Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 73

Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 73
 | FÓLK | 7 Talsverð vakning hefur orðið hjá vínframleiðendum varðandi kassavínin síðustu ár. Áður var enginn sér-stakur stimpill á þessum kassavínum en menn hafa gert sér grein fyrir að í þeim liggja mikil markaðstækifæri og leggja meiri metnað í vínin en áður,“ segir Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari hjá Vínskóla Ölgerðarinnar. Hann segir hráefnið í kassavínunum ekki hafa verið af miklum gæðum hér áður fyrr. „Þegar verið er að pressa vínber, stilka og steina er ákveðinn djús sem er ekki æskilegur í fínni vínum og þá var hann frekar notaður í kassavínin. Í dag er hins vegar verið að nota betri djús í kassavínin auk þess sem fleiri flottir framleiðendur hafa farið inn á þennan markað,“ segir Jó- hann og bætir við að einnig hafi orðið vakning í umbúðahönn- un. „Sumir kassanna sóma sér mjög vel uppi á borði.“ Kassarnir hafa marga kosti fram yfir hinar hefðbundnu flösk- ur. „Í fyrsta lagi er mun hagkvæmara að kaupa vín í kassa. Það má segja að fólk sé að fá fjórar flöskur á verði þriggja. Þá geym- ist vínið mun lengur. Gera má ráð fyrir að vín í kassa geymist í allt að fjórar til sex vikur eftir opnun, við rétt geymsluskilyrði. Vín í flösku lifir ekki lengur en í þrjá til fjóra daga frá opnun,“ útskýrir Jóhann en ástæðan fyrir löngu geymsluþoli kassavín- anna er að pokarnir sem vínið er geymt í eru lofttæmdir. HENTUG Í FERÐALAGIÐ Inntur eftir því hvar kassavínin eiga best við svarar Jóhann glaðlega: „Í raun við öll tækifæri þar sem á að gleðja sálina. En vissulega eiga þau einna best við í ferðalagið, til dæmis í bústaðinn,“ segir Jóhann. Helstu kostir kassanna í ferðalaginu eru auðvitað þeir að þeir brotna ekki og auðvelt er að stafla þeim upp í bílnum. Jóhann nefnir einnig að kassavínin séu hagkvæmur kostur í brúðkaup. „Þá mætti til dæmis hella víninu yfir í karöflur.“ En á hann sér uppáhaldsvín? „Já, ég er mjög hrifinn af Lindemans-vínunum. Svo eru Giacondi-vínin alveg sér- staklega fersk. Ég tók þátt í að smakka þau þegar þau komu fyrst til landsins og þau náðu mér strax í byrjun, en það er ekki alltaf þannig með kassavínin.“ KASSAVÍNIN ALLTAF AÐ VERÐA BETRI OG BETRI STÓR VÍN Mikil framför hefur orðið í þróun kassavína undanfarin ár. Þau þykja nærri því að vera á pari við flöskuvínin en eru hag- kvæmari kostur auk þess sem þau smellpassa í ferðalög, bústaðarferðir og í raun við hvaða tækifæri sem er. PICCINI LÍFRÆNT RÆKTAÐ RAUÐVÍN – 2 LÍTRAR ÍTALÍA – TOSKANA – 4.499 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Kirsuber, laufkrydd, sólbakað. Tveggja lítra pakkning, Lífrænt ræktað vín, passar vel með svína- og lambakjöti, einnig flott með grillmat sem og smáréttum. MONTALTO NERO D‘AVOLA MERLOT – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – SIKILEY – 5.999 KR. Vín sem hentar vel með alifgula- kjöti, pastaréttum, einnig flott með reyktu kjöti. MASI MODELLO ROSSO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – VENETO – 6.650 KR. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Dökk ber, krydd, blómlegt. Smellpassar með pasta, grænmetisrétt- um sem og smáréttum. MAMMA PICCINI – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – 5.560 KR. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Hentar vel með svínakjöti, alifuglakjöti og pasta- réttum, sem og smáréttum. LINDEMANS SHIRAZ / CABERNET – 3 LÍTRAR ÁSTRALÍA – 6.799 KR. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, hálfþurrt, fersk sýra, mild tannín. Kirsuber, dökk ber, plóma, minta. Þetta vín hentar vel með alifuglakjöti, svínakjöti og grillmat. LINDEMANS CHARDONNAY – 3 LÍTRAR ÁSTRALÍA – 6.799 KR. Ljóssítrónugult. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra. Suðrænn ávöxtur, ferskja. Flott vín sem hentar með fiski og skelfiskrétt- um alifgulakjöti og smárréttum. Miklar framfarir Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari í Vínskóla Ölgerðarinnar, segir miklar framfarir hafa orðið í gæðum kassavína. GIACONDI CABERNET – 3 LÍTRAR ITALÍA – 5.770 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, plómur, laukfkrydd, jörð. Smellpassar með nauta- og svínakjöti sem og gott með ostum. PICCANTI ROSSO DI TOSCANA ÍTALÍA – 5.799 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, lyng- tónar. Hentar vel með svínakjöti, alifugla- kjöti sem og smáréttum. GIACONDI PINOT GRIGIO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – VENETO – 5.999 KR. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, mild sýra. Ljós ávöxtur, stjörnuávöxtur, krydd. Vín sem passar sem fordrykkur með fiskréttum og einnig grænmetisréttum. GATO NERO CHARDONNAY – 3 LÍTRAR CHILE – 5.799 KR. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Epli, eplakjarni, sítrus. Þetta vín hentar sem fordrykkur, einnig flott með fiski sem og skel- fiskréttum. GATO NEGRO CABERNET SAUVIGNON – 3 LÍTRAR CHILE – 5.600 KR. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, mild sýra, mild tannín. Sæt- kenndur rauður ávöxtur, berjaríkt. Vín sem flott er að neyta með lambakjöti, grillréttum, ostum sem og pastaréttum. IL BARONE ROSSO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – 4.899 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, smásætt, mild sýra, lítil tannín. Kirsuber, jarðarber, lyng. Flott vín með léttri villibráð, alifugla- sem og svínakjöti og smáréttum. M Y N D /D A N ÍEL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.