Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2014, Qupperneq 98

Fréttablaðið - 04.10.2014, Qupperneq 98
4. október 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 TÓNLIST ★★★★★ Sinfóníuhljómsveit Íslands Einleikari Évgení Kissin Stjórnandi Vladimir Ashkenazy Verk eftir Brahms og Rakmaninoff TÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS ELDBORG Í HÖRPU FIMMTUDAGINN 2. OKTÓBER Tónleikar Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands á fimmtudagskvöldið byrjuðu ekkert sérstaklega vel. Vladimir Ashkenazy stjórnaði og á dagskránni var þriðja sinfónía Brahms. Þetta var endurtekning frá kvöldinu áður. Kannski voru hljóðfæraleikararnir bara þreyttir. Spilamennskan var óttalega dauf- leg og það voru nokkrar hroðaleg- ar feilnótur í fyrsta kaflanum. Sem betur fer lagaðist tæknilega hlið- in eftir því sem á leið. En túlkun- in varð samt aldrei þannig að tón- listin gripi mann, sem var synd því þessi sinfónía eftir Brahms er hríf- andi fögur. Flatneskjan skipti þó engu máli, því einleikarinn í hinu verkinu var allt annað en slappur. Það var einn fremsti píanóleikari heims, Évgení Kissin. Hann var í aðalhlutverkinu í öðrum píanókonsert Rakman- inoffs. Tæknin var óaðfinnanleg, hröð- ustu tónahlaup voru glitrandi og flott. Kissin hristi þau fram úr erminni. Svo var túlkunin sjálf afar sannfærandi. Myrk stemning- in sem einkennir þessa tónlist Rak- maninoffs skilaði sér fullkomlega. Allar sönglínurnar voru unaðs- lega fallega mótaðar. Hljómsveitin spilaði líka prýðilega hér. Heildar- hljómurinn var safaríkur og mun- úðarfullur. Hann var akkúrat eins og Rakmaninoff á að hljóma. Einkennandi fyrir spilamennsku Kissins var hve mikið hann not- aði allan líkamann. Hljómurinn í píanóinu var ótrúlega breiður, en samt sterkur. Krafturinn kom frá þyngd alls efri hluta líkamans, það var engin óþarfa vöðvaspenna. Þetta gerði tóninn svo mjúkan og eðlilegan. Rakmaninoff þjáðist af minni- máttarkennd á tímabili, hann var eiginlega hættur að semja eftir slæma útreið sem fyrsta sinfónía hans hlaut. En geðlæknir tók hann í tíma og dáleiddi hann. Það virk- aði, afraksturinn var þessi vinsæli píanókonsert sem Rakmaninoff til- einkaði geðlækninum í þakklætis- skyni. Óhætt er að segja að kons- ertinn sé dáleiðandi – hann er svo fagur. Þegar Kissin var búinn að spila æptu tónleikagestir af hrifningu og stukku á fætur. Ég man ekki eftir öðrum eins fagnaðarlátum á nokkrum klassískum tónleikum sem ég hef farið á. Vinsælir rokk- tónlistarmenn kalla vissulega fram svona viðbrögð, en ekki fólk úr klassíska geiranum. Kissin lék tvö aukalög, etýðu opus 39 nr. 5 eftir Rakmaninoff og vals í As-dúr eftir Brahms. Etýðan eftir Rakmaninoff var stórbrotin og glæsileg, valsinn var heillandi í einfaldleika sínum. Ég verð að segja að þrátt fyrir sinfóníuna eftir Brahms voru tón- leikarnir stórkostleg upplifun, þeir voru með þeim bestu sem ég hef farið á þetta árið. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Þriðja sinfónía Brahms var slöpp, en einleikur Évgenís Kissin í öðrum píanókonsert Rakmaninoffs bætti það upp og vel það. Hann ætti að fá sjö stjörnur í það minnsta. Évgení Kissin er algjör rokkstjarna ÉVGÉNÍ KISSIN „Tæknin var óaðfinnanleg, hröðustu tónahlaup voru glitrandi og flott. Kissin hristi þau fram úr erminni.“ MYND: SHEILA ROCK „Ég er búin að fá flott ljóðskáld,“ segir Rannveig Anna Jónsdóttir, forstöðumaður Konubókastofu, um dagskrá ljóðahátíðar í Rauða hús- inu á Eyrarbakka á sunnudaginn klukkan 14. Hún kynnir til sögunn- ar Elísabetu Kristínu Jökulsdótt- ur, Kristrúnu Guðmundsdóttur, Heiðrúnu Ólafsdóttur og Sigrúnu Haraldsdóttur sem allar lesa upp úr bókum sínum. „Svo mun Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir halda erindi um skáldkonuna Erlu og Lay Low og Agnes Erna Estherardóttir ætla að flytja ljúfa tónlist við ljóð kvenna.“ Rannveig Anna stofnaði Konu- bókastofuna á síðasta ári. Hún er bókmenntafræðingur og kveðst alin upp í anda kvenréttinda. Þetta tvennt hafi sameinast í hug- myndinni um konubókastofu. „Ég sá safn á Englandi 2008 sem er eingöngu með bækur eftir konur. Þegar ég gekk þar út ákvað ég að stofna svona á Íslandi þegar ég kæmi heim. „Ég sagði mörgum frá fyrirætlan minni og eftir við- tal við mig í Landanum fóru mér að berast bækur eftir konur hvað- anæva af landinu. Hellingur af bókum. Fleiri viðtöl hafa birst og bækurnar streyma til mín stans- laust. Ein kom núna í morgun, afskaplega falleg, hún heitir Ljóðin hennar ömmu og þessi amma hét Laufey Sigríður og var Kristjáns- dóttir. Rannveig Anna segir sveitar- félagið Árborg hafa skaffað Konu- bókastofunni herbergi í Blátúni á Eyrarbakka. „Nú er plássið orðið of lítið þannig að næsta skref er að finna stærra,“ segir hún. „En Rauða húsið er svo elskulegt að leyfa mér að halda ljóðahátíðina þar.“ Konubókastofan er varðveislu- og fræðslusafn með vefsíðuna konubokastofa.is. Elsta bókin þar er frá 1886, það er handavinnubók eftir þrjá höfunda, þar á meðal Þóru biskups. „Hver sem er getur komið og fræðst um bækurnar og höfunda þeirra en við lánum þær ekki úr húsi,“ segir Rannveig Anna sem er í lokin spurð hvort hún sé skáld. „Nei, því miður, það væri dásamlegt. En ég hef heilmikinn áhuga á skáldskap.“ gun@frettabladid.is Ljóð kvenna lesin og sungin á Bakkanum Á ljóðahátíð Konubókastofu í Rauða húsinu á Eyrarbakka á sunnudaginn gæðir fólk sér á kaffi og kökum og hlýðir á upplestur og ljúfa tónlist við ljóð kvenna. SAFNVÖRÐURINN Rannveig Anna stofnaði Konubókastofuna á síðasta ári og segir þangað koma bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Stofan er hluti hins nýja verkefnis Bókabæirnir austanfjalls. MYND/ÚR EINKASAFNI Upplifið einstaka teiknimynd í 2D eða 3D með fjölskyldunni. Stórskemmtileg og meistaralega vel gerð FRUMSÝND UM HELGINA Orðaævintýri: sýning um lestrargleði fyrir alla fjölskylduna verður opnuð í Norræna húsinu í dag klukkan 14. Sýn- ingin er hluti af lestrarhátíð Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO og Páfugls úti í mýri – Alþjóðlegrar barna- og ung- lingabókmenntahátíðar í Reykjavík 2014 Á sýningunni má meðal annars finna tveggja hæða kofa, sundlaug fulla af bókstöfum, sögutjald, páfuglinn sjálfan, sögusvið, veðurvegg, bókaísskáp og end- urljóðblöndunarsegulvegg. Sýningin er ávöxtur samstarfs þeirra Davíðs Stefánssonar rithöfundar og Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur mynd- listarkonu sem hafa sökkt sér ofan í söguheim þrettán norrænna barnabóka og afraksturinn er litríkt ævintýraland þar sem gestir ganga inn í veröld barna- bókarinnar og verða þátttakendur í sögum og sagnagerð. Orðaævintýri í Norræna húsinu Söguheimur þrettán barnabóka hlutgerður. MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.