Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 8
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 LÖGGÆSLA Öll lögregluembættin á landinu hafa sent lögregluþjóna sína á námskeið í notkun MP5-hríð- skotabyssa. Námskeiðin hófust á æfingasvæði lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli í september og þeim lauk um miðjan október. Hvert námskeið stóð í tvo daga. Eins og komið hefur fram í frétt- um gáfu Norðmenn lögreglunni 150 MP5-hríðskotabyssur sem eru enn sem komið er í umsjá Embættis rík- islögreglustjóra. Í framtíðinni er ætlunin að dreifa þeim til lögreglu- embætta landsins. Ekkert lögregluembættanna hefur þó enn sem komið er fengið byssurnar til afnota. „Það hefur ekki verið tekin form- leg ákvörðun um að fá MP5-hríð- skotabyssur en í ljósi þess að MP5 er mun öruggara og betra vopn, komi til þess að beita þurfi skotvopnum, en Glock-skammbyssur þá er líkleg niðurstaða að embættið fari fram á að fá þær til afnota,“ segir Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður á Siglu- firði, en hún er jafnframt æðsti yfir- maður lögreglunnar á Akureyri og Dalvík. Lögreglan í umdæmi lögreglu- stjórans á Akureyri er ekki með vopn í bílum sínum og Ásdís segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að breyta því. „Nýir lögreglubíl- ar munu þó verða útbúnir til slíks eftir því sem þeir verða endur- nýjaðir,“ segir hún. Yfirmenn í lögreglunni sem Fréttablaðið hefur rætt við í Reykja- vík, Húnavatnssýslum, Suður- nesjum, Árnessýslu og Borgarfirði segja að engin vopn sé að finna í lögreglubílum á vegum embætta þeirra. Ný umdæmaskipan lögreglustjóra og sýslumanna tekur gildi um ára- mót. Þá stækka lögregluembættin og þeim fækkar. „Þá er líklegt að menn setji ákveðnar reglur í hverju umdæmi um búnað bílanna og hvort vopn verði hluti af búnaðinum. Mér finnst líka líklegt að þegar nýir lög- reglustjórar verða komnir til starfa verði tekin ákvörðun um hvort fengnar verði MP5-hríðskotabyssur eða ekki,“ segir Theodór Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi. Úlfar Lúðvíksson, sýslumaður á Vestfjörðum, hefur upplýst að lög- reglan sé með vopn í bílum sínum en þar hefur ekki verið ákveðið hvort MP5 verði bætt í vopnasafnið. Á Austurlandi er lögreglan stundum með vopn í bílunum og stundum ekki, að sögn Jónasar Vilhelms- sonar, yfirlögregluþjóns á Eskifirði. „Við eigum eftir að sjá hvort við höfum not fyrir MP5-byssur. Ákvörðun um það hefur ekki verið tekin,“ segir Jónas. „Því er haldið leyndu að lögreglan hafi eignast 150 nýjar byssur. Lög- regla, utanríkisráðherra og innan- ríkisráðherra hefðu átt að senda frá sér tilkynningu og greina frá því að Norðmenn vilji gefa okkur vopn,“ segir Páll Valur Björnsson, starfandi formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Allsherjarnefnd kom saman á aukafundi í gær til að ræða vopna- mál lögreglunnar. Haraldur Johann- essen ríkislögreglustjóri og Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn komu á fund nefndarinnar. Páll Björgvin segir að hefðu upp- lýsingarnar legið á borðinu frá upp- hafi hefðu menn getað rætt málið. „Hvers vegna þessi leyndar- hyggja?“ spyr Páll Björgvin. Hann segir að það eina nýja sem hafi komið fram hafi verið aðkoma ráð- herranna að málinu án þess að það kæmi fram í hverju hún væri fólgin. Fréttablaðið óskaði eftir viðtali við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og vildi fá að vita hvenær ráðherra hefði vitað af tilboði Norðmanna, og jafnframt vildi blaðið fá að vita hver aðkoma hennar hefði verið að málinu. Hanna Birna neitaði viðtali eins og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra. Lögreglan upplýsti að Landhelgis- gæslan hefði haft milligöngu í mál- inu. Þar fást heldur ekki svör. „Landhelgisgæslan hafði að beiðni lögreglunnar, milligöngu um að útvega lögreglunni búnað frá Norðmönnum og var það gert í samráði við þar til bær norsk og íslensk yfirvöld,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. johanna@frettabladid.is Það hefur ekki verið tekin formleg ákvörð- un um að fá MP5 hríðskotabyssur en í ljósi þess að MP5 er mun öruggara og betra vopn komi til þess að beita þurfi skotvopnum en Glock skammbyssur þá er líkleg niðurstaða að embættið fari fram á að fá þær til afnota. Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður Erfðir Alzheimerssjúkdómsins MP5 sögð öruggari en skammbyssa Ekkert lögregluembættanna hefur enn farið fram á að fá MP5-hríðskotabyssur til afnota en yfirmaður lögreglunnar á Akureyri segir hríðskotabyssurnar öruggari en skammbyssur og því verði líklega farið fram á að fá þær. Leyndarhyggja í kringum málið er gagnrýnd. Heckler & Koch MP5 er þýsk hríðskotabyssa sem fyrst var tekin í notkun hjá þýska hernum árið 1966. Til eru um 30 tegundir af MP5-byssum, til dæmis MP5 A5, MP5 K, MP5 SD3 og MP5 A4, en upprunalega tegundin er MP5 A1. MP5 sem íslenska lögreglan hefur fengið að gjöf er lýst sem lítilli og léttri byssu sem hafi lítinn slagkraft. Lengdin á MP-byssum er frá 48 upp í 60 sentímetra, misjafnt eftir gerðum. Skotin sem oftast eru notuð í byssuna eru 9×19 mm og komast yfirleitt 15-30 slík í magasínin. Skothraðinn er 400 metrar á sekúndu, eða 13 til 14 skot á sekúndu. Óhlaðin vegur MP-byssa um 2,5 kíló. 13 til 14 skot á sekúndu FARIÐ Á NÁMSKEIÐ Lögreglumenn landsins hafa verið sendir á námskeið til að læra að fara með MP5-byssur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.