Fréttablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 26
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
MERKISATBURÐIR
1938 Samband íslenskra berklasjúklinga, SÍBS, stofnað. Það
rekur meðal annars Reykjalund og Múlalund.
1955 Við verkamannabústaðina við Hringbraut í Reykjavík er
reist stytta af Héðni Valdimarssyni.
1956 Uppreisnin í Ungverjalandi hefst með mótmælum náms-
manna í tækniháskólanum í Búdapest.
1958 Bandalag háskólamanna, BHM, stofnað.
1963 Í Vestmannaeyjum mælist 10 mínútna meðalvindhraði
200 km/klst. Þetta var vindhraðamet á Íslandi og var ekki jafnað
fyrr en 3. febrúar 1991, þá einnig í Vestmannaeyjum.
1988 Íslendingar vinna 11 verðlaun á heimsleikum fatlaðra í
Seúl í Suður-Kóreu 15. til 23. október. Þar af voru tvenn gullverð-
laun, sem Haukur Gunnarsson og Lilja M. Snorradóttir hlutu.
2002 Numið úr gildi sérákvæði í stjórnarskrá Ítalíu sem kvað
á um að afkomendum Úmbertós 2., síðasta konungs Ítalíu, í
beinan karllegg væri bannað að stíga fæti á ítalska jörð.
„Þetta er það sem við vildum gera til
að þakka fyrir okkur. Við vildum gera
eitthvað virkilega stórt. Nú eru orðin
þrjú ár síðan hann Sigurður dó frá
okkur, innan við sjötugt. Hann var stór
partur af lífi okkar og við tókum and-
lát hans mjög nærri okkur. Við höfum
ekki haft það í okkur að minnast hans
almennilega fyrr en nú,“ segir Aðal-
steinn Svanur Sigfússon hjá menning-
arsmiðjunni Populus tremula á Akur-
eyri.
Smiðjan heldur tónleika í Hofi á
laugardaginn til minningar um aðal-
hvatamann og leiðtoga Populus trem-
ula, Sigurð Heiðar Jónsson, en hann
lést úr MND-sjúkdómnum snemmsum-
ars árið 2011. Populus tremula fagn-
ar einmitt tíu ára afmæli um þessar
mundir en smiðjan var stofnuð í kring-
um hljómsveit sem á sér nokkuð langa
sögu. Hljómsveitin var stofnuð af Sig-
urði sem „tribute“-sveit fyrir ákveðna
tónlistarmenn. Fyrsta verkefni sveit-
arinnar var að flytja tónlist Cornelis
Vreeswijk í kringum árið 2002. „Síðar,
þegar Populas tremula-smiðjan var
orðin að því fyrirbæri sem hún er núna
æfði hljómsveitin prógramm með tón-
list Tom Waits. Í framhaldinu fylgdu
Nick Cave, Leonard Cohen, Megas og
fleiri. En hápunktarnir voru þessir
þrír fyrstu, Vreeswijk, Waits og Cave,
og tónlist þeirra varð fyrir valinu til að
spila á tónleikunum núna í Hofi,“ bætir
Aðalsteinn við en gestasöngvarar á
tónleikunum verða Sigríður Thorlacius
og Valdimar Guðmundsson.
Menningarsmiðjan Populus tremula
var stofnuð haustið 2004 og fékk þá til
umráða húsnæði í kjallara Listasafns-
ins á Akureyri og hefur haft þar aðset-
ur síðan. Þótt tónlist hafi verið límið í
starfseminni var frá upphafi mörkuð
sú stefna að halda úti alhliða menn-
ingarsmiðju. Nú, tíu árum síðar, hafa
verið haldnir rétt um þrjú hundruð list-
og menningarviðburðir í kjallaranum
og ókeypis hefur verið inn á alla við-
burði frá upphafi.
„Það byggist kannski að einhverju
leyti á því að húsnæðið okkar er þann-
ig að það er ekki verjandi að selja inn.
Þetta er alvöru „underground“-starf-
semi í kjallara,“ segir Aðalsteinn og
hlær. „Það er beinlínis tekið fram í
samþykktum félagsins frá því það
var stofnað að fjárhagslegur ávinn-
ingur megi aldrei vera neinn. Þetta er
fullkomið hugsjónastarf. Fyrstu árin
greiddum við kostnaðinn við þetta úr
eigin vasa en þegar árið 2007 rann upp
fór að ganga ansi vel að afla styrkja.
Eftir hrun hefur Akureyrarbær staðið
mjög þétt við bakið á okkur og styrkt
okkur sem nemur húsaleigunni. Jafn-
framt hefur menningarráð Eyþings
styrkt okkur þannig að við höfum náð
að halda uppi þessari starfsemi.“
En nú eru ár Populus tremula talin.
„Við ætlum að loka um áramótin.
Þetta er hópur vina sem stendur að
þessu sem er á aldrinum 35 til 65 ára.
Þetta er feiknalegt starf sem mæðir
á fáum og allt í sjálfboðavinnu. Nú
er kominn tími á kynslóðaskipti. Við
ætlum að fara mjög stolt frá þessu.
Þetta er búið að vera óendanlega
skemmtilegt og gefandi starf en nú er
kominn tími til að gefa öðrum pláss.
Það er okkar einlæga von að eitthvað
hliðstætt taki við undir nýju nafni,“
segir Aðalsteinn en Populus tremula
hefur sett sitt mark á listalífið í Akur-
eyrarbæ.
„Það er ansi stór hópur myndlistar-
manna og skálda, og talsvert af tón-
listarfólki, sem hefur stigið sín fyrstu
skref hjá okkur. Smiðjan hefur opnað
mörgum ákveðna leið til að prófa sig
áfram. Við erum ekki síst stolt af því
að þó að einlægar stórstjörnur hafi
komið fram hjá okkur og haldið sýn-
ingar, þá höfum við alltaf tekið vel á
móti grasrótinni.“
liljakatrin@frettabladid.is
Minnast fallins félaga
Menningarsmiðjan Populus tremula fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Á laugardaginn
heldur smiðjan stórtónleika í menningarhúsinu Hofi þar sem leiðtoga smiðjunnar,
Sigurðar Heiðars Jónssonar, verður minnst en hann lést fyrir þremur árum úr MND.
Strumparnir birtust fyrst á þessum
degi árið 1958 í sögunni La flûte à six
schtroumpfs og voru teiknaðir af belgíska
teiknaranum Peyo, sem heitir réttu nafni
Pierre Culliford.
Peyo segir að nafn Strumpanna sé
dregið af franska orðinu Schtroumpf en
hann bjó það til þegar hann borðaði með
teiknaranum André Franquin og mundi
ekki orðið fyrir salt.
Til eru rúmlega hundrað Strumpar og
eru nöfn þeirra byggð á einhverju sem
einkennir manngerð þeirra, eins og Leti-
strumpur, Æðsti strumpur, Barnastrumpur
og Hrekkjastrumpur.
Strumparnir
heilluðu Norður-
Ameríku upp úr
skónum árið 1981
þegar framleiðslu-
fyrirtækið Hanna-
Barbera framleiddi
sjónvarpsþætti um
þá og voru þeir
sýndir til ársins
1989. Þættirnir náðu til Íslands og var það
okkar eini sanni Laddi sem talaði inn á
fyrir alla Strumpana.
Strumparnir lifa enn góðu lífi og árið
2011 var bíómyndin The Smurfs frum-
sýnd þar sem stórstjörnur á borð við Hank
Azaria, Neil Patrick Harris og Sofia Vergara
léðu Strumpunum raddir sínar. Tveimur
árum síðar kom framhaldsmyndin The
Smurfs 2 í bíó en báðar hafa þó hlotið
fremur laka dóma gagnrýnenda.
ÞETTA GERÐIST: 23. OKTÓBER ÁRIÐ 1958
Heimurinn fær að sjá Strumpana í fyrsta sinn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
SIGURÐUR BALDURSSON
læknir,
varð bráðkvaddur 20. október í Svíþjóð.
Útför verður auglýst síðar.
Jóhanna Ingvarsdóttir
Jóhanna María Sigurðardóttir Arnar Þórisson
Erna Guðrún Sigurðardóttir Jón Axel Jónsson
Baldur Sigurðsson Hera Líf Liljudóttir
Ingvar Sigurðsson Helen Jónsdóttir
Selma Sigurðardóttir
Sigurveig Þórarinsdóttir
og barnabörn.
SVERRIR JÓNSSON
fyrrverandi stöðvarstjóri Flugleiða
og Flugfélags Íslands,
andaðist 19. október á hjúkrunarheimilinu
Eir. Útförin fer fram frá Grafarholtskirkju
3. nóvember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Charlotta Sverrisdóttir
Ásgeir Sverrisson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og systur,
ASTRID BJARGAR KOFOED-HANSEN
Efstaleiti 10, Reykjavík.
Einar Þorbjörnsson
Agnar Már Einarsson Andrea Isabelle Einarsson
Þorbjörn Jóhannes Einarsson Kathrine Espelid
Axel Kristján Einarsson Laufey Sigurðardóttir
Einar Eiríkur Einarsson Jamaima D’Souza
barnabörn og systkini hinnar látnu.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN MÖLLER
Kirkjusandi 3,
lést þriðjudaginn 21. október á
Landspítalanum við Hringbraut. Útförin
fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn
28. október kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Kristján Ragnarsson
Margrét Vala Kristjánsdóttir Sæmundur Sæmundsson
Tómas Kristjánsson Þóra Hrólfsdóttir
Hildur Ragna Kristjánsdóttir Alexander K. Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
KRISTRÚN STEFÁNSDÓTTIR
til heimilis að Víðihlíð 18,
Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeildinni
í Kópavogi mánudaginn 20. október.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 30. október kl. 15.00.
Garðar Árnason
Kristrún Lísa Garðarsdóttir Nils Johan Torp
Vilborg Anna Garðarsdóttir Þorgrímur Hallsteinsson
Selma Rún, Garðar Helgi, Knut Aleksander og Sara Marlen
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRA G. MAGNÚSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold þann
14. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði föstudaginn 24. október kl. 13.
Magnús Emilsson Sigrún Árnadóttir
Haukur Emilsson
Emil Þór Emilsson Elín Einarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR
STRANDBERG
frá Hellum, Landsveit, áður til heimilis
að Melgerði 32, Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 10. október sl. Útför Guðrúnar fer fram
frá Kópavogskirkju föstudaginn 24. október nk. og hefst kl. 13.00.
Auður F. Strandberg
Magnús F. Strandberg Ingibjörg Bragadóttir
Birgir F. Strandberg
Sveinbjörn F. Strandberg Kristín Jónsdóttir
Agnar F. Strandberg Brynja Stefnisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
HUGSJÓNAMAÐUR Sigurður lést fyrir
þremur árum og er sárt saknað.
ÞRUSUBAND Frá tónleikum Populus-hljómsveitarinnar árið 2007.
Nú er kominn tími á
kynslóðaskipti. Við ætlum
að fara mjög stolt frá þessu.
Þetta er búið að vera óend-
anlega skemmtilegt og
gefandi starf en nú er
kominn tími til að gefa
öðrum pláss.
Aðalsteinn Svanur Sigfússon