Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 90
18. október 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 58
„Fyrir nokkuð mörgum árum
kom ég að máli við þáverandi
forstöðumann Listasafnsins á
Akureyri og kom þeirri skoð-
un minni á framfæri að mér
fyndist skorta á að það væri
skoðað hvað byggðasöfn eru í
rauninni stútfull af myndlist,“
segir Íris Ólöf Sigurjónsdóttir,
forstöðumaður Byggðasafnsins
Hvols á Dalvík, um upphafið
á samstarfi hennar og Lista-
safns Akureyrar. „Ég bauðst til
að koma með einhverja gripi á
safnið en á þeim tíma reyndist
ekki áhugi fyrir því. Fyrir einu
og hálfu ári hringdi hann svo í
mig og bauð mér að gera þessa
sýningu sem verður opnuð í
dag.“
Sýningin nefnist Myndlist
minjar / Minjar myndlist og
þar gefur annars vegar að líta
muni markaða af sögu, menn-
ingu og andblæ liðins tíma, og
hins vegar ný listaverk unnin af
ellefu listamönnum sem boðið
var að vinna þau út frá munum
Byggðasafnsins og menningar-
sögu Dalvíkurbyggðar.
Myndlistarmennirnir eru á
aldrinum 28 til 70 ára og vinna
í ólíka miðla en eiga það sam-
eiginlegt að tengjast Írisi Ólöfu
á einn eða annan hátt. Þeir eru
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir,
Haraldur Jónsson, Magdalena
Margrét, Ragnhildur Stefáns-
dóttir, Sara Jóhanna Vilbergs-
dóttir, Sari Maarit Cedergren,
Svava Björnsdóttir, Victor
Ocares, Þór Vigfússon, Þrándur
Þórarinsson og Örn Alexander
Ámundason.
„Ég velti því mjög lengi fyrir
mér hverja ég ætti að velja,“
segir Íris Ólöf. „Ég vildi hafa
breitt aldursbil, fleiri konur
en karla, fólk sem ynni í ólíka
miðla og svo framvegis. Að
lokum ákvað ég að gerast bara
egósentrísk og velja þá mynd-
listarmenn sem ég vildi helst fá.
Sterka listamenn sem ég treysti
í þetta verkefni og vissi að færu
alla leið með það.“
Auk nýju listaverkanna ellefu
og munanna sem þau eru unnin
út frá eru á sýningunni tutt-
ugu gripir sem Íris Ólöf hefur
valið. „Ég sýni þá gripi án sög-
unnar í kringum þá þannig að
þeir standa bara sem sjálfstæð
verk,“ segir hún.
Sýningin stendur til 7. des-
ember og er opin alla daga
nema mánudaga frá klukkan 12
til 17. Aðgangur er ókeypis.
fridrikab@frettabladid.is
Að lokum ákvað ég
að gerast bara egósentr-
ísk og velja þá mynd-
listarmenn sem ég vildi
helst fá. Sterka lista-
menn sem ég treysti í
þetta verkefni.
Ellefu ný verk unnin
út frá gömlum munum
Sýningin Myndlist minjar / Minjar myndlist verður
opnuð í Listasafni Akureyrar í dag.
MYNDLIST OG MINJAR Nokkrir listamannanna sem eiga verk á sýningunni ásamt
Írisi Ólöfu sýningarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
„Við Ólöf höfum þekkst lengi og
unnið saman, enda báðar fjöl-
listakonur og við fengum hinar
tvær með okkur í að búa til
þessa dagskrá,“ segir Jóhanna
V. Þórhallsdóttir söngkona, ein
fjögurra kvenna sem bjóða til
skemmtunar í Anarkíu í Kópa-
vogi í dag. Hinar eru Halla Mar-
grét Jóhannesdóttir, Jónína
Leósdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir.
Allar hafa þær stöllur nýverið
gefið út bækur eða geisladiska
og munu lesa og syngja brot af
efni þeirra. „Þetta er frumraun
okkar saman, en vonandi gengur
þetta vel og við höldum ótrauðar
áfram,“ segir Jóhanna.
Allar eru þær á besta aldri og
Jóhanna segir þær vera eldri
aksjónista í listinni. „Fólk er
bara að finna hvað það er gaman
að vera á þessum aldri og engin
ástæða til að draga sig í hlé,“
segir hún. „Enda erum við ekki
þannig týpur að við læðumst
með veggjum. Við viljum miklu
frekar spretta úr spori.“
Halla Margrét á útgáfufyrir-
tækið Nikku sem gaf nýverið
út ljóðabók hennar, 48, og bók
Ólafar, Dagar og nætur í Buenos
Aires. Forlagið gaf út bók Jón-
ínu, Bara ef … og útgáfufyrir-
tækið Valgardi gaf út geisladisk
Jóhönnu, Söngvar á alvörutím-
um.
Þær stöllur verða í Anarkíu,
Hamraborg 3, í dag klukkan 16
og lesa og syngja, en léttar veit-
ingar verða á boðstólum. Í Anar-
kíu er einnig sýning á verkum
Helgu Ástvaldsdóttur og Jónas-
ar Braga Jónassonar. Ókeypis er
inn, bæði á sýninguna og kynn-
inguna. - fsb
Listakonur spretta úr spori
Listasprettur nefnist dagskrá sem fram fer í Anarkíu í dag. Þar leiða fj órar listakonur saman hesta sína, lesa og syngja.
AKSJÓNISTAR Jónína Leósdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir og Halla Margrét Jóhannesdóttir skemmta gestum
í Anarkíu í dag. MYND ÚR EINKASAFNI