Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 24
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
17. október birt-
ist pistill í Frétta-
blaðinu eftir Sif
Sigmarsdóttur
undir heitinu I’ll
be back. Ágæt-
ur pistill eins og
endranær frá
Sif. En það er eitt
atriði í pistlinum
sem gæti vald-
ið misskilningi.
Vitnað er til ísraelska sagnfræð-
ingsins Yuval Noah Harari, sem
notar stundum sterka pensil drætti
til að leggja áherslu á mál sitt. Hann
heldur því til dæmis fram: að mann-
fólkið sé vistfræðilegir fjöldamorð-
ingjar, að mannfólkið muni fljót-
lega hverfa (breytast í eitthvað
annað) og að landbúnaðarbyltingin
hafi verið stærstu prettir sögunnar
– að hveitið hafi tamið manneskj-
urnar en ekki öfugt. Þessi mælsku-
list minnir á annan fræðimann sem
sló í gegn á ritvellinum, Richard
Dawkins. Hann talaði til dæmis
um genin sjálfselsku. Með því átti
hann ekki við að genin hefðu sjálf-
stæðar meiningar, en honum tókst
að vekja athygli með þessu orðalagi.
Í pistli Sifjar segir sem sé á einum
stað: Þrátt fyrir að landbúnaðarbylt-
ingin sé lofuð í sögubókum sem ein
mesta framför mannkynsins er hún
ein stærstu mistök sögunnar. Þessu
heldur ísraelski sagnfræðingurinn
Yuval Noah Harari fram …
Sú fullyrðing að landbúnaðar-
byltingin sé ein mesta framför
mannkynsins er sjaldséð í bókum á
Vesturlöndum síðustu áratugi. Yfir-
leitt er fjallað um landbúnaðarbylt-
inguna sem staðreynd sem hafði
ákveðnar orsakir og afleiðingar.
Og þegar sagt er að landbúnaðar-
byltingin sé ein mestu mistök sög-
unnar, sem reyndar hefur heyrst
frá ýmsum undanfarin ár, þá er
það harla ónákvæmt orðalag vegna
þess að forsenda fyrir mistökum er
ákvörðun. Og það tók enginn ákvörð-
un um landbúnaðarbyltinguna.
Lífsháttabreyting
Í stuttu máli: Hin svonefnda land-
búnaðarbylting við lok síðasta jök-
ulskeiðs var lífsháttabreyting sem
varð ekki í einni svipan, og var
ekki heldur sérstök eða kærkomin
„uppfinning“. Hún kom til sögunn-
ar þegar útbreiðsla dýra breyttist
og gróðurbelti færðust til. Akur-
yrkjunni fylgdi meira erfiði, lengri
vinnudagar og minna frelsi en líf
veiðimanna og safnara hafði boðið
upp á. Við upphaf landbúnaðar-
byltingarinnar voru vistkerfin
einfölduð stórlega vegna þess að
fólk valdi til nytja vissar tegund-
ir jurta og dýra og útilokaði aðrar.
Mannfólkið reiddi sig á hjarðdýr og
plöntur sem mynda þéttar breiður,
til dæmis hveitiplöntuna og aðrar
korntegundir. Þegar mannfólkið
tamdi umhverfi sitt, plöntur og dýr
og fór að búa í þéttbýli sem krafðist
ýmiss konar umgengnisreglna og
sjálfsstjórnar, tamdi það sjálft sig
í leiðinni. Maðurinn er í þeim skiln-
ingi best tamda dýr jarðar. Með
landbúnaðinum komu til sögunnar
þéttbýli, auðsöfnun, strit og sællífi,
stéttaskipting, skrásetning, sérhæfð
störf, fjölbreyttur tækjabúnaður
og nýir sjúkdómar í miklu úrvali.
Landbúnaðarbyltingin hefur mikið
verið rannsökuð af fræðifólki og
því er allmikið vitað um þessa lífs-
háttabreytingu. Dæmi um splunku-
nýtt rit þar sem fjallað er um land-
búnaðarbyltinguna af yfirvegun er
The Story of the Human Body, eftir
Daniel Lieberman, prófessor við
Harvardháskóla.
Læknar hafa, líkt og aðrir starfs-
menn Landspítala, þungar áhyggjur
af þróun mála á stærsta vinnustað
landsins. Við metum stöðuna þann-
ig að um alvarlegan bráðavanda
sé að ræða sem bregðast þurfi við
án tafar. Við vitum að slæm staða
Landspítala er almenningi ekki að
skapi, enda vilja allir Íslendingar
geta reitt sig á þjónustu spítalans
þegar á þarf að halda.
Fyrirheitin
Landsmenn fylktu liði um þjóðar-
sjúkrahúsið á síðasta ári. Þingmenn
úr öllum flokkum skynjuðu þungann
í málflutningnum og endurskoðuðu
forgangsröðun í fjárlagafrumvarp-
inu sem þá var til afgreiðslu. Fyrir
vikið komst spítalinn tímabundið
fyrir vind og það lofaði góðu fyrir
sjúklinga okkar og starfsfólk. Flest-
ir héldu að botninum væri náð, enda
ætluðu þingmenn allra flokka að
fylkja sér um að viðhalda nauðsyn-
legri þjónustu spítalans. Nú er liðið
ár og fyrirheitin um að snúa þróun-
inni við virðast gleymd eða eru í
besta falli mjög óljós. Komi til frek-
ari niðurskurðar á þessu ári sam-
hliða verkföllum er óhjákvæmilegt
að landsmenn búi sig undir skerta
þjónustu strax á næsta ári.
Margþættur vandi
Vandi spítalans er margþætt-
ur. Ítrekað hefur komið fram að
tækjakostur spítalans er víða
úreltur og sífelldar bilanir dag-
legt brauð. Húsnæði sumra deilda
er heilsuspillandi og aðstaða sjúk-
linga og starfsfólks ófullnægjandi.
Til dæmis er skortur á viðunandi
salernisaðstöðu (aðeins 4% salerna
standast byggingarreglugerð),
sem eykur smithættu. Það er
einnig staðreynd að illa gengur að
fá íslenska lækna sem lokið hafa
sérnámi erlendis til að ráða sig
á Landspítala. Ekki veldur síður
áhyggjum að ungir sérfræðing-
ar sem flutt hafa heim til Íslands
flytja í vaxandi mæli aftur utan
eða íhuga að flytja af landi brott.
Það tekur um 15 ár að mennta
hvern sérfræðing frá upphafi
læknanáms. Þegar mest kreppti
að í þjóðfélaginu tókst að halda
rekstri spítalans í jafnvægi með
hagræðingu en einnig gríðarlegu
aðhaldi og niðurskurði. Í reynd
var tekið lán hjá framtíðinni því
viðhald húsnæðis var ófullnægj-
andi og bráðnauðsynlegri endur-
nýjun slegið á frest. Tækjakostur
fór því niður fyrir öryggismörk og
vinnuaðstaða og kjör heilbrigðis-
starfsfólks urðu
óviðunandi og
ósamkeppnis-
hæf. Það er
löngu komið að
skuldadögum og
úrræðaleysi og
ákvarðanafælni
gerir illt verra.
Frestun á úrbót-
um og uppbygg-
ingu við ríkjandi
aðstæður yrði
í reynd enn ein
lántakan2.
Viðvarandi undirfjármögnun
Ljóst er að fjárveiting til Land-
spítala samkvæmt nýlegu fjárlaga-
frumvarpi nægir ekki til þess að
reka spítalann á næsta ári miðað
við óbreytta starfsemi. Á síðasta
ári fengust eftir mikla baráttu
1.700 milljónir aukalega til rekst-
urs spítalans. Mest af því fé fór
í launaleiðréttingar samkvæmt
kjarasamningum og í jafnlauna-
átak ríkisstjórnarinnar. Kostnaður
við aukavaktir jókst einnig vegna
mikils álags á hjúkrunarfræðinga
og taka þurfti fé úr rekstri til að
sinna bráðaviðhaldi á leku hús-
næði. Í fjárlagafrumvarpi næsta
árs er rekstrarfé aukið um 120
milljónir sem nemur aðeins 0,26%
af rekstrarfé spítalans. Slík við-
bót er langt undir þeim 4-5% (allt
að 2.000 milljónir) sem þarf til að
halda sjó í rekstri spítalans. Þörf
er á 1.000 milljónum til viðhalds
á húsnæði, en viðhaldskostnað-
ur lekra og heilsuspillandi bygg-
inga verður sífellt meira íþyngj-
andi. Þetta er sýnu alvarlegra
þar sem stöðugur niðurskurður
hefur staðið yfir í meira en áratug
á spítalanum. Þannig eru fram-
lög til sjúkrahússins samkvæmt
fjárlagafrumvarpi um 10% lægri
á raunverði en árið 2008, þrátt
fyrir að verkefni spítalans hafi
aukist. Ekkert hinna stærri ríkis-
fyrirtækja hefur þurft að draga
jafn mikið úr rekstri í hruninu og
Landspítalinn.
Lekar byggingar
Eins og kemur glöggt fram í tveim
nýlegum skýrslum Landlæknis-
embættisins um starfsemi, mann-
auð og húsnæði á Landspítala1,
má víða finna alvarlega bresti
í aðbúnaði sjúklinga. Einnig er
mönnun lækna á ýmsum sviðum
spítalans komin fram á ystu nöf,
t.d. í krabbameinslækningum og
nýrnalækningum. Stöðuhlutföll
hafa farið ört lækkandi í hjarta-
lækningum þar sem hjartalækn-
ar velja að starfa á eigin lækna-
stofum fremur en á Landspítala.
Ekki er staðan betri á myndgrein-
ingardeild spítalans sem er undir-
stöðudeild á sjúkrahúsinu. Þannig
má lengi telja. Á öllum ofangreind-
um deildum er hætta á að álag á
þá sérfræðinga og deildarlækna
sem eru við störf verði óhóflegt
og þeir muni smám saman gefast
upp. Það yrði sennilega alvarleg-
asta og kostnaðarsamasta afleið-
ingin af hnignun spítalans.
Spítali okkar allra
Landspítali er spítali allra lands-
manna2. Flestar fjölskyldur lands-
ins hafa einhvern tíma þurft á
almennri eða sérhæfðri þjónustu
spítalans að halda á mikilvægum
stundum og oft við erfiðar aðstæð-
ur. Sérhæfð þjónusta verður ekki
veitt án sérhæfðs starfsfólks.
Krafan um spítala sem ræður
við hlutverk sitt er ekki „hreppa-
pólitík“. Hún er krafa allra lands-
manna. Eðlilega þurfa eldri Íslend-
ingar mest á heilbrigðisþjónustu
að halda. Þetta er sá þjóðfélags-
hópur sem byggði upp samfélag
okkar með hörðum höndum og
ruddi þjóðinni leið til betra lífs.
Við eigum þessum einstaklingum
skuld að gjalda sem verður ekki
velt yfir á framtíðina.
Lokaorð
Það er sameiginlegt baráttumál
íbúa í öllum landshlutum, sjúkra
og heilbrigðra, yngri sem eldri að
spítali allra landsmanna sé öflug-
ur og traustur. Raunsæi, áræðni
og framtíðarsýn þarf til að tryggja
sjúklingum nauðsynlega þjón-
ustu í öruggu umhverfi. Lausn-
in felst ekki í því að senda sjúk-
linga úr landi til lækninga. Það er
vond lausn og dýr fyrir sjúklinga,
aðstandendur og þjóðarbúið í heild.
Gríðarleg þekking er til staðar í
íslenska heilbrigðiskerfinu. Þenn-
an mannauð má ekki undir neinum
kringumstæðum missa úr landi.
Styrkur íslenskrar heilbrigðis-
þjónustu hefur m.a. byggst á því að
vel menntaðir sérfræðingar hafa
snúið heim til starfa eftir margra
ára nám og þjálfun við öndvegis-
stofnanir austan hafs og vestan. Ef
sú nýliðun hættir horfum við fram
á hnignun heilbrigðiskerfisins og
skerta sérfræðiþjónustu sem afar
erfitt verður að snúa við í náinni
framtíð.
1) http://www.landlaeknir.is/um-
embaettid/frettir/frett/item24656/
Uttektir-a-Landspitala
2) http://www.laeknabladid.is/
media/tolublod/1653/PDF/r02.pdf
Landspítali – háskólasjúkrahús í miklum vanda
Fulltrúar þeirra
sem þorðu ekki,
gátu ekki og
vildu ekki leið-
r é t t a ve r ð -
tryggð húsnæð-
islán heimilanna
meðan þeir áttu
þess kost, eiga
bágt með að
sætta sig við að
ríkisstjórn Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar
stendur með heimilunum í landinu
og vinnur markvisst að því að nið-
urstaða fyrirhugaðrar skuldaleið-
réttingar liggi fyrir innan tíðar.
Fremstur í flokki úrtölumanna
fer háttvirtur þingmaður Helgi
Hjörvar, sár og svekktur. Eins
og fyrri daginn lætur þingmað-
urinn staðreyndir ekki flækjast
fyrir sér heldur veður elginn og
ruglar út í eitt. Sá sem hér ritar
hefur áður látið þá skoðun sína
í ljós að háttvirtur þingmaður
Helgi Hjörvar sé ekki töluglöggur.
Sá Akkillesarhæll þingmannsins
kom berlega í ljós á Alþingi í síð-
ustu viku. Þar fór hann að vanda
rangt með tölur og ruglaði saman
óskyldum hlutum. Þegar að því
var fundið bar þingmaðurinn sig
aumlega og birti „gögn“ á Eyj-
unni í því augnamiði að styðja við
bullið en „gögnin“ leiddu einmitt í
ljós veilurnar í málflutningi hans.
Meðal þess sem háttvirtur þing-
maður kom inn á var fjármögnun
leiðréttingarinnar. Hann heldur
því fram að heimilin í landinu séu
sjálf að borga leiðréttinguna.
Þrotabúin skattlögð
Hið rétta er að það hefur ávallt
legið fyrir að ríkið gæti þurft að
vera milliliður, sérstaklega ef
menn vildu flýta leiðréttingunni.
Það hefur einnig legið fyrir frá
því framkvæmd leiðréttingarinn-
ar var kynnt að sérstakur skattur
á fjármálafyrirtæki, svokallaður
bankaskattur, hefur verið hækk-
aður og undanþága fjármálastofn-
ana í slitameðferð frá skattinum
verið afnumin. Gert er ráð fyrir
að þessi breyting á bankaskattin-
um auki árlegar tekjur ríkissjóðs
um 92 milljarða á fjórum árum. Í
fyrsta sinn eru þrotabúin skatt-
lögð, nokkuð sem fyrrverandi rík-
isstjórn heyktist á að koma í verk
allan sinn starfstíma. Þingmað-
urinn heldur því fram að meðal-
leiðrétting skulda verði um 5%. Í
þessu dæmi tekur þingmaðurinn
mið af heildarskuldum heimil-
anna, þ.m.t. yfirdráttar- og Visa-
skuldir. Vissulega stendur núver-
andi ríkisstjórn með heimilunum
í landinu en aldrei stóð til að leið-
rétta Visa-skuldir.
Þingmaðurinn „gleymir“
Hið rétta er að áætlanir gera
ráð fyrir að meðallækkun verð-
tryggðra húsnæðisskulda sam-
kvæmt leiðréttingunni verði um
11% en það hlutfall er háð fjölda
þeirra sem rétt eiga á leiðrétt-
ingu. Heildarupphæð húsnæðis-
lána í lok árs nam 1.242 millj-
ónum króna skv. Hagstofunni.
Þingmaðurinn segir að hækk-
un neðra þreps VSK úr 7 í 12%
muni hækka matarverð um 5%.
Þarna „gleymir“ þingmaðurinn að
taka inn í myndina afnám vöru-
gjalda m.a. af matvælum. Einnig
„gleymir“ þingmaðurinn að taka
tillit til lækkunar efra þreps VSK
og áhrifa hennar. Hið rétta er
að verð á nauðsynjum mun skv.
núverandi frumvarpi hækka um
3,4% en að teknu tilliti til áhrifa
af niðurfellingu vörugjalda og
lækkun efra þreps mun kaupmátt-
ur heimila aukast.
Sá fræjum tortryggni
Auk þessa kýs þingmaðurinn að
líta fram hjá fyrirhugaðri hækk-
un barnabóta og annarra mót-
vægisaðgerða við fimbulfamb
sitt. Þingmaðurinn fer mikinn
vegna vaxtabóta og velur að
sjálfsögðu að nota árið 2011 sem
viðmiðunarár en þá voru vaxta-
bætur hæstar. Vaxtabætur hafa
farið lækkandi vegna bættrar
eiginfjárstöðu heimilanna. Þann-
ig lækka þær milli áranna 2014
og 2015 um rúmar 400 milljón-
ir. Bætt eiginfjárstaða heimil-
anna varð þingmanninum raunar
að umræðuefni nýlega þar sem
hann taldi skuldaleiðréttinguna
ónauðsynlega hennar vegna. Erf-
itt er að gera sér grein fyrir hvað
þingmaðurinn nákvæmlega vill.
En talnablekkingavefurinn sem
hann hefur spunnið þvælist lík-
lega fyrir honum. Þingmaðurinn
vakti ítrekað athygli á því á síð-
asta kjörtímabili að nauðsynlegt
væri að leiðrétta skuldir heim-
ila. Hann bjó þá við þá ógæfu að
styðja ríkisstjórn sem hélt sér-
stakan blaðamannafund til að til-
kynna að ekki væri ráðrúm til að
gera meira fyrir skuldsett heim-
ili.
Þingmaðurinn og skoðanabræð-
ur hans virðast ekki geta sætt sig
við að núverandi ríkisstjórn er
að standa við kosningaloforð sín.
Sárast er að með málflutningi
sínum reyna þessir sömu menn
að grafa undan aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar og sá fræjum tor-
tryggni í brjóst þeirra sem munu
njóta góðs af þeim í stað þess að
gleðjast yfir því að hagur heimil-
anna í landinu sé bættur.
Sárt bítur soltin lús
Tómas
Guðbjartsson
yfi rlæknir og
prófessor í skurð-
læknisfræði, for-
maður prófessora-
ráðs Landspítala
Engilbert
Sigurðsson
yfi rlæknir og
prófessor í geð-
lækningum, varafor-
maður prófessora-
ráðs Landspítala
Ásgeir
Haraldsson
yfi rlæknir og
prófessor í
barnalæknisfræði
Þóra
Steingrímsdóttir
yfi rlæknir og
prófessor í
fæðinga- og
kvensjúkdóma-
lækningum
Guðmundur
Þorgeirsson
yfi rlæknir og
prófessor í
lyfl æknisfræði
➜ Krafan um spítala sem
ræður við hlutverk sitt er
ekki „hreppapólitík“. Hún er
krafa allra landsmanna.
FJÁRMÁL
Þorsteinn
Sæmundsson
þingmaður
Framsóknarfl okks
➜ Sárast er að með mál-
fl utningi sínum reyna þessir
sömu menn að grafa undan
aðgerðum ríkisstjórnar-
innar og sá fræjum tor-
tryggni í brjóst þeirra sem
munu njóta góðs af þeim í
stað þess að gleðjast yfi r því
hagur heimilanna í landinu
sé bættur.
➜Yfi rleitt er fjallað um
landbúnaðarbyltinguna
sem staðreynd …
Landbúnaðarbylt-
ingin ekki ákvörðun
SAMFÉLAG
Ólafur Halldórsson
líff ræðingur