Fréttablaðið - 04.10.2014, Blaðsíða 107
LAUGARDAGUR 4. október 2014 | LÍFIÐ | 71
Ingólfshvoli | 816 Ölfus | fakasel.is | fakasel@fakasel.is | sími 483 5050
Hlökkum til að sjá þig.
YNDISLEGUR DAGUR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Í FÁKASELI
SUNNUDAGINN
5. OKTÓBER
KL. 12–16
• Keppni í skeifukasti:
Fákaselsmeistari í skeifukasti
• Andlitsmálning
• Stígvélakast og ýmsar þrautir
• Íslensk framleiðsla
til sölu á staðnum
• Dásamlegur bröns í
yndislegu umhverf i
Leikarinn Ashton Kutcher og
leikkonan Mila Kunis eignuðust
sitt fyrsta barn, Wyatt Isabelle
Kutcher, á þriðjudag.
Skötuhjúin stríða aðdáendum
sínum á heimasíðu Ashtons þar
sem þau birta fullt af barna-
myndum og mynd af geit.
„Hérna er barnamyndin. Tja,
ein af þeim er sú rétta. Getur
þyrlan núna hætt að fljúga yfir
húsið okkar, það er barn sofandi
hér inni! Og hún er súper sæt,“
skrifar Ashton við myndirnar.
„Mila og ég viljum bjóða Wyatt
Isabelle Kutcher velkomna í
heiminn. Megi líf þitt verða fullt
af undrum, ást, hlátri, heilbrigði,
hamingju, forvitni og einkalífi.
Getið þið fundið það út hvaða
barn er okkar eða skiptir það ein-
hverju máli? Öll börn eru sæt.“
- lkg
Stríða aðdá-
endum sínum
MILA KUNIS Varð stjarna þegar hún lék
í þáttaröðinni vinsælu That 70’s Show.
AFP/NORDICPHOTOS
„Enginn segir að Stevie Wonder
sé í raun ekki blindur. Enginn
er að halda því fram. En að því
sögðu, Stevie Wonder er kannski
ekki blindur,“ segir í grein á
bandaríska miðlinum Dead-
spin, sem er vinsæll fréttavefur
í Bandaríkjunum. Þar hefur nú
birst úttekt á þeim samsæris-
kenningum sem snúast um að
söngvarinn frægi Stevie Wonder
sé í raun ekki blindur.
Deadspin hefur fjallað um
hinar ýmsu samsæriskenningar
að undanförnu og bætti þessum
kenningum, sem fjalla um blindu
Stevie Wonder, við í gær. - lkg
Segja Wonder
ekki blindan
STEVIE WONDER AFP/NORDICPHOTOS
Venkata Garimella hjá Aalto-
háskóla í Finnlandi hóaði saman
nokkrum vinum sínum til að rann-
saka hvaða áhrif sambandsslit
hafa á fylgjendafjöldann á Twitter.
Venkata og vinir fundu fjörutíu
þúsund pör á Twitter og fylgdust
með hvað gerðist á samfélagsmiðl-
inum þegar slitnaði upp úr sam-
böndum paranna sem um ræðir.
Í ljós kom að fylgjendum þeirra
fækkaði um fimmtán til tuttugu,
en líklega eru einhverjir af þeim
sameiginlegir vinir fyrrverandi
parsins. - lkg
Vinafærri eft ir
sambandsslit
FÆRRI VINIR Á TWITTER Fylgjendum
fækkar eftir sambandsslit.
Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna ver
hálfri milljón dollara, rúmlega sextíu
milljónum íslenskra króna, í nýja rann-
sókn um stefnumótavenjur of feitra tán-
ingsstúlkna.
Í texta um rannsóknina stendur að
stúlkur í yfirþyngd fari á færri stefnu-
mót og stundi sjaldnar kynlíf en þær
stúlkur sem eru ekki of þungar. Þá taka
þær oftar áhættu í kynlífi, til dæmis
með því að nota ekki getnaðarvarnir.
Vísindamenn ætla að fylgjast með
kynlífsvenjum of feitra stúlkna og þeirra
sem eru ekki í yfirþyngd í fjögur ár til
að reyna að komast að því hvort tengsl
séu á milli þessarar áhættuhegðunar
í kynlífi og þeirrar staðreyndar að of
þungar táningsstúlkur fari sjaldnar á
stefnumót en jafnöldrur þeirra sem eru
í kjörþyngd.
Doktor Aletha Akers hjá University
of Pittsburgh School of Medicine stýr-
ir rannsókninni ásamt samstarfsfólki
sínu, en í rannsóknum hennar hefur áður
komið fram að stúlkur, sem finnst þær
of feitar þó að þær séu það ekki endilega
samkvæmt stöðlum, séu líklegri til að
byrja að stunda kynlíf fyrir þrettán ára
aldur en stelpur sem finnst þær grannar
eða passlega þungar. - lkg
Rannsaka tengsl á milli þyngdar og kynlífs
Aletha Akers stýrir rannsókn um stefnumótavenjur og áhættuhegðun táningsstúlkna í kynlífi .
LÍKLEGRI TIL AÐ BYRJA AÐ STUNDA KYNLÍF FYRR Stelpur
sem upplifa sig of feitar, þó þær séu það ekki samkvæmt stöðlum,
eru líklegri til að byrja að stunda kynlíf fyrir 13 ára aldur.
AFP/NORDICPHOTOS