Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 18
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18
➜ Facebook
og Apple
bjóða
einnig styrk
til að standa
straum af
kostnaði við
að láta geyma
eggin.
Þegar vetrarfrí elsta barns Haf-
dísar Óskar Pétursdóttur og Svein-
björns Jónssonar hófst á dögunum
áttu þau ekkert frí inni frá síðasta
sumri. „Það var því lítið sem við
gátum gert til að eiga saman fjöl-
skyldustundir,“ segir Hafdís sem á
þrjú börn, 7, 3 og 1 árs.
Yngri börn Hafdísar eru í leik-
skóla, það eldra í hverfisleikskóla
en það yngra á ungbarnaleikskóla
þar sem Hafdís er deildarstjóri.
Ekki er víst að báðum leikskól-
unum verði lokað á sama tíma í
sumar, að sögn Hafdísar. „Það er
nefnilega kosið um það í öðrum
leikskólanum hvenær sumarsins
eigi að hafa lokað. Næsta sumar
gæti þess vegna orðið höfuðverk-
ur og ég sé fram á að við hjónin
tökum hluta af sumarfríinu okkar
hvort í sínu lagi til að ná örugglega
að spanna allt sumarfrí barnanna.
Við munum væntanlega ekki eiga
neitt frí inni næsta vetur sem gott
væri að eiga vegna vetrarfrís elsta
barnsins og skipulagsdaga í skól-
um allra barnanna.“
Skipulagsdagar í grunnskóla og
leikskólum barnanna skarast að
mestu leyti, að sögn Hafdísar. „Af
sex skipulagsdögum í hverfisleik-
skólanum eru þrír sameiginlegir
með grunnskólanum. Það er gott
að fá þessa þrjá daga en auðvitað
væri best að þeir væru allir sam-
eiginlegir en ég hef vissan skiln-
ing á því hvers vegna svo er ekki.
Grunnskólinn hefur skipulags-
daga sem næst fríum eins og jóla-
fríi, páskafríi og sumarfríi. Þessir
skipulagsdagar henta ekki leik-
skólunum sem fá fólk til að flytja
fyrirlestra á sínum skipulagsdög-
um. Það er erfiðara að fá fyrirles-
ara í kringum frí.“
Skipulagsdagarnir í grunnskól-
anum eru talsvert fleiri en í hverf-
isleikskólanum en skipulagsdag-
arnir í ungabarnaleikskólanum
þar sem Hafdís starfar eru sex
eins og í hverfisleikskólanum en
ekki allir þeir sömu. „Leikskólinn
sem ég starfa í er sjálfstæður skóli
sem tekur á móti börnum úr öllum
hverfum. Hann getur því ekki
miðað við skipulagsdaga grunn-
skólanna,“ greinir Hafdís frá.
Hún segir foreldrana skipta á
milli sín eins og hægt er að vera
heima með börnunum þegar skól-
ar eru lokaðir. „Fyrir utan jóla-
og páskafrí þurfum við að manna
um það bil 10 daga. Ég hef leyfi
til þess að taka börnin með mér
í vinnuna en þau geta ekki verið
hjá mér í vinnunni allan dag-
inn. Ég hugsa að ég verði heima
fimm daga í vetur vegna skipu-
lagsdaga og vetrarfrís. Maðurinn
minn verður heima alla sex dag-
ana þegar skipulagsdagar eru á
ungbarnaleikskólanum því að þá
þarf ég að vera í vinnunni. Svo
erum við svo heppin að eiga góðar
ömmur sem hjálpa til eins og þær
geta.“
Hafdís tekur það fram að
skipulagsdagar séu nauðsyn-
legir í skólastarfi en hún veltir
því fyrir sér hvort vinnumark-
aðurinn þurfi ekki að laga sig að
breyttum aðstæðum. „Í nágranna-
löndum okkar er gert ráð fyrir að
foreldrar fái frí á skólafrídögum
til að geta verið með börnunum
sínum. Það mætti einnig velta því
fyrir sér hvort fólk ætti ekki að fá
lengra sumarfrí á meðan börnin
eru ung og þurfa mikla umönnun
og dögunum fækkaði frekar þegar
börnin væru betur í stakk búin til
að hugsa um sig sjálf.“
ibs@frettabladid.is
Erfitt er skipulagsdagar
í skólum barna dreifast
Skipulagsdagar í grunn- og leikskólum í sama hverfi eru ekki alltaf þeir sömu.
Foreldrar þurfa að taka sér lengra frí að vetri og skiptast á að vera í sumarfríi.
Á UNGBARNALEIKSKÓLANUM Hafdís Ósk Pétursdóttir með Degi Kára sem er 18 mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Af sex skipulags-
dögum í hverfisleikskól-
anum eru þrír sameigin-
legir með grunnskólanum.
Það er gott að fá þessa þrjá
daga en auðvitað væri best
að þeir væru allir sam-
eiginlegir en ég hef vissan
skilning á því hvers vegna
svo er ekki.
Hafdís Ósk Pétursdóttir,
deildarstjóri á leikskóla.
Facebook og Apple bjóða konum sem starfa hjá fyrirtækjunum styrk
til að láta frysta egg til þess að þær geti einbeitt sér að frama sínum
og stofnað fjölskyldu síðar á ævinni, að því er NBC-sjónvarpsstöðin
greindi frá. Konur í fyrirtækjunum og fleiri fyrirtækjum í sama geira
hafa verið í minnihluta starfsmanna og að undanförnu hefur því verið
þrýst á þau að jafna kynjahlutfallið.
Þess vegna bjóða Facebook og Apple konum styrk upp á um 10 þús-
und dollara til að láta frysta egg. Fyrirtækin bjóða einnig styrk til að
standa straum af kostnaði við að láta geyma eggin og bjóða þess vegna
allt að 20 þúsund dollara styrk.
Facebook hefur þegar greint starfsmönnum sínum frá þessum bónus
og Apple hyggst gera það eftir áramót. Ekki hefur verið greint frá því
í fréttum hvort karlkyns starfsmönnum verði boðið að sameina frama
og fjölskyldulíf á einhvern hátt. - ibs
Facebook og Apple vilja jafna kynjahlutfallið:
Bjóða konum styrk
til að láta frysta egg
Nemendur í nokkrum sveitarfélögum í Sví-
þjóð eru svo hræddir um að teknar verði
myndir af þeim þegar þeir eru í sturtu í
skólanum að þeir eru farnir að hætta að þvo
sér eftir íþróttatíma. Nemendur eru einnig
ragir við að fara á salerni. Þess vegna er nú
verið að breyta sturtuaðstöðu og salern-
um í skólunum, að því er segir í frétt á vef
Dagens Nyheter. Sett hafa verið upp skil-
rúm í sturtunum og salernin hafa verið ein-
angruð til að draga úr hljóði frá þeim.
Í Gautaborg voru gerðar breytingar á um
600 salernum á árunum 2011 til 2013 og í
fyrra voru gerðar breytingar á 16 rýmum
þar sem nemendur skipta um föt og fara í
sturtu. - ibs
Breytingar gerðar vegna hræðslu við myndatöku:
Þora ekki í sturtu í skólanum
BARNEIGNUM
FRESTAÐ Með
bónus á að reyna
að fá konur til að
fresta barneignum.
NORDICPHOTOS/GETTY
STURTA Sett hafa verið upp
skilrúm í sturtuaðstöðu í sænsk-
um skólum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Aðeins um 15 prósent manna hafa gagn
af því að drekka eitt glas af rauðvíni á
dag sér til heilsubótar. Þetta eru niður-
stöður rannsóknar norskra og sænskra
vísindamanna sem gerð var við háskólann
í Gautaborg í Svíþjóð.
Niðurstöður franskrar rannsóknar frá
1995 gáfu vísbendingar um að sérstakt
afbrigði af geni gæti valdið því að áfengi
hefði verndandi áhrif. Vísindamennirnir
í Gautaborg ákváðu að sannreyna þetta á
618 manns með hjartasjúkdóma og á um
3.000 manns í viðmiðunarhópi. Þátttak-
endur í rannsókninni voru flokkaðir eftir
því hversu mikið þeir sögðust drekka af
áfengi. Þar að auki var rannsakað hvort
þeir bæru fyrrgreint afbrigði af
geni.
Rannsóknin leiddi í ljós hið sama
og franska rannsóknin gerði fyrir
um tuttugu árum. Miklu færri
þeirra sem eru með þetta sérstaka
gen og drekka áfengi í hófi eru
með hjartavandamál.
Á norska vísindavefnum
forskning.no er haft eftir norska
prófessornum Dag Thelle að eitt og
sér verndi genið ekki fyrir sjúkdóm-
um. Þegar áfengi komi við sögu veiti
það hins vegar góða vernd gegn hjarta-
áfalli. Greint er frá niðurstöðunum í rit-
inu Alcohol. - ibs
Rannsóknir vísindamanna á áhrifum áfengis til verndar heilsunni:
Áfengi heilsubót fyrir aðeins 15 prósent
SARA REGINSDÓTTIR
MÆLIR MEÐ
NEOSTRATA
Fyrir ári síðan fékk ég
óútskýrð útbrot um
augun og þorði varla
að mála mig eða setja
á mig krem. Ég las mér
til um sýrukrem, fór
beint í næsta apótek
og kom he im með
augn- og andlitskrem
frá NeoStrata.
Ofnæmið hvarf og ég er
enn að nota NeoStrata.
bionic face creme
Ráðgjafi verður
23. október í Lyfju
Lágmúla frá kl. 14-17.
25% afsláttur meðan
á kynningu stendur.