Fréttablaðið - 04.10.2014, Blaðsíða 56
| ATVINNA |
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Gylfaflöt 24 - 30 | 112 Reykjavík | Sími 577 4477
Bifvélavirki
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða mann vanan
bílaviðgerðum sem fyrst. Upplýsingar á staðnum.
ÞJÓNUSTUAÐILI
Laust er til umsóknar námsstaða deildarlæknis í lyflækningum
og vísindarannsóknum við Landspítala. Staðan er veitt til allt að
þriggja ára frá 1. janúar 2015 eða síðar eftir samkomulagi. Um
fullt starf og nám er að ræða.
Landspítali býður:
» Fyrri hluta sérfræðináms í lyflækningum í allt að þrjú ár.
Námið hefur farið í gegnum gagngera endurskoðun.
» Handleiðara.
» Fimm kennslustjóra sem taka að sér tiltekin verkefni sem
snúa að náminu auk rúmlegra eitt hundrað sérfræðilækna
með breiða þekkingu í lyflækningum.
» Rannsóknarverkefni undir handleiðslu ákveðins
leiðbeinanda, sbr. að ofan.
» Nám samhliða starfi.
» Námsráðstefnur í tvær vikur á ári, önnur erlendis.
» Hvatningu til að taka þátt í unglæknastarfi við
Evrópusamtök lyflækna (EFIM).
» Námsefni í lyflækningum.
» Að námslæknar sæki um að stunda meistaranám eða eftir
atvikum doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna og nám á legu-, dag- og göngudeildum ásamt
vaktþjónustu við lyflækningadeildir Landspítala.
» Vinna við ráðgjöf lyflæknis á öðrum deildum Landspítala,
undir umsjón sérfræðilækna.
» Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta
heilbrigðisstarfsmanna.
» Þátttaka í vísindavinnu.
» Framhaldsnám í almennum lyflækningum.
» Vinna að skilgreindu rannsóknarverkefni. Sérnámið skiptist
til helminga milli rannsókna og starfsnáms í lyflækningum,
t.d. þrjá mánuði til skiptis í rannsóknum og í starfsnámi á
deildum Landspítala eða eftir nánara samkomulagi.
Hæfnikröfur
» Hafa lokið kandídatsári og hafa lækningaleyfi á Íslandi,
eða uppfylla kröfur til þess.
» Áhugi á að starfa við lyflækningar.
» Áhugi á vísindarannsóknum.
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi ákveðið rannsóknarverkefni
og leiðbeinanda þegar hann hefur störf. Umsjónaraðilar
framhaldsmenntunar geta aðstoðað við val á leiðbeinendum
og rannsóknarverkefni.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um námsferil og fyrri
störf. Umsækjendum sem uppfylla skilyrði verður boðið
í viðtal og byggir ráðning m.a. á frammistöðu í viðtali og
innsendum gögnum.
» Upplýsingar veitir Friðbjörn R. Sigurðsson, sérfræðilæknir,
fridbjor@landspitali.is, sími 543 6550 / 824 5795.
Námsstaða deildarlæknis í
lyflækningum og vísinda-
rannsóknum við Landspítala
Starf hjúkrunardeildarstjóra á móttökugeðdeild 33C er laust
til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá
1. nóvember 2014 til 5 ára í samræmi við stefnu Landspítala
um ráðningu yfirmanna.
Deildin er 16 rúma almenn móttökugeðdeild og þjónar
hún einstaklingum sem þurfa greiningu og meðferð vegna
geðrænna vandamála. Deildin sérhæfir sig m.a. í meðferð
þunglyndra mæðra og tengslamyndun foreldra og ungbarna.
Lögð er áhersla á teymisvinnu og endurskoðun á störfum og
verkferlum á deildinni með hugmyndafræði geðhjúkrunar að
leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og stjórnar daglegum
rekstri hennar.
» Ber ábyrgð á starfsmannahaldi, rekstri og áætlanagerð.
» Ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun hjúkrunar.
» Stuðlar að þekkingarþróun í hjúkrun og nýtir niðurstöður
rannsókna í hjúkrun.
» Hvetur til rannsókna
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» A.m.k. 5 ára starfsreynsla
» Reynsla á sviði starfsmannastjórnunar
» Framsækinn og dugmikill leiðtogi
» Faglegur metnaður og framúrskarandi samskiptahæfni
skilyrði
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá.
Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og
hjúkrunarleyfi, ritgerðum, þróunarverkefnum og
vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í
að vinna eða birt.
» Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast
til skrifstofu framkvæmdastjóra geðsviðs, geðdeildar-
byggingu við Hringbraut.
» Umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjúkrunarráðs
Landspítala. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og
byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og
innsendum gögnum.
» Upplýsingar veita Sigríður Edda Hafberg, mannauðs-
ráðgjafi, shafberg@landspitali.is, sími 543 4453 og
Hallbera Stella Leifsdóttir, læknaritari, hallalei@landspitali.is,
sími 543 4034.
GEÐSVIÐ
Hjúkrunardeildarstjóri
Lausar eru til umsóknar allt að fjórar námsstöður deildarlækna
í lyflækningum við Landspítala. Stöðurnar eru veittar til allt að
þriggja ára frá 1. janúar 2015 eða síðar eftir samkomulagi. Um
fullt starf og nám er að ræða.
Landspítali býður:
» Fyrri hluta sérfræðináms í lyflækningum í allt að þrjú ár.
Námið hefur farið í gegnum gagngera endurskoðun.
» Handleiðara.
» Fimm kennslustjóra sem taka að sér tiltekin verkefni sem
snúa að náminu auk rúmlegra eitt hundrað sérfræðilækna
með breiða þekkingu í lyflækningum.
» Rannsóknarverkefni undir handleiðslu ákveðins leiðbeinanda.
» Nám samhliða starfi.
» Námsráðstefnur í tvær vikur á ári, önnur erlendis.
» Námsefni í lyflækningum.
» Hvatningu til að taka þátt í unglæknastarfi við
Evrópusamtök lyflækna (EFIM).
» Að námslæknar sæki um að stunda meistaranám við
Læknadeild Háskóla Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna og nám á legu-, dag- og göngudeildum ásamt
vaktþjónustu við lyflækningadeildir Landspítala.
» Vinna við ráðgjöf lyflæknis á öðrum deildum Landspítala,
undir umsjón sérfræðilækna.
» Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta
heilbrigðisstarfsmanna.
» Þátttaka í vísindavinnu.
» Framhaldsnám í almennum lyflækningum.
Hæfnikröfur
» Hafa lokið kandídatsári og hafa lækningaleyfi á Íslandi eða
uppfylla skilyrði til þess.
» Áhugi á að starfa við lyflækningar.
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um námsferil og fyrri
störf. Umsækjendum sem uppfylla skilyrði verður boðið
í viðtal og byggir ráðning m.a. á frammistöðu í viðtali og
innsendum gögnum.
» Upplýsingar veitir Friðbjörn R. Sigurðsson, sérfræðilæknir,
fridbjor@landspitali.is, sími 543 6550 / 824 5795.
Námsstöður deildarlækna í
lyflækningum við Landspítala
Atvinnuleitendur
Flest auglýst störf í landsfjölmiðlum má
finna á einum stað í lista á vefsíðu STARFs
www.starfid.is
Starfagátt
STARFs
STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu
við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan
fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs.
Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við
margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa.
Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is
Meðeigandi óskast:
Áhugasamir hafi samband við Jens Ingólfsson,
jens@kontakt.is, símar 414 1200 og 820 8658.
Þekkt fyrirtæki í
dieselvarahlutum
og viðgerðum
Meðeigandi/meðeigendur óskast að rótgrónu fyrirtæki sem
sérhæfir sig í sölu varahluta og viðgerðum á dieselvélum,
aðallega í bátum og skipum. Fyrirtækið gengur mjög vel en
núverandi eigandi vill vegna aldurs draga úr vinnuálagi og
hætta á næstu árum.
Hér er gott tækifæri fyrir duglega og samviskusama menn
sem hafa reynslu af viðgerðum dieselvéla, hafa löngun til að
starfa sjálfstætt og eignast eigin rekstur.
H
au
ku
r
0
9
.1
4
4. október 2014 LAUGARDAGUR8