Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 12
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 4 37 17 „Námið hjálpaði mér að öðlast það sjálfstraust sem þurfti til að sækja um nýtt og krefjandi starf. Ég fékk mjög gott starf á frábærum vinnustað strax að loknu námi. Það er aldrei of seint að byrja að læra eitthvað nýtt. Fyrir mig var þetta góð fjár- festing og frábær tími í góðum félagsskap í frábærum skóla.“ Sóley Rut Ísleifsdóttir, þjónustufulltrúi Skráning fer fram á www.promennt.is og þar má einnig finna allar nánari upplýsingar. STYRKTU STÖÐU ÞÍNA www.promennt.is Skeifunni 11B • 108 Reykjavík • Sími 519 7550 • promennt@promennt.is NÚ LÍÐUR AÐ LOKUM HAUSTANNAR OG VIÐ BJÓÐUM UPP Á AUKAHÓPA AF VÖLDUM NÁMSKEIÐUM. TRYGGÐU ÞÉR SÆTI – SKRÁÐU ÞIG NÚNA! ALMENNT TÖLVUNÁM Sérlega hagnýtt nám fyrir þá sem einhvern tölvugrunn hafa til að byggja á eða einhverja reynslu af tölvuvinnu en vilja auka við hæfni sína og læra meira. Þátttakendur þurfa að hafa lágmarksþekkingu á Internetinu og að hafa sent og tekið á móti tölvupósti. Morgun- og kvöldhópar hefjast 27. október Lengd: 60 std. • Verð: 64.000 kr. EXCEL – GRUNNUR Hnitmiðað námskeið fyrir byrjendur þar sem tekin eru fyrir helstu grundvallaratriði við notkun Excel við margs konar útreikninga og úrvinnslu talna ásamt útlitsmótun skjala. Morgun- og kvöldhópar hefjast 5. nóvember Lengd: 21 std. • Verð: 39.000 kr. EXCEL – FRAMHALD Framhaldsnámskeið í Excel þar sem þátttakendur munu meðal annars læra hvernig beita má Excel á stórar töflur og vinna úr gögnum á fjölbreyttan hátt ásamt notkun Excel við flóknari verkefni og til útreikninga. Morgun- og kvöldhópar hefjast 17. nóvember Lengd: 15 std. • Verð: 39.000 kr. GRAFÍSK HÖNNUN Vinsælt og sérlega hagnýtt nám í grafískri hönnun sem er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í grafískri vinnslu eða fólki sem vill skapa sér forskot í frekara hönnunarnámi. Þetta nám hentar einnig þeim sem vilja hanna sínar auglýsingar sjálfir. Kvöldhópur hefst 28. október • Lengd: 105 std. • Verð: 169.000 kr. SVÍÞJÓÐ Skemmdarverk hafa verið unnið á tveimur af hverjum þremur moskum í Svíþjóð, sam- kvæmt könnun meðal múslíma þar. Sænska ríkisútvarpið segir að krotað hafi verið á veggi og rúður brotnar auk þess sem brot- ist hafi verið inn í moskurnar. Gestum einnar moskunnar hefur oft verið veitt eftirför af bíl á undanförnum mánuðum. Marg- ir óttast að fara til bænastunda í moskunum. Alls tóku 110 af 147 söfnuðum þátt í könnuninni. - ibs Múslímum hótað í Svíþjóð: Óttast að fara til bænastunda BANDARÍKIN Bandarískur kviðdómur komst í gær að þeirri niðurstöðu að fjórir liðs- menn Blackwater-fyrirtækisins væru sekir, einn um morð og þrír aðrir um mann- dráp. Mennirnir urðu 17 manns að bana og særðu um tuttugu til viðbótar á Nisúrtorgi í Bagdad árið 2007. Heimamenn segja mann- drápin hafa verið tilefnislaus og því hrein- ræktuð fjöldamorð. Mennirnir störfuðu fyrir bandaríska utanríkisráðuneytið sem öryggisverðir á verktakasamningum. Kviðdómurinn hafði í gær ekki komist að niðurstöðu í öllum ákæruatriðum, en kynnti í gær þær niðurstöður sem komnar eru. Kviðdómurinn mun svo halda áfram að ræða önnur ákæruatriði, en alls eru þau 33. Málið hafði mikil áhrif á samskipti íraskra stjórnvalda við Bandaríkin. Írak- ar kröfðust þess að mennirnir yrðu látnir svara til saka og vildu að þeir kæmu fyrir dómstóla í Írak. Bandaríkin féllust ekki á það og átti þessi afstaða þeirra stóran þátt í því að illa gekk að gera samninga um samstarf Íraka við Bandaríkjaher eftir að bandarískt herlið yfirgaf Írak. - gb Bandarískir Blackwater-liðar dæmdir sekir vegna fjöldamorða á götu í Bagdad árið 2007: Einn sekur um morð, þrír um manndráp TVEIR BLACK- WATER- MANNA Dómurinn kann að hafa áhrif á framtíðar- samskipti Banda- ríkjanna og Íraks. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KANADA, AP Kanadískur her- maður, sem stóð heiðursvörð við minnismerki fyrir utan þinghús- ið í Ottawa, var í gær myrtur af byssumanni, sem síðan hélt inn í þinghúsið og hleypti þar af fjölda skota. Þá var einnig skotið af byssu í verslunarmiðstöð skammt frá þinghúsinu. Lögreglan leitaði í gær að einum eða tveimur öðrum mönn- um, sem talið var að hefðu tekið þátt í árásinni. Einn árásar maður lét lífið í skotbardaga við lög- regluna. Þá særðust að minnsta kosti tveir aðrir. Að sögn talsmanna sjúkrahúss í Ottawa var ástand þeirra beggja stöðugt. Grunur vaknaði fljótlega um að þarna væri á ferðinni skipu- lögð hryðjuverkaárás og var fjöl- mennt lið lögreglu og hermanna kallað út. Stórum svæðum í mið- borginni var lokað og allt starfs- fólk þinghússins og fleiri bygg- inga í miðbænum var beðið um að halda kyrru fyrir. Þá var íbúum almennt ráðlagt að vera ekki á ferli utan dyra. Bandarískir fjölmiðlar sögðu árásarmanninn hafa heitið Michael Zehaf-Bibeau, vera 32 ára gamlan og líklega frá Alsír. Stuttu síðar birtu öfgasam- tökin Íslamskt ríki, sem náð hafa stórum svæðum í Sýrlandi og Írak á sitt vald, mynd af manni sem þau sögðu árásarmanninn. Vitni segja árásarmann, klæddan svörtum fötum og með klút fyrir andliti, hafa gengið upp að hermanninum og skotið hann í návígi. Her- maðurinn stóð heiðurs vörð við stríðs minnismerki þegar árásar- maðurinn lagði til atlögu. Lögreglan varðist að mestu frétta í gær, hugsanlega af ótta við að annar árásarmaður gæti notfært sér allar upplýsingar til að komast undan eða gera fleiri árásir. Kanadíska fréttastofan CP hafði eftir Tony Zobl, 35 ára manni sem sá atburðinn úr glugga á fjórðu hæð: „Vörðurinn féll til jarðar og byssumaðurinn lyfti höndum sínum eiginlega eins og sigri hrósandi og hélt um leið á rifflinum.“ Stephen Harper forsætisráð- herra var ekki í hættu staddur og yfirgaf svæðið fljótlega eftir árásina. Þá var bandaríska sendi- ráðinu í Ottawa lokað í öryggis- skyni. Lögreglan í Ottawa var á varð- bergi fyrir atburði gærdagsins vegna árásar sem gerð var á tvo kanadíska hermenn fyrr í vik- unni. Þar var þó ekki skotárás á ferðinni, heldur var ekið á her- mennina. Annar þeirra lést en hinn slasaðist. Sá árásarmaður féll fyrir skot- um lögreglu. Hann hafði nýverið gerst múslimi, en lögreglan hafði haft hann grunaðan um að ætla til Sýrlands eða Íraks að berjast þar með herskáum vígasveitum. Hann hafði reynt að komast til Tyrk- lands, en þá var vegabréf hans tekið af honum. gudsteinn@frettabladid.is Öngþveiti í Ottawa Rúmlega þrítugur maður, Michael Zehaf-Bibeau að nafni, myrti kanadískan her- mann og hleypti af skotum inni í þinghúsinu í Ottawa í gær. Árásarmaðurinn féll fyrir skotum lögreglu, en grunur lék á að einn eða fleiri væru í liði með honum. VIÐBÚNAÐUR Lögreglumaður á hlaupum í miðborg Ottawa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP © GRAPHIC NEWSHeimild: Fréttastofur Ljósmynd: Google Earth Kanadískur hermaður lét lífið í skotárás fyrir utan þinghúsið. Einn árásarmaður lét lífið í skotbardaga við lögreglu. Íslenska sendiráðið er staðsett rétt utan kortsins, neðst til vinstri. SKOTÁRÁSIRNAR Austur- byggingin Ottawa- háskóli Langevin-byggingin Bandaríska sendiráðið Chateau Laurier-hótelið Bókasafn þingsins Vestur- byggingin Þinghæðin O T TA W A 200m Ottawa- fljótið Skrifstofa forsætisráðherra Mörgum skotum skotið inni í byggingunni. Einn árásarmaður sagður fallinn fyrir skotum lögreglu. Stríðsminnismerkið Kanadískur hermaður skotinn, lést síðar á sjúkrahúsi. Rideau-verslunarmiðstöðin: Skotum var hleypt af. Ottawa Montreal K a n a d a Bandaríkin 500km Skotárás í Ottawa, höfuðborg Kanada
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.