Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 30
FÓLK|TÍSKA
Greta Engilberts er dótturdóttir Jóns Engilberts listamanns og hefur nú gefið verkum hans nýtt
líf með því að prenta þau á flíkur og
púða. „Mig langaði að leyfa list hans að
lifa áfram og leyfa sem flestum að njóta
þeirra. Málverk eru dýr og venjulegt
fólk hefur oft ekki ráð á að fjárfesta í
þeim. Þess vegna fór ég þessa leið til að
koma listinni til alþýðunnar, ef svo má
segja,“ segir Greta og brosir.
Hún og sambýlismaður hennar,
Hjörtur Sólrúnarson, reka saman hönn-
unarfyrirtækið Engilberts hönnun og
framleiða klútana og buffin undir því
merki auk þess sem þau hanna hús-
gögn. „Við Hjörtur byrjuðum saman
fyrir tveimur árum og þá byrjaði hönn-
unin að blómstra. Hann er tónlistar-
maður og hönnuður og ég hef alltaf haft
áhuga á innanhússhönnun og annarri
hönnun. Í upphafi hönnuðum við bekki
og kolla úr íslensku geitaskinni og viði
úr Hallormsstaðaskógi. Á þessu ári fór-
um við að bæta klútunum, buffunum og
púðum við hönnun okkar og notuðum
við listaverk Jóns Engilberts í mynstrin
á vörunum.“
Jón Engilberts dó árið 1972, þá að-
eins 63 ára að aldri. Greta segist hafa
fengið hvatningu frá fólki sem tengist
listaheiminum til að koma afa sínum
aftur á kortið. „Það eru að vaxa úr grasi
nýjar kynslóðir sem þekkja ekkert til
verka hans þrátt fyrir að á sínum tíma
hafi hann verið mjög þekktur. Það
hanga verk eftir hann á mörgum íslensk-
um söfnum og einnig á söfnum á hinum
Norðurlöndunum. Hann skapaði nánast
ódauðleg verk en þrátt fyrir það hafa
þau ekkert verið uppi á borðum síðustu
ár. Það er fyrst og fremst þess vegna
sem ég er að gera þetta, til að kynna
listina hans og koma honum á framfæri
á ný,“ útskýrir Greta.
Þau hjónaleysin eru alls ekki hætt að
hanna fallega hluti og eru væntanlegir
ÓDAUÐLEG LIST
Á FÖGRUM FLÍKUM
TÍSKA Greta Engilberts er barnabarn listmálarans þekkta Jóns Engilberts.
Hún vill halda nafni hans á lofti og koma list hans til alþýðunnar. Hún hefur
því hannað fallega klúta og buff með verkum afa síns áprentuðum.
PRENTAR Á FLÍKUR
Afi Gretu Engilberts er
listamaðurinn Jón Engil-
berts og á hún höfundar-
réttinn að verkum hans
þannig að hún hefur leyfi
til að vinna með þau. Hún
hefur nú hannað vörur þar
sem listaverk hans eru
notuð í mynstrin.
frá þeim kímonóar með áprentuðum
listaverkum. „Þeir koma mjög vel út og
fara fljótlega í sölu. Við gerum aðeins
fimmtán kímonóa með þessu ákveðna
verki. Svo getur verið að við bætum
fleirum við með öðrum verkum. Afi var
mjög afkastamikill og mörg verk sem
liggja eftir hann þannig að af nægu er
að taka.“ ■ liljabjork@365.is
Save the Children á Íslandi