Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 8
18. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
HEILBRIGÐISMÁL „Ég er alltaf á leiðinni í með-
ferðina. En ég bý á Reyðarfirði og það er svo
erfitt fyrir mig að komast. Fjarlægðin gerir
okkur mjög erfitt fyrir,“ segir Lára Antonía
Halldórsdóttir, en hún og maðurinn hennar
hafa verið að reyna að eignast barn án árang-
urs í átta ár.
Eftir rannsóknir lækna fengu þau greining-
una óútskýrð ófrjósemi þar sem ekkert fannst
að sem gæti útskýrt erfiðleikana við að geta
barn.
Hún segir fjarlægðina við höfuðborgina
helstu ástæðuna fyrir því að þau hafi enn ekki
hafið meðferð þar sem ferðakostnaður og tekju-
tap vegna hennar setji stórt strik í reikninginn.
Lára fagnar þingsályktunartillögu Silju Dagg-
ar Gunnarsdóttur, þingkonu Framsóknarflokks-
ins, en með þingsályktunartillögunni er lagt til
að fela ráðherra að endurskoða greiðsluþátttöku
ríkisins vegna tæknifrjóvgunarmeðferða þann-
ig að stuðningur ríkisins verði meiri. Einnig að
greiðsluþátttaka sjúkratrygginga taki til ferða-
kostnaðar vegna tæknifrjóvgunarmeðferða.
„Við byrjuðum að reyna að eignast barn 2006
en vorum svo sem ekkert að stressa okkur þrátt
fyrir að ég yrði ekki ólétt strax. Ég minntist á
þetta við lækninn minn 2008 og hann sagði mér
að hafa ekki áhyggjur þar sem ég væri enn þá
svo ung. Við fluttum síðan til Reyðarfjarðar
vorið 2010 og það sama haust eignaðist vinkona
mín barn. Þá small eitthvað í mér og ég hugsaði
að þetta gæti ekki átt að vera svona erfitt.“
Í kjölfarið pantaði Lára tíma hjá Art Medica,
tæknifrjóvgunarmiðstöð sem er sú eina sinnar
tegundar á landinu. Einnig þurfti að gera rann-
sókn á manni hennar þannig að þau ferðuðust
saman til Reykjavíkur bjartsýn um að fá aðstoð-
ina sem þau þyrftu. Þau fengu niðurstöðuna úr
þeirri rannsókn í mars 2011. „Það tók langan
tíma að fá niðurstöðuna þar sem það er ekki
auðvelt fyrir okkur að skreppa í bæinn. Heim-
ilislæknirinn minn var skráður í Reykjavík
þannig að við gátum ekki fengið niðurstöðurnar
í gegnum hann. Okkur var tjáð að ekkert hefði
fundist að hjá okkur. Við værum með það sem
er kallað óútskýrð ófrjósemi. Þó að það væri
auðvitað léttir að það væri ekkert að, þá voru
það samt ákveðin vonbrigði líka því ef það hefði
verið eitthvað að þá væri hægt að laga það. Það
er nefnilega erfiðara en marga grunar að ganga
í gegnum þetta ferli. Það er líka erfitt að svara
spurningum um af hverju maður á ekki barn. Í
dag tala ég þó alveg opinskátt um það.“
Í framhaldi af þessum niðurstöðum var
ákveðið að næsta skref hjá Láru og manni
hennar væri meðferð hjá Art Medica.
Hún útskýrir að til þess að komast suður í
meðferðina þyrftu bæði hún og maður hennar
að taka frí frá vinnu í ótilgreindan tíma þar
sem óljóst er hversu langan tíma það taki fyrir
meðferðina að bera árangur. Hún segir með-
ferðina, tæknisæðingu, kosta með lyfjum um
100.000 krónur. Hún yrði að vera framkvæmd
á réttum tíma í tíðahringnum og flug með stutt-
um fyrirvara kosti fyrir þau tvö um 80.000.
„Síðan þyrftum við að eiga sjóð til þess að geta
tekist á við tekjutapið sem við yrðum fyrir á
meðan. En vegna fjarlægðarinnar og kostnað-
arins sit ég enn þá hérna þremur árum seinna
og er ekki enn byrjuð á meðferðinni.“
hannarut@frettabladid.is
Kostnaðurinn of mikil hindrun
Hefur reynt að eignast barn án árangurs í sex ár. Segir kostnað of háan til að komast í nauðsynlega meðferð. Fagnar þingsályktunartillögu
Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingkonu Framsóknar, um aukna greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgunarmeðferða.
IÐNAÐUR Bæjaryfirvöld í Grinda-
vík gera ekki ráð fyrir að fram-
kvæmdir við tómatagróðurhús
hollenska fyrirtækisins EsBro
hefjist á næsta ári. Fyrirtækið
hefur viljað hefja framkvæmdir á
þessu ári en enn er unnið að fjár-
mögnun verkefnisins.
„Við gerum ekki ráð fyrir að
sveitarfélagið fái tekjur eða leggi
út gjöld vegna þessa verkefnis í
fjárhagsáætlun ársins 2015 sem
verður kynnt í byrjun nóvember,“
segir Róbert Ragnarsson, bæjar-
stjóri Grindavíkur.
Hollenska fyrirtækið áform-
ar að reisa 150 þúsund fermetra
gróðurhús undir framleiðslu
á tómötum til útflutnings. Það
hefur fengið vilyrði fyrir lóð í
Mölvík sem er um tíu kílómetra
frá Grindavík.
Róbert segir forsvarsmenn
fyrirtækisins nú stefna að því
að gróðurhús-
ið verði reist í
þremur fimm
hektara áföng-
um. Fyrri áætl-
anir EsBro hafi
gert ráð fyrir að
húsið yrði byggt
í einum 15 hekt-
ara áfanga.
„Okkur skilst
að það sé enn unnið að fjármögnun
verkefnisins og að þessar breyt-
ingar á framkvæmdinni tengist
breyttum markaðsaðstæðum í
Austur-Evrópu. Skipulag svæðis-
ins heimilar hins vegar að verk-
efnið sé unnið í nokkrum áföngum
og það ætti því ekki að vera neitt
vandamál,“ segir Róbert.
Verkefnið var fyrst kynnt á
íbúafundi í Grindavík fyrir ári.
EsBro hefur síðan þá gert ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist á
þessu ári en Róbert telur útilokað
að það náist.
„Þetta hefur tafist og það er
meðal annars ástæðan fyrir því
að við erum ekki að reikna með
þessu á árinu 2015. Fyrirtækið
hefur tvisvar sett upp tímaplan
sem hefur ekki staðist og við erum
því ekki að halda niðri í okkur and-
anum út af þessu,“ segir Róbert.
Heildarkostnaður verkefnis-
ins er áætlaður um 35-40 millj-
ónir evra, eða 5,4 til 6,2 millj-
arðar króna. Tekjur Grindavíkur
vegna gróðurhússins gætu að sögn
Róberts numið allt að 60 milljón-
um króna á ári.
„Ef þetta kemur árið 2015 þá
verður það frábært en annars
erum við einungis að gera ráð
fyrir þessum hefðbundna rekstri
hjá okkur sem byggir á sjávarút-
vegi og ferðaþjónustu.“
haraldur@fretabladid.is
LÁRA ANTONÍA HALLDÓRSDÓTTIR Segir ferðakostnað og tekjutap vegna ferðalags frá Reyð-
arfirði vera helstu ástæða þess að hún hafi ekki hafið frjósemismeðferð. MYND/AÐSEND
Síðan þyrftum við að eiga sjóð til
þess að geta tekist á við tekjutapið sem
við yrðum fyrir á meðan. En vegna
fjarlægðarinnar og kostnaðarins sit ég
enn þá hérna þremur árum seinna og
er ekki enn byrjuð á meðferðinni.
Lára Antonía Halldórsdóttir
RÓBERT
RAGNARSSON
Ekki gert ráð fyrir að framkvæmdir við risagróðurhús hefjist á næsta ári:
Bæjaryfirvöld í Grindavík búast
ekki við tekjum frá gróðurhúsi
M
YN
D
/O
D
D
G
EIR
GRINDAVÍK Bæjaryfirvöld gengu frá
öllum skipulagsmálum vegna gróður-
hússins í mars síðastliðnum.
VERÐ FRÁ