Fréttablaðið - 04.10.2014, Síða 84
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
Brandarar
Þórdís Hrafntinna Þráinsdóttir 6 ára
teiknaði þessa flottu mynd af sér og kisunni sinni, henni Snældu.
Hvað gerir þú í Vasaljósi,
Kristín Ísafold? „Ég er einn af
umsjónarmönnunum en er líka
með innslag sem heitir „Á koll-
inum hjá Kristínu Ísafold.“
Varstu líka með þáttinn í fyrra
og hvernig kom það til að þú
byrjaðir? „Í fyrra var ég ekki
umsjónarmaður heldur bara með
viðtölin. Ég fór í prufur til Bryn-
hildar og Kristínar Evu og fékk
ekki hlutverk umsjónarmanns en
þeim leist svo vel á mig að þær
buðu mér að vera með þessi við-
töl Á kollinum.“
Er gaman að vera með sjón-
varpsþátt og af hverju? „Það er
mjög gaman, það er svo margt
nýtt sem maður fær að prófa og
kynnast og gera alls kyns spenn-
andi hluti.“
Hvernig er samkomulagið í
hópnum? „Fínt. Mér semur mjög
vel við hina krakkana.“
Eruð þið búin að taka upp
marga þætti? „Í fyrra vorum við
með tíu þætti og þeir verða líka
tíu núna, en ég veit ekki hversu
margir af þeim eru tilbúnir, en að
minnsta kosti fyrsti þátturinn.“
Hver er eftirminnilegasti við-
mælandinn þinn? „Það er örugg-
lega hann Stúfur, hann var svo
skemmtilega skrítinn í viðtalinu.“
Gerðir þú eitthvað eftirminni-
legt í sumarfríinu, annað en
vinna í Vasaljósi? „Ég fór til
Danmerkur með fjölskyldunni
þar sem við gerðum alls kyns
skemmtilegt eins og að fara á
ströndina, í Tívolí og dýragarð-
inn.“
Hvert er uppáhaldsfagið þitt í
skólanum? „Stærðfræði og sund.“
Hvað gerir þú í frístundum? „Ég
er í Sönglist en svo leik ég mér
bara með vinkonum mínum. Við
búum til dæmis oft til mynd-
bönd í iPad-inum.“
Áttu gæludýr og ef svo er þá
hvert? „Ég á gullfiska með systk-
inum mínum.“
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? „Svo ótrúlega
margt en helst langar mig að
verða leik- og söngkona og dýra-
læknir.“
Kynnist spennandi
hlutum í Vasaljósi
Vasaljós fer aft ur í loft ið á morgun klukkan hálf sex. Það er eini sjónvarpsþáttur-
inn á landinu sem er stjórnað af krökkum. Kristín Ísafold Traustadóttir, níu ára,
er ein úr hópnum og henni fi nnst það gaman því hún fær að prófa svo margt.
ÞÁTTASTJÓRNENDURNIR Kristín Ísafold er sú í rauðu buxunum og bláu peysunni. Hin eru Marteinn Elí Brynjólfsson, Mira
Kamallakharan, Salka Gústafsdóttir, Katla Njálsdóttir og Alex Leó Kristinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Einu sinni voru tveir vinnumenn
sem hétu Vindur og Viður. Bónd-
inn sendi þá út í skóg að vinna.
Eftir smá stund fóru þeir að slást
og Viður batt Vind fastan við tré.
Þegar bóndinn kom að sækja þá
varð hann ferlega fúll og sagði:
„Nú leysi ég Vind og rek Við.“
Kona kemur inn í fatabúð og
spyr: „Eigið þið til ósýnilegar
buxur?“
„Já,“ svarar afgreiðslumaður-
inn. „Við vorum einmitt að
fá sendingu af ósýnilegum
buxum í dag.“
„Gott, get ég fengið að líta á
þær?“
Fíll og mús voru samferða yfir
brú. „Mikið svakalega brakar í
þessari brú,“ sagði fíllinn. „Ég
held hún sé hreinlega við það að
brotna.“
„Það er nú engin furða þegar við
erum bæði á henni í einu,“ sagði
músin.
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
116
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
2 7 4 8 3
3 8 2 6
1 6 3 4
6 4 7 2 1
7 5 1 4 3
1 8 5 4 2
6 8 5
4 9 3 7 1
5 6 9 8 3