, en það er menningar-
og listavika sem nemendur skól-
ans sjá um. Við tilkynnum hvaða
verk verður fyrir valinu fljótlega
og hefjast æfingar í nóvember.
Frumsýnt er Sólrisuvikunni í
mars,“ segir Ísak.
Ísak Emanúel
Róbertsson
Nemendaráði
Rakel
Björk
Björns-
dóttir
formaður
Herra-
nætur
Adda Soffía
Ingvarsdóttir
adda@frettabladid.is
Benedikt Freyr Jónsson, tón-
listarmaður og plötusnúður
Fjölskylduhelgi
Ég er ekkert að spila um
helgina og verð því með fjöl-
skyldunni alla helgina. Einnig
mun ég æfa með Dillalude
fyrir gigg sem við erum með
átjánda október á Prikinu.
Sigurbjörg Þrastardóttir
rithöfundur
Styttri ferð í Djúpið
Við í ritnefnd bókmenntaritsins
Styttri ferða förum í Djúpið,
sem er í kjallara veitingahússins
Hornsins, og afhjúpum hverjir
skrifuðu sögurnar í ritinu sem
kom út í vor. Síðan ætla ég að
reyna að sjá meira á RIFF, helst
mynd eftir Mick Leigh.
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna
Bíður eft ir skemmtilegum tilboðum
Planið var að vera á flokksráðsfundi Vinstri grænna á Akur-
eyri um helgina en fundurinn var blásinn af vegna meintrar
ófærðar. Spáin var svo slæm að við þorðum ekki að halda
fundinn eins og til stóð. Þannig að helgin er alveg óráðin og
ég bíð nú eftir tilboðum frá vinum og vandamönnum um
vandað skemmtiprógramm. Á óskalistanum er virkilega
góður matur sem hefur tekið langan tíma að elda og jafnvel
óvissuferð í góðum félagsskap.
Daníel Þorsteinsson,
grafískur hönnuður
Hengja upp drasl
Ég ætla að tjilla,kannski fá mér
ein, tvö öllýs. Klára að mála
þvottahúsið og hengja upp
eitthvert drasl til að hengja
upp föt. Svo ætla ég að æfa
með Sometime og ábyggilega
horfa á einhverjar vídjómyndir.
Á TÓNLEIKA Elektra En-
semble með Sigríði Thorlacius
á Kjarvalsstöðum kl. 20.00
sunnudagskvöld. Sigríður flytur
ástsæl íslensk söng- og dægurlög, en
aðrir flytjendur eru Ástríður Alda Sig-
urðardóttir píanóleikari, Emilía Rós
Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg
Arnardóttir klarínettuleikari, Helga
Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og
Margrét Árnadóttir sellóleikari.
HELGIN
4. október 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Á BEINA LEIÐ fyrstu og mest
seldu plötu KK bandsins. Á
plötunni eru m.a. lögin Vegbú-
inn, Þjóðvegur 66 og Ó borg mín
borg, sem Björk söng með bandinu.
Síðan er upplagt að fara beinustu
leið á Blúskvöld Blúsfélags Reykja-
víkur í Rosenberg á mánudagskvöldið
og hlýða á KK, Þorleif Guðjónsson
bassaleikara og Kormák Geirharðsson
trommuleikara.
KAR-
ITAS ÁN
TITILS
eftir Kristínu
Marju Baldurs-
dóttur. Sagan
gerist í upphafi 20.
aldar og hverfist
um unga stúlku,
sem elst upp í
stórum hópi föður-
lausra systkina. Hana dreymir um
öðruvísi tilveru og þráir að hlýða kalli
listagyðjunnar. Meginþráður sögunnar
er hlutskipti kvenna á Íslandi fyrr og
síðar, ekki síst þeirra sem feta aðrar
slóðir en samfélagið ætlar þeim. Þjóð-
leikhúsið frumsýnir leikrit eftir bókinni
um miðjan október.
Á 42
drama-
tíska
bíómynd kl.
21.15 á Stöð 2
í kvöld, Myndin
fjallar um
hafnaboltaleik-
manninn Jackie
Robinson
(1919-1972),
sem braut blað í bandarískri
íþróttasögu þegar hann gerðist
leikmaður efri deildar í hafnabolta
fyrstur þeldökkra manna árið 1947.
Í aðalhlutverkum eru Chadwick
Boseman og Harrison Ford.