Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 96
18. október 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
Persónuleg heimildarmynd sem
Yrsa Roca Fannberg gerði um
móður sína, Salóme E. Fannberg
veflistakonu, var valin „Most
Moving Movie“, eða sú mynd sem
hreyfði mest við áhorfendum, á
Szczecin-kvikmyndahátíðinni í
Póllandi um liðna helgi.
Áður hafði hún, fyrst íslenskra
mynda, verið kosin besta norræna
heimildarmyndin á Nordisk Pano-
rama hátíðinni. Að auki völdu
áhorfendur hana bestu myndina á
Skjaldborgarhátíðinni.
Yrsa útskrifaðist sem mynd-
listarmaður frá listaskóla í Lond-
on og hóf síðan nám í heimildar-
myndagerð í Barcelona. „Eftir
að ég útskrifaðist sótti ég um og
fékk styrk hjá Kvikmyndamið-
stöð Íslands til að gera heimildar-
myndina Salóme,“ útskýrir hún.
„Mamma er veflistakona, sem
hætti að búa til list til að geta sinnt
lífinu. Núna heldur listin í henni
lífinu. Ég elti hana um allt með
kvikmyndavélina í sjö mánuði árið
2010, en varð síðan að taka mér
góðan tíma í eftirvinnsluna því
samhliða þurfti ég að vinna fyrir
mér,“ segir Yrsa, sem starfar á
Elliheimilinu Grund.
Við gerð myndarinnar hafði
Yrsa alla þræði í hendi sér; hand-
rit, leikstjórn, stjórn kvikmynda-
töku og klippingu, sem hún vann
að hluta í Barcelona. „Þótt mynd-
in ætti fyrst og fremst að fjalla
um ævi og starf mömmu varð hún
bara að allt öðru og snýst frekar
um samband okkar mæðgnanna,
það að gera heimildarmynd og
hvernig eigi að fá viðfangsefnið til
að gera það sem maður vill að það
geri,“ segir Yrsa. En var mamma
hennar þæg? „Það kemur í ljós í
myndinni,“ svarar hún.
Salóme E. Fannberg, sem er afar
stolt af dóttur sinni og ánægð fyrir
hennar hönd, ætlar sér ekki að
mæta á frumsýninguna. Hún tekur
sérstaklega fram að „viðfangsefn-
ið“ hafi ekki verið fegrað nema
síður væri. „Ég er miklu betri og
fallegri, að minnsta kosti innra
með mér, og alls ekki svona vond,
leiðinleg og mikil norn. Í myndinni
er eins og ég sé alltaf að ala hana
dóttur mína upp,“ segir hún.
Við gerð heimildarmyndar af
þessu tagi segir Yrsa nauðsynlegt
að velta ýmsum siðferðisspurn-
ingum fyrir sér og meta hvort og
hvaða erindi myndin eigi við aðra.
Byggja þurfi upp sanngjarna heild
og varast að nota efniviðinn í eigin
þágu.
„Það er auðvelt að gera bæði
sæta og grimma mynd, jafnvæg-
ið er erfiðast. Salóme er engin
uppgjörsmynd, en ég hafði mjög
gaman af vinna að henni. Frá því
ég var lítil hef ég aldrei varið eins
miklum tíma með mömmu minni
og þessa sjö mánuði fyrir fjórum
árum.“
valgerdur@frettabladid.is
Sigurganga Salóme
Heimildarmynd sem Yrsa Roca Fannberg gerði um móður sína, vefl istakonuna
Salóme E. Fannberg, hefur unnið til verðlauna á þremur kvikmyndahátíðum.
Næst verður Salóme sýnd á kvikmyndahátíð í Kólumbíu, þar sem hún mun
taka þátt í keppni, því næst fer hún til Barcelona og Lübeck. Frumsýning á
Íslandi er 6. nóvember næstkomandi.
➜ Á kvikmyndahátíð í Kólumbíu
Hljómsveitin ADHD ætlar að
leggja land undir fót og skella
sér í tónleikaferð um landið í
tilefni af nýútkominni plötu
sinni, ADHD 5.
ADHD var mynduð í kring-
um blúshátíð Hafnar á Horna-
firði árið 2007. Samstarfið gekk
vonum framar og í framhaldinu
gáfu þeir félagar út sína fyrstu
plötu sem var valin djassplata
ársins á Íslensku tónlistarverð-
laununum.
Hljómsveitin ætlar að fylgja
nýju plötunni eftir með ferða-
lagi um meginland Evrópu í
upphafi næsta árs. Hægt verð-
ur að fylgjast með ferðalaginu
um Ísland á fésbókarsíðu sveit-
arinnar.
- fb
Tónleikaferðalag um Ísland
Hljómsveitin ADHD ætlar að leggja land undir fót til að kynna nýja plötu.
Ég er miklu betri og
fallegri, að minnsta kosti
innra með mér, og alls
ekki svona vond, leiðinleg
og mikil norn.
Salóme E. Fannberg
MÆÐGUR Yrsa Roca og
móðir hennar, Salóme, sem er
viðfangsefni heimildarmyndar
hennar sem hefur unnið til
þrennra verðlauna.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/STEFÁN
Þri. 21. okt. 21.00 Drangsnes Mölin
Mið. 22. okt. 21.00 Ísafjörður Edinborgarhúsið
Fim. 23. okt. 21.00 Akureyri Græni hatturinn
Fös. 24. okt. 21.00 Siglufjörður Alþýðuhúsið
Lau. 25. okt. 21.00 Borgarfjörður E. Fjarðarborg
Sun. 26. okt. 16.00 Höfn Kirkjan
Mið. 29. okt. 20.00 Akranes Bókasafnið
Fim. 30. okt. 21.00 Grindavík Bryggjan
Fös. 31. okt. 21.00 Hafnarfjörður Bæjarbíó
M
YN
D
/SPESSI
HEFJA TÓN-
LEIKAFERÐ
Meðlimir ADHD
ætla að ferðast í
kringum landið á
næstunni.
TÓNLEIKAFERÐ ADHD
PIPA
PP
PPPA
R
\\
TBW
A
TBW
A
TBW
A
TBW
A
SÍA
SÍA
SÍA
SÍA
132
74
3
132
7
32
74
3