Fréttablaðið - 18.10.2014, Qupperneq 78
18. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Brandarar
Krakkarýni Herdís Anna Sveinsdóttir, 8 ára
Lilja Björg
Bjarnadóttir 10 ára
sendi Fréttablaðinu þessa mynd
af Pony-hestum sem hún kallar
Earth Pony eða jarðarsmáhesta.
Hvernig veistu að fíll hefur verið
í ískápnum?
Það eru fótspor í smjörinu.
Af hverju skilaði Hafnfirðingur-
inn bindinu aftur í búðina?
Það var of þröngt um hálsinn.
Mamma: Af hverju setur þú
bangsann þinn inn í frysti?
Halli: Af því mig langar í ísbjörn.
Konan: Eftir hverjum ert þú nú
skírður Hans?
Hans: Eftir spænska kónginum.
Konan: En hann heitir ekki
Hans.
Hans: Jú, hans hátign!
Hvernig stendur á því að í dag
kostar kötturinn 5.000 krónur?
Hann kostaði ekki nema 3.000
í gær?
Í milli tíðinni gleypti hann páfa-
gauk sem kostaði 2.000 krónur.
Lína langsokkur í
Borgarleikhúsinu
✰✰✰✰✰
Hafðir þú lesið sögur um Línu
Langsokk eða séð þætti um
hana í sjónvarpinu áður en þú
fórst á sýninguna? Já, ég hafði
horft á teiknimyndir og bíó-
myndir um Línu og hafði lesið
nokkrar bækur um hana.
Hvernig fannst þér sýningin vera
í samanburði
við það? Mér
fannst leik-
ritið miklu
skemmti-
legra en
bíómynd-
irnar og
bækurnar.
Hver var
uppáhalds
persónan þín? Og af
hverju? Herra Níels,
Lína Langsokkur
og hesturinn.
Þau gerðu
svo margt
skemmtilegt.
Einhverjar
aðrar pers-
ónur sem voru
eftirminnilegar
eða sérstaklega
skemmtilegar? Já, sjó-
ræningjarnir, kennarinn,
Tommi og Anna, inn-
brotsþjófarnir og skóla-
krakkarnir. Og líka Adolf
sterki.
Hvernig fannst þér leikararn-
ir standa sig? Mjög vel. Mér
fannst Lína best og einn sjó-
ræninginn sem heitir Hjörtur
og er frændi minn.
Hvernig fannst þér sviðs-
myndin og búning-
arnir? Mjög flott. Mér fannst
búningurinn hans Herra
Níelsar flottastur.
En tónlistin? Skemmti-
leg. Sjóræningjalagið var
skemmtilegast.
Hvað stóð að þínu mati
upp úr í sýningunni? Mér
fannst flott þegar kviknaði í hús-
inu en skemmtilegast var þegar
skólakrakkarnir komu með borð-
in á hlaupahjóli.
Myndirðu mæla með þessari
sýningu fyrir aðra krakka og ef
já, hvers vegna? Já, af því að
krökkum finnst Lína skemmtileg
og þetta er líka eiginlega nýtt
leikrit.
Skemmtilegast þegar
það kviknaði í húsinu
GEFUR FIMM STJÖRNUR
Herdís Anna var mjög ánægð
með sýninguna.
Bragi Halldórsson
118
„Þessi gáta lítur út fyrir að vera nokkuð lúmsk,“ sagði Konráð glaður.
„Svona gátur finnast mér skemmtilegar.“ „Já, hér segir,“ sagði Lísaloppa.
„Ef þú brýtur saman myndina af útflatta teningnum hvaða teningur
kemur út úr því, A, B eða D.“ Kata var ekki eins ánægð. „Lúmsk!“ sagði
hún hneyksluð. „Hver vill að gáta sé lúmsk, erfið er ég alveg sátt við
en lúmsk, það líst mér ekkert á.“ „Prófaðu bara að leysa hana,“ sagði
Konráð. „Hún lítur kannski út fyrir að vera auðveld en hún er snúnari en
hún sýnist.“ „Jæja þá,“ sagði Kata og dæsti. „Reynum þá að leysa hana.“
Getur þú leyst þessa gátu? Hvaða teningur af þessum þrem, A, B eða D,
verður til ef brotin er saman myndin af útflatta teningnum?
A B D
Svar:B