Fréttablaðið - 18.10.2014, Side 40
18. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 40
NOTES
Gott fyrir fólk sem vinnur með texta, og
tímasparnaður að allt sem maður skrifar
í snjallsímann fer sjálfkrafa í tölvuna
manns.
WIKIPEDIA
Eins nálægt því og ég kemst að vera ást-
fanginn af smáforriti.
IMDB
Biblía kvikmyndalúða eins og mín.
INSTAGRAM
Aðallega til að njósna um
fullkomið líf annarra og
gráta mig í svefn.
SHAZAM
Sniðugt forrit sem hjálpar manni að
finna nýja tónlist.
ONEFOOTBALL
Ég hangi á fótboltaappinu mínu hverja
helga eins og versta bulla.
WHATSAPP
Langbesta samskiptaforritið. Eins og
ókeypis SMS.
THE 7 MINUTE WORKOUT
Leikfimi fyrir letingja. Sniðið að mínum
þörfum.
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
Óttar
M. Norðfjörð,
rithöfundur. 3G 9:41 AM
Shazam Onefootball WhatsApp
Notes Wikipedia IMDB Instagram
7 Minute Workout
Tim Cook, stjórnarformaður Apple,
steig á svið í Cupertino í Kaliforníu
á fimmtudaginn og kynnti til leiks
nýja kynslóð iPad-spjaldtölva og
Yosemite, nýtt stýrikerfi Apple
fyrir borð- og fartölvur. Þetta var
tilkomumikil sýning en ögn fyrir-
sjáanleg. Apple hefur selt yfir 225
milljón iPad-spjaldtölvur og iPad
Air 2 er nýjasta flaggskip fyrir-
tækisins. „iPad er allstaðar,“ sagði
Cook. „Hann er að breyta því hvern-
ig við höfum samskipti.“
Nýr iPad mini fékk ekki mikla
athygli. Framtíð litla bróður er óljós
en margir munu vafalaust frekar
stökkva á iPhone 6 Plus í staðinn
fyrir iPad mini 3.
Nýju spjaldtölvurnar fá báðar
TouchID-fingraskanna og keyra á
A8X-örgjörva. Þetta þýðir 40 pró-
sent hraðari vinnslu á iPad Air 2 og
2,5 sinnum hraðari grafíkvinnslu
(eða svo segir Apple).
Engin ást
Eftir stendur iPad mini 3. Upp-
færslan hefur litla þýðingu fyrir
tækið enda keyrir hann enn á A7-
kubbasamstæðu og M7-samgjörva.
iPad mini 3 er nánast sama tækið
og Apple kynnti til leiks í nóvember
á síðasta ári. Það er reyndar hægt
að fá spjaldtölvurnar í gullhúðaðri
umgjörð (það er, ef þú getur réttlætt
það siðferðislega).
Stjarna kvöldsins var ný iMac-
borðtölva, eða skjárinn á tölvunni
nánar tiltekið. Retina-skjárinn er
27 tommur og eiginupplausn upp á
5120x2880 sem gefur okkur … 14,7
megapixla skjá eða 5K upplausn.
Þetta er 67% fleiri pixlar en á venju-
legum 4K skjá. Og já, nýi iMac-inn
er þynnri, öflugri og fallegri en for-
verinn og auðvitað dýrari (300 þús-
und krónur í Bandaríkjunum).
Framtíð í hugbúnaði
Hvað sem líður vélbúnaði þá er það
stýrikerfið Yosemite sem gefur lík-
lega bestu vísbendinguna um fram-
tíð Apple. Þetta er stærsta og lík-
lega mikilvægasta uppfærsla Apple
á viðmóti sínu í áraraðir. Fyrirtæk-
ið freistar þess að samþætta viðmót
OS X-stýrikerfisins og iOS. Þannig
að það verður auðveldara að færa
ljósmyndir, kvikmyndir og gögn
milli iPhone og iMac/MacBook Air.
Einnig er hægt að svara símtölum í
gegnum tölvuna og senda smáskila-
boð. Hægt er að nálgast Yosemite í
Mac App Store.
Tim Cook og félagar kynntu
einnig til leiks beta-útgáfu af nýrri
Photo Stream-þjónustu í gegnum
iCloud og svokallað Fusion-drif
í tölvum sínum. Fusion samein-
ar 128GB og 1TB eða 3TB harðan
disk.
Apple Pay er síðan væntanlegt
á mánudaginn en tæknin gerir
iPhone-eigendum kleift að greiða
fyrir vörur og þjónustu með sím-
anum einum. Apple Pay var kynnt
til leiks í síðasta mánuði, síðan hafa
rúmlega 500 bankar tilkynnt að þeir
muni taka höndum saman við Apple.
„Við erum sannfærð um að Apple
Pay eigi eftir að verða gríðarlega
vinsælt,“ sagði Tim Cook í Cupert-
ino á fimmtudaginn.
Nasasjón af því sem
koma skal hjá Apple
Ný kynslóð iPad-spjaldtölva með TouchID-fingraskanna og mun hraðari
vinnslu eru væntanleg. Einnig nýtt stýrikerfi fyrir borð- og fartölvur.
NÝ KYNSLÓÐ Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, kynnti nýja kynslóð Apple-tækja á fimmtudaginn.
IPAD AIR
2 MEÐ
TOUCHID-
FINGRA-
SKANNA
Apple hefur
selt 225 mill-
jón iPad-tæki.
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
DRIVECLUB ★★★ ★★
PS4 KAPPAKSTURSLEIKUR
Driveclub er raunverulegur
bílaleikur, um það verður varla
deilt. Hvort sem það er útlit
bílanna sem ekið er, aksturslag
þeirra eða hljóðið í þeim virkar
þetta allt mjög líkt raunveru-
leikanum. Meira að segja breyt-
ist hljóðið í dekkjunum eftir því
hvaða undirlagi er ekið á; möl,
hellum eða malbiki. En leikur-
inn hefur einnig galla. Kannski
er helsti gallinn að hann stenst
ekki sam-
anburð við
Gran Tur-
ismo-leikina.
Úrval bíla
mætti vissu-
lega vera
meira. Und-
irrituðum
gekk ákaf-
lega illa að
prófa net-
spilunar-
möguleika
leiksins,
en leik-
urinn
gengur
að miklu
leyti út á
að spila
með
öðrum
yfir
netið.
Hægt er að
spila án nettengingar og þá
þurfa spilarar að byggja upp
feril sinn með því að keppa
í kappakstri. Eftir því sem
maður nær lengra í leiknum
verður samkeppnin við aðra
bíla meiri.
Í upphafi þurfa spilarar að
keppa á frekar slökum bílum
en bílarnir verða betri eftir
því sem á líður. Í fyrstu getur
maður valið um Audi A3 eða
sambærilega bíla, en leikurinn
verður meira spennandi þegar
maður kemst á bíla á borð við
Koenigsegg Agera R. Styrkur
leiksins felst samt í því að hann
fangar mismunandi aksturs-
eigin leika bílanna ákaflega vel.
Ekki er hægt að kaupa nýja
bíla í leiknum, heldur fær
maður nýja bíla eftir því sem
maður kemst lengra í honum og
hlýtur aukna frægð innan kapp-
aksturssenunnar í leiknum. Í
hverri keppni þarf að ljúka við
ákveðnar áskoranir, til dæmis
að halda tilteknum meðalhraða í
gegnum kafla brautarinnar eða
ná að vera í þriðja sæti eða ofar.
Spilarar eru verðlaunaðir fyrir
að standast þessar áskoranir
með stjörnum og þegar nægum
fjölda stjarna hefur verið náð
komast spilarar lengra í leikn-
um.
Maður
saknar
þess svo-
lítið að
geta ekk-
ert breytt
bílunum
sem maður
keppir á,
eins og
venjan var
til dæmis
í Gran
Turismo.
Þetta rýrir
gildi leiks-
ins svolítið.
Keppnirnar
sem maður
tekur þátt í
eru frekar
keimlíkar og
manni finnst
leikurinn
fljótt vera farinn að
bjóða manni upp á endurtekið
efni.
Helstu kostir leiksins eru sem
fyrr segir hversu raunveruleg-
ur hann er. Til að mynda getur
maður lent í því að sólin blindi
mann. Framan af fann maður
fyrir góðri stemningu þegar
maður keppti og byggði upp
feril sinn í leiknum. En maður
varð þreyttur á endurtekn-
ingunum eftir því sem á leið.
Undirritaður átti í vandræðum
með að tengjast og spila leik-
inn í gegnum netið. Netspilun-
in væntanlega hefði aukið dýpt
leiksins til muna.
Kjartan Atli Kjartansson
Raunverulegur en vantar fl eiri bíla
RAUNVERULEGUR Grafíkin er ákaflega raunveruleg í leiknum Driveclub.